Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1938, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
229
Listsýningin í Miðbæjarbarnaskólanum
Kristín Jónsdóttir: Jökulsá á Sólheimasandi.
Hjer eru birtar þrjár
myndir (tvær á þessari síða
og ein á næstu) frá hinni
almennu listsýningu, sem
stendur yfir þessa dagana
í Miðbæjarbarnaskólanum í
Reykjavík.
í Miðbæjarbarnaskólanum hefii-
* Bandala" ísl. listamanna al
menna listsýningu, er hefir verið
opin síðan um mánaðamót. A sýn
ingu þessari eru málverk eftir 12
málara, og höggmyndir eftir þá
Martein Guðmundsson og Ríkarð
Jónsson. En málararnir sem sýna
þarna eru þessir: Eyjólfur J. Ey
fells, Finnur Jónsson, Freymóður
Jóhannsson, Greta Björnsson,
Gunnlaugur Blöndal, Gunnlaugur
Ó. Scheving, Inger Löchte, kona
Gunnlaugs Blöndal, Jóh. Briem,
Jón Þorleifsson, Karen Agnete
Þórarinsson, Kristín Jónsdóttir og
Ólafur Túbals.
Þó áhugi almennings fyrir mál-
verkum og málaralist fari mjög
vaxandi hin síðari ár. þá hafa
Réykvíkingar ekki komist upp á
það alment ennþá, að fjölmenna á
hinar almennu listsýningar, sem
hjer hafa verið haldnar við og
við. Það er næsta einkennilegt, að
aðsóknin að sýningum einstakra
málaTa er oft tiltölulega mikið
meiri, en að sýningum, þar sem
sýnd eru verk margra listamanna
í einu.
Fyrir það fólk, sem á annað
borð vill fylgjast með íslenskri
list, framþróun hennar og breyt-
ingum, eru einmitt almennu sýn-
ingarnar að jafnaði mikið fróð
legri en sýningar einstakra
manna. Þar fæst samanburður á
verkum þeirra, og með þeim til
breytingum, sem eru á hinum al
mennu sýningum, geta menn bein-
línis gert sjer betur grein fyrir
sjerkennum hvers listamanns og
svipeinkennum verka hans.
Islensk málaralist hefir, enn
sem komið er, fengið m.jög mik
inn hluta viðfangsefna sinna í
náttúru landsins. Málararnir hafa
fyrst og fremst tekið sjer fvrir
hendur að lýsa landinu okkar, og
gera það vitaskuld hver með sín-
um hætti, eftir skapgerð þeirra
sjálfra, mismunandi innblæstri og
listeðli. En hjer er viðfangsefni,
sem geðþekt er allri alþýðu
manna. Ættjarðarást Islendinga
er að miklu leyti beinlínis tengd
við ástina á fegurð landsins.
Túlkun málaranna, þar sem þeir
lýsa fegurð íslenskrar náttúru, er
því beinlínis í þágu vaxandi ætt-
jarðaváster.
Karen Agnete Þórarinsson: Fólkið á heiðinni.