Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Síða 5
Nú ei’ að leggja að torfunni. „Bassinn“ er þrautreyndur síld- armaður. Ákveðinn og íhugull at- hugar hann torfuna. Mai’gs er að gæta. Hann þarf að sjá glogt í hvaða átt síldin veður, reikna út hraða hennar og að vita hvernig straumur er. Loks er auðsætt að hann þykist kunua nægilega skil á hátterni síldarinnar og nú legg- ur liann að henni og þegar skamt er til síldarinnar er bandinu, sem tengir bátana saman að framan, slept og bátunum, sem hingað tii hafa stímað eða legið samsíða, stýrt í sundur og byrjað að ,kasta‘ Nótinni er spólað út á rúllum, sem standa á borðstokknum og snvuð er af tveimur mönnum í hvorum bát. Síldin veður enn uppi og hringurinn kringum hana stækkar og bátarnir nálgast hvor annan á ný. Nú hefir allri nótinni verið kastað og framstefni bátanna rek- ast saman og stroffunni, sem tengir þá saman, er kastað yfir „davíðuna 4, þ. e. stutt járnstöng upp úr stefninu. Snurpilínan, sem runnið hefir út með steinatein nótarínnar, er nú með leifturhraða flutt fram í „da- víðuna“ og svo hefst meginþáttur- inn við kastið, snurpingin. Níu menn í hvorum bát taka á allri skerpu sinni til þess að draga lín- una sem fljótast inn og þar með snurpa nótina sarnan að neðan, og þannig að loka síldina inni. Síldin er ennþá uppi inni í nótinni og veiðivonin styrkir mannskapinn við þessa mæðandi og lýjandi vinnu, snurpinguna. En við erum svo hamingjusamir í þessu tilfelli að vera á togara, sem hefir vjelar í báðum nótabát- urn og þegar nokkur hluti snurpi- línunnar hefir verið dreginn og nótin er .byrjuð að koma saman, er vjelspilið látið snurpa. Þannig er iirðugasti hluti snurpingarinnar framkvæmdur með vjelaafli. ★ Snurpingunni er lokið og síldin er inni. Línan er öll inni í bátun- m, sinn helmingur í hvorum. Ilring irnir, sem hún liggur í gegnum og festir eru á svokallaða „hanafæt- ur“, er liggja nokkra faðma nið- ur úr steinatein nótarinnar, eru teknir aftur fyrir og nokkrir LESBÓK MORGUNBLAÐSINS „hanafótanna“ dregnir upp. Steina teinnin, sem þeir eru festir á, er festur á „kjefa“ á borðstokk báts- ins. Síðan er byrjað að draga ínn nótina sjálfa. Hún er í fyrstu ljett. meðan síldin ekki legst í hana, því hringurinn sem hún í fyrstu hefir til umráða er allstór. En smáin sainan þrengist hringurinn og síld- inni verður óhægra um vik. Því meir sem nótin er dregin, þess þyngri verður hún, því nú hefir síldin gjörsamlega stungið sjer og legst nú, með ölluan þeim þunga, sem í þessu tilfelli ea. 500 mála kast getur skapað, í nótina. f þessum tveimur smábátum er nú stritað af alefli og fet fyrir fét þokast hin 180 faðma langa síld- arnót inn í bátana. En stöðugt þyngír. Mennirnir, sem staðiS hafa upp- rjettir í bátnum, það sem af er drættinum, verða nú að setjast niður og nota borðstokkinn fyrir viðspyrnu. Átökin verða að vera samstilt og örugg. Ef einhver ylgja er í sjóinn er hún mikill hægðarauki, ef ekki er um of Bátarnir síga á „rólinú“ og þá er tækifærið notað til þess að ná notinni frekar inn. Hægt og bít- andi miðar drættinum á fram. Hvíldir eru teknar, en þær mega aðeins vera örstuttar, því síldin má ekki drepast í nótinni áður en tekst að ná henni upp. Þá myndi hún legjgast hálfu þyngra í og þannig auka erfiðið að muu. ★ En þolinmæðin þrautir vinnur allar. Nú er komið að polta nótarinn- ar. Hann er úr grófara garni en hinn hluti nótarinnar og þolir bet- ur þyngslin. Nú afræður ,.bassinn“ að láta skipið leggja að. Því næst er korkjaðar nótarinnar festur með böndum frá skipinu upp á skips- hliðina á alllöngu svæði og síðan er byrjað að „þurka“, þ. e. a. s. að draga inn pokann. Tommu fyr- ir tommu miðar „þurkuninni“ á- fram og nú vellur síldin upp á milli bátanna og skipshliðarinnar. Sjórinn kringum bátana er silfr- aður af hreistri Qg inni í pokan- 309 —....... .... ■ ■. i i. ■ ■ i i i ■ um verður æ meiri þröng á þingi. Bilið milli bátanua er einn silfur- iitaður þríhyrningur, þar sem alt er á stöðugu iði. Bátarnir hallast vegna þess hversu pokinn er stríður á borð- stokkunum og loks næst ekki meira af honum. „Þurkuninni“ er lokið. Nú gefst dálítið tóm til að láta þreytuna líða vír handleggjunum. Háfböndunum er kostað niður í bátana og háfurinn er dreginn út frá skipinu og sökt í þessa hvik ulu kös milli bátanna. Fimtán til tutiugu mál af síld eru þannig flutt upp á skipið í hverjum háf. Þannig er nótin tæmd á ör- sköminuin tíma og nú erum við tilbúnir að kasta á ný ef færi gefst. , Lognið og góðviðrið helst. Síld- in veður stöðugt og sagan endur- tekur sig. Stöðugt er verið í bát- uuum. Mönnum gengur mísjafn- lega vel. Sumum bregst aldreí ,,kast“, aðrir „búmma“ oft, og það er eins hjer og við flesta veiði að mikið er undir heppni komið. Að þessu sinni er hepnin með okkur og við fyllum skipið í örfá- um „köstum“. Lestarnar eru fullar og kúfur er upp af þilfari. Skipið er sökk- hlaðið. Bátarnir eru teknir upp, „vakt“ er sett og stefnt vestur yfir Skjálf- anda áleiðis til Hjalteyrar til löndunar. Skipið er á fullri ferð. Það fyssir við stefnið og skrið hins hlaðna skips er þungt og skilar því markvist áfrarn til á- fangastaðar. í lúgarnum hvílast hásetarnir eftir sitt fengsæla strit. Hin bjarta sumarnótt breiðir vængi sína í velþóknun yfir skip- ið, sem heldur leiðar sinnar eins og djarfur og gunnreifur einstak- lingur er finnur og veit hvers liann er megnugur. Þegar inn er komið hefst lönd- unin. En hjer hefir tæknin verið tekin í þjónustu síldveiðanna. Sama vinna og áður tók, og víða tekur enn, 20 klst., er hjer int af hendi á ca. 7—8 klst. „Krananum“ er stungið niður í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.