Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Page 1
39. tölublað. JMor0M]wI>Ia£>0ÍJí0 Sunnudaginn 2. október 1938. XIII. árgangur. ÍHfold»ryiwtuilt]» h.f. Qottskálkur Thorvaldsen var besti karl — Qottskálkur Thorvaldsen, faðir Bertels Thorvaldsens, hefir áreiðanlega verið miklum órjetti beittur, eða minning lians niðrað ótilhlýðilega, sagði Svend Agger- holm leikari, er við hittumst hjer um daginn, og hátíðahöldin þ. 17. sept. \s.l. í Höfn bárust í tal. En þann dag hjeldu Hafnarbúar há- tíðlega 100 ára minningu þess er Thorvaldsen steig á land í Höfn, alkominn frá Ítalíu með öll sín listaverk, er Daiiir síðar bygðu safnið fyrir. Menn ltafa jafnvel dregið það í efa, að Bertel Thorvaldsen væri rjett feðraður, heldur hr. Agger- holm áfram. En síðari rannsóknir leiða ekkert í ljós, er styðji þann orðróm, heldur þvert á móti. Enda er það augljóst að samtíðarmenn þeirra feðga hafa litið svo á, að Bertel Thorvaldsen hafi erft lista- hæfileika sína fyrst og fremst úr föðurætt sinni, og að þaðan hafi eitthvað verið að erfa af því tagi. Þorvaldur prestur á Miklabæ, hag- leiksmaður, sendir syni sína báða, Ara og Gottskálk, til þess að læra listsmíði, hvorn sína grein. Ari lærir gullsmíði en Gottskálkur trjeskurð. Því hefir verið haldið fram, að Gottskálkur hafi verið hálfgerður auðnuleysingi og ofdrykkjumaður. En alt er það orðum aukið. Enda er það oft svo, að alþýða manna magnar oft þann orðróm að for- eldrar íturmenna hafi verið næsta lítilfjörlegir, rjett eins og til þess að upphefja ágætismennina og varpa yfir þá ennþá meiri æfin- týraljóma. Gottskálkur gamli. Thorvaldsen liefir vafalaust haft sína galla eins og við allir meira og minna. En hann hefir verið duglegur í sinni handiðn. Það er víst. Það sanna t. d. reikningar, sem eru að finnast hjer og þar í gömlum ploggum frá hans hendi, þar sem tilfærðar eru upphæðir sem hann vann sjer inn fyrir trjeskurð sinn. Aðalatvinna hans var, sem kunn- ugt er, að skera út „gollions“- myndir á skip. Hafði hann lengi atvinnu við það á gkipasmíðastöð á Larsensplads í Höfn. En auk þess skar hainn út ýmiskonar hús- skraut og myndir sem ^notaðar voru á leiksviðum borgarinnar og víðar. Sem dæmi um tekjur hans má nefna, að veturinn 1798, og það var eftir að Bertel var farinn fyrir löngu að heirnan, fekk hann 100 ríkisdali fyrir 2 „gallions“-myndi» er hann gerði. Og þrem árum seinna, haustið 1801, er hann svo vel settur, að hann á fje til þess að geta keypt lífrentu fyrir konu sína, sem hefði gefið henni 200 ríkisdali á ári. Það verður að játa, að heimildir eru mjög á víð og dreif um Gott- skálk, æfiatriði lians og skaplyndi. Þegar Bertel var 17 ára kærði hann sambýlismann sinn, er bjó á næstu hæð fyrir ofan Thorvald- sensfjölskylduna í Laksegade 20, fyrir „ósjðsamlegan söng, blót, há- vaða og annað“. En í fjölskyldu þessari, er hjet Molberg, voru tvær stúlknr á sama reki og Bertel, og mætti giska á, að Gottskálk hafi viljað hafa taumhald á því sem fór frant í húsinu. Um skapgerð Gottskálds verður helst ráðið af brjefunt þeim sem til eru frá honum til sonarins. Þar kemur í ljós, að tnaðurinn hefir verið skaptnaður, skýnsamur, oft nokkuð ertinn og kaldhæðinn, með ríkt hugmyndaflug. Hann hefir skrifað ágæta skýra rithönd, og eru engin elliglöp eða afturför á brjefum hans þeitn ^íðustu Við flettum upp nýútkominni bók um Thorvaldsen eftir Louis Bobé, þar sem tilfærð eru nokkur- brjef Gottskálks til sonarins suð- ur í Róm. Þar á meðal eru brjef um loðhund, sem Thorvaldsen skildi eftir heima hjá karli og kerlingu, er hann fór suður. Sepp- inn var kallaður Primong. En svo er sagt, að Thorvaldsen hafi verið meðal þeirra, sem fekk meira og tneira dálæti á hundum, eftir því sem hann fekk nánari kynni af mönnum. Brjef Gottskálks eru vitanlega Öll á dönsku, en stafsetningu er ábótavant hjá honuiú. Til skýr- ingar skal þess getið að kunning'u

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.