Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1938, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1938, Qupperneq 2
226 Snemma fór P. að brjóta heil ann um o>r iðka ýmsar brellur. sem gera mátti á fiðluna, op hefiv enginn komist lengra í því en liann. Og þegar hann kom heim aftur til Gemia. frá Parma, samdi hann fyrstu æfiugarnar eða ,,etud urnar“, sem eftir hann birtust. Þær eru svo fáránlega erfiðar, aó adrei hafði neitt slíkt þekst eða sjest. og var sagt, að hann ætti .jafnvel stundum fult í fangi með það sjálfur, að komast fram vir þeim. og að hann æfði oft ein- stakar hesdingar í alt að því tíu klukkustundir samfleytt. Hann æfði sig óhemju mikið og þar sem hann var gæddur alveg frábærum hæfileikum, bæði að því er snerti lipurð, lægni og handar lag, — og andlega músíkgáfu, varð árangurinn að sjálfsögðu frábæri- lega mikill og góður. Hann var að eðlisfari kappgjarr. og ástundun- arsamur, en faðir hans, sem mun hafa verið ruddamenni og hinn mesti harðstjóri við P., mun hafa boitt hann jafnvel ómannúðlegri þvingun. Drengurinn mun hafa haft hug á, að losna úr þeirri ánauð, sem var að verða honum óbærileg. Honum var leyft að fara einn síns liðs til Lucca, þar sem hann ljek á hljómleika-hátíð, sem var haldin í nóvember 1798 og vakti fádæma athygli og aðdáun. Hann fór þá ekki heim aftur til Genúa, heldur fór hann í flakk, til Pisa og ýmsra annara borga. Hann var þá aðeins fimtán ára að aldri, .en var þá þegar farinn að svalla talsvert og var einkum hneigður til fjárhættuspilamensku. og var svo um hann alla æfi. Ilann tók sjer kviður, ýmist við það að æfa sig eins og óður maður, eða sleppa sjer alveg út í svallið og fjárhættuspilamenskuna. Þess á milli lá hann svo rúmfastur dög- um og vikum saman, útgerður af þreytu og annari vanlíðan. Og þetta skýrir það, hversu oft hann hArarf algerlega af sjónarsviðinu löng tímabil og hve hörmulegt heilsufar hans var hin síðari ár æfinnar. — Einu sinni vildi það til, — hann var þá staddur í Liv orno, — að hann tapaði í spilum LESBÖK MORGUNBLAÐSTNS öllu, sem hann gat við sig losað — og jafnvel fiðlunni líka. Til þess að hann gæti leikið á hljóm leikum, sem biiið var að auglýsa. fjekk hann að láni Guarnerius fiðlu, hinn mesta kostagrip, eina af hinum frægu og sjaldgæfu ít- ölsku fiðlum. Maðurinn, sem fiðl una átti, varð svo heillaður af snilli Paganinis á hljómleikunum, að hann gaf honum fiðluna. Þess- ar fiðlur eru nú um 200 þús. kr. virði. Þessi fiðla varð síðan upp- áhaldshljóðfæri P. og notaði hann hana umfram aðrar fiðlur, sem hann átti. Hann arfleiddi fæðing arborg sína, Gentia, að henni og er hún nú geymd í glerskáp í ráðhúsinu í Genúa. Stradivar-fiðla var honum líka gefin. Seinast, þegar slík fiðla var föl, fyrir sex eða sjö árum, voru boðin í hana 15 þús. sterlingspund. eða um 330 þús. kr. ★ Árin 1801—1804 hjelt P. alveg kyrru fyrir í höll konu einnar af tignum ættum. Sagt er að þennan tíma hafi hann lagt öllu meiri stund á gítarspil en fiðluna, enda hafði gítar rrnrið uppáhaldshljóð færi þessarar hefðarkonu. Tvo hljómkvæðaflokka samdi hann á þessum árum fyrir fiðlu og gítar, sem merktir eru ópus 2 og 3. 1804 kom hann til Genúa og tók nú að æfa sig enn af óhemju kappi á fiðluna og 1805 fór hann að ferð- ast á nýjan leik. Hvar sem hann kom vakti hann geysilega undrun og aðdáun. í Lucca var honum boðin einleikarastaða við hirðina og gerðist hann þá og um skeið kennari Bacciochi prins, þess er giftur var Elsu systur Napóleons mikla. Um þetta leyti fór hann að leggja mikla stund á að leika heilar tónsmíðar á Gstrengnum einum. Vrar það eitt af mörgu, sem hann vakti sjerstaka athygli á sjer fyrir. Þótti leikur hans á G- strengnum töfrandi fagur. Mun öllu meira hafa verið tekið eftir þessu, en annars hefði orðið, sök- um þess, að tónn hans á fiðluna var yfirleitt ekki mikill eða breið- ur, eins og við t. d. táknum tón Kreizlers, — þó að hann væri fagur. En ástæðan til þess var sú, að hann notaði að jafnaði grennri strengi en alment gerist, bæði vegna þess, að hann stilti fiðluna oft öðruvísi, en venja er til, og á grönnu strengina nutu sín miklu betur ýmsar brellur Jiær, sem hann hafði lagt stund á. í Lucca hjelt hann kyrru fyrir þangað til 1808, en nsgstu 19 árin hjelt hann mörg hundruð hljóm- leika víðsvegar um Ítalíu, og óx frægð hans og hróður með ári hverju, og undrun njanna og að- dáun á því töfrandi valdi, sem hann hafði á fiðlunni, og talið var jafnvel yfirnáttúrlegt. Hann átti fjölda öfundarmanna, og það kom ekki ósjaldan fyrir, að ýmsir keppinautar hans reyndu að gera honum allskonar hrekki. Aðrir eltu hann borg úr borg, til þess að reyna að komast fyrir, hvernig hann æfði sig, eða í hverju væri fólginn leyndardóm urinn, sem þeir töldu vera um hina undursamlegu leikni hans. í Mílanó hlaut Paganini betri viðtökur en nokkursstaðar annars staðar á Ítalíu. Þar hjelt hann ekki færri en 37 hljómleika, svö að segja í stryklotu, árið 1813. 1816 hitti hann frakkneska fiðlusnillinginn Lafont í Mílanó og lenti í kepni við hann opin- berlega, algerlega gegn vilja sín- um þó. Þeir ljeku sína sólóna hvor, og saman Ijeku þeir tvíleik eftir Kreutzer. Er P. það til sóma, að hann lætur svo um mælt, er hann segir sjálfur frá þeirri við- ureign, að sennilega muni Lafont hafa meiri og breiðari tón, en hann sjálfur. Ekki þarf þó að því að spyrja, að P. vann glæsilegan sigur í þessari kepni. Svipaða kepni háði P. við fiðlusnillinginn Lapinzki í Placentia, árið 1817. Árið 1827 sæmdi Leó páfi hinn XII. Paganini heiðursmerkinu ,.Gullsporanum“. ★ Alt til þessa hafði Paganini aldrei leikið utan landamæra It alíu. Metternicli prins, sem heyrt liafði til hans í Rómaborg 1817, hvatti hann þrálátlega til að koma til Vínarborgar. Bjóst P. hvað

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.