Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1938, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1938, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 227 eftir önnað til þeirrar farar og tiJ þess að fara til Þýskalands líka, en heilsufar hans var þá jafnan svo bágborið, að hann treysti s'jer ekki, þegar á átti að herða. Loks fjekk hann þó svo milda heilsu bót af langri hressingardvöl í Sikiley, að hann lagði upp í Vín- arförina og hjelt þar fj-rstu hljóm- leika sína 29. mars 1828 og vakti þar svo mikla aðdáun og hrifn ingu að talið er, að engin dæmi sjeu því hliðstæð. Það er svo að sjá, sem einskonar Paganini-sótt hafi altekið Vínarbúa, allra stjetta í búðargluggum voru sýndir hatt ar, hanskar og skór á la Paganini. Allskonar rjettir matar voru nefndír eftír honum. Myndir af henum voru á tóbaksdósum og öðrum gripum, sem menn hand- ljeku mikið og spjátrungarnir í Vín höfðu Paganini-líkön á göngu- prikum sínum, Borgarstjórinn í Vín sæmdi hann gull-heiðurspeningi þeim hinum stærri, sem kendur er við St. Salvator, og ennfremur sæmdi keisarinn hann titlinum „Keisara- legur hirð virtuós“ (eða snilling ur). Næstu ár ferðaðist P. um Þýska land og voru viðtökurnar í hinum stœrri borgum þar svipaðar við- tökunum í Vín, eða endurtekning á þeim. Einkum er þess getið, að hann ha-fi mjög ært Berlínarbúa. En þar Ijek hann í fyrsta sinn í marsmánuði 1829. í París kom hann fyrst fram opinberlega 9. mars 1831. Viðtök- urnar voru þar mjög svipaðar og í Þýskalandi. Og í maímánuði sama ár fór hann til Lundúna og hafði fyrstu hljómleika sína þar 3. júní. Sennilegt er, að öllu meiri hafi verið forvitnis-undrun áheyr- enda þar en eðlileg aðdáun. P. kvartar undan því í brjefi, er hann reit um það leyti, hve að- dáun manna sje þar taumlaus oc hávaðamikil og lýsi sjer á svo nærgöngulan hátf, að honum sje til mikils ama og nokkurra óþæg inda. „Þó að löngu sje svalað for- vitni fólksins um að sjá mig“. segir hann í brjefinu, „þar sem jeg er nú búinn að leika hjer op inberlega að minsta kosti þrjátíu sinnum, og allar hugsanlegar eft- irlíkingar hafi af mjer verið gerð ar í öllum hugsanlegum stelling um. get jeg aldrei komist svo að heiman, að ekki þyrpist að mjer allskoiiar lýður, sem ekki lætur sjer nægja að elta mig, heldur hlaupa fram fyrir mig, stöðva mig og yrða á mig á ensku, en í því tungumáli skil jeg ekki aukatekið orð, og suniir eru jafnvel svo nær- göngulir, að þeir þreifa á rnjer, eins og til þess að ganga úr skugga um, að jeg sje af holdi og blóði. Og þetta er ekki aðeins alþýðufólk, heldur og líka fólk ai tignum stjettum". ★ Fjárhagslegur hagnaður af hljómleikum P. á Bretlandi var geysi mikill. Hann kom þangað aftur næstu tvö ár, og rakaði sam- an fje. En hann var maður fje- gjarn og hugðist nú að ávaxta fenginn auð. Lagði hann fyrst all- mikið fje í land- og fasteigna kaup, á meginlandi Evrópu. En 1836 var honum boðið að taka þátt í stórfeldu fjárgróðafvrir- tæki, sem hleypa átti af stokkun- um í París. Átti það að vera íburðarmikill og ríkmannlegur klúbbur, sem nefna átti „Casino Paganini“. Á yfirborðinu var svo látið heita, að þar ættu aðallega fram að fara hljómleikar, en raunverulega átti þetta að verða spilavíti. Því miður, fyrir Paga- nini, stóðst hann ekki freisting- una og gekk í þetta vafasama fyrirtæki. Klúbbhöllin var opnuð, en yfirvöldin neituðu um leyfi til fjárhættuspila þar. fyrirtækinu til handa. Og hljómleika-ágóðinn einn hrökk hvergi nærri til að bera uppi þetta íburðarmikla fyr- irtæki. Þegar Paganini frjetti um vandræði fyrirtækisins, flýtti hann sjer til Parísar og hugðist að rjetta við hag þess og bjarga því, sem bjargað yrði með því að koma þar sjálfur fram á hljómleikum. En hann var svo æstur og af sjer genginn, þegar til Parísar kom, að hann gat ekki spilað. Fyrirtækið varð gjaldþrota og Paganini tap- aði þar persónulegá um 50 þús. franka. Mistökin sem á urðu um þetta fyrirtæki og fjártjónið, tók hann sjer mjög nærri og hafði það ill áhrif á heilsufar hans, sem þó mátti vart lakara vera. Var hon m nú ráðlögð dvöl í hlýrra lofts- lagi, og tor hann þá til Marseilles og dvaldi þar um tíma hjá vim sínum einum. Hann var þá raun- ar orðinn mjög aðframkominn, en greip þó enn fiðluna stöku sinn- um, eða gítarinn. Þegar vetraði fór hann til Nizza. En nú ágerðist sjiikdómur hans hröðum skrefum. Hann varð alveg rómlaus og þjáð ist mjög af þrálátum hósta. Ljest hann 27. mars 1840, eða fimtíu og sex ára gamall. ★ Viku áður en hann Ijest, sendi Nizza-biskup prest á fund hans, til þess að veita honum sakra- mentin. P'aganini trúði því þá ekki, að hann væri svo langt leidd- ur, sem raun var á, og gerði prestinn afturreka. Orðalag erfða- skrár hans, þar sem hann felur sál sína miskunn Drottins og til- tekur upphæð, sem verja skuli til sálumessusöngs að honum látnum, bendir þó til þess, að hann hafi borið djúpa lotningu fyrir hinni kaþólsku kirkju. En þar eð prest- urinn kom ekki aftur og Paganini ljest, án þess að meðtaka sakra- menti kirkjunnar, neitaði biskup því, að hann yrði grafinn í vígðri mold. Líkkistan var því lengi geymd í líkhúsi sjúkrahúss eins í Nizza. Síðar var hún flutt til Villafranca, og það var ekki fyrr en 1845, að sonur P. fjekk að jarða föður sinn, í kirkjugarði einum í þorpi skamt frá Villa Caiona. Þessi sonur P. hjet Achille, og erfði mikinn auð eftir föður sinn. á þeirrar tíðar mælikvarða, því að sagt er, að P. hafi látið eftir sig um hálfa aðra miljón líra. Yfirleitt var Paganini talinn fje- gjarn mjög og naumur á fje, en þó kom það fyrir, að hann sýndi hinn mesta rausnarskap. Gaf hann til dæmis frakkneska tónskáldinu Berlioz eitt sinn 20 þús. franka í viðurkenningarskyni fyrir tónsmíð hans „Symfonie Fantastique“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.