Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1941, Qupperneq 4
52
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Skotið af „breiðsíðu“ bresks herskips.
sama dag eða næsta og í nágrenni
Falklandseyja þann 14.
Um 1000 mílur eru á milli þess-
ara svæða, og það var ekkert, sem
gaf til kynna, hvaða svæði Graf
Spee myndi velja. En þegar allar
aðstæður voru athugaðar komst
Harwood flotadeildarforingi að
þeirri niðurstöðu, að þýðjngarmest
væri að vernda Plate-fljóts svæðið
vegna þess hve fjölfarin svi leið
var. Það var einna líklegast að
árásarskipið legði leið sína þang-
að.
Breski flotadeildarforinginn
skipaði flotadeild sinni að msetast
um 150 sjómílur frá ósum Plate-
fljótsins og sá um, að skip sín
hefðu nægar olíubirgðir þegar
þau mættust. Þessar skipanir voru
sendar í stuttu loftskeyti, en eft-
ir það voru loftskeyti ekki notuð.
Notkun loftskeyta hefði gefið ó-
vinunum til kvnna, að bresk her-
skip væru að koma á vettvang. j
★
Við skulum nú snúa okkur að
Graf Spee á ný. Eftir að hafa sökt
Doric Star þann 2. desember sneri
árásarskipið til suðvesturs og
hitti þá Tairoa á leið sinni snemma
morguns. Á hana var einnig skot-
ið til að koma í veg fyrir að not-
uð væru loftskeytatæki skipsins.
Loftskevtamaðurinn hjelt þó á-
fram að senda neyðarmerki þar
til loftskeytaklefinn varð fyrir
skoti. Fimm menn af áhöfninni á
Tairoa særðust.
Graf Spee hjelt áfram í vestur-
átt og hitti þann 6. desember
birgðaskip sitt. Nokkrir yfirmenu
og áhafnirnar af Doric Star og
Tairoa voru fluttir um borð í Alt-
mark. Skipin skildu næsta dag
og um kvöldið þess sama dags
mætti árásarskipið breska skipinu
Btreonshalh og sökti því.
Nú voru 39 breskir yfirmenn
fangar um borð í Graf Spee og
þrjátíu menn, sem voru áhöfn
Streonshalh. Á hverjum morgni í
dögun og aftur að kvöldinu heyrðu
fangarnir, að flugvjel skipsins var
skotið út til þess að fara að leita
að kaupskipum. Flugmaðurinn
kom ekki auga á neitt skip.
í fjóra daga sigldi Graf Spee í
suðvestur, í áttina að Plate-fljóti.
Það getur verið að Langsdorff
skipherra hafi búist við að hitta
eitt eða tvö bresk herskip á leið
sinni, en samkvæmt frásögn fang-
anna, sem nutu töluverðs frjáls-
ræðis, var ekki einn maður af
áhöfninni, sem ekki trúði áróðrin-
um frá Berlín um að skip þeirra
væri ósigrandi. Það var þegar bú-
ið að sökkva meirihluta breska
flotans, áhöfnin helt, og öll þýska
þjóðin trúði því, að Hood, Renown
og Repulse væru ósjófær, og auð-
vitað var Ark Royal á hafsbotni.
★
Klukkan 7 f. h. þann 12. desem-
ber mættust Ajax, Achilles og
Exeter á fyrirfram ákveðnum stað
150 mílur fyrir austan ósa Plate-
fljótsins. Harwood flotadeildarfor-
ingi eyddi hluta af deginum í að
segja skipherrum sínum frá þeim
aðferðum, sem hann hefði hugsað
sjer að nota, ef þeir mættu vasa-
orustuskipinu. Aðferðirnar voru
síðan æfðar. Skipanir flotadeild-
arforingjans voru þær, að hver
skipherra fyrir sig skyldi far v
eftir eigin höfði, hvað snerti skot
færi, ef til sjóorustu kæmi.
13. desember raftn upp heiðskýr
og fagur. Ekki skýhnoðri á himn-
inum og fullkomið skygni. Það
var suðvestan gola og örlítill
öldugangur úr sömu átt. Bresku
skipin sigldu í halarófu í austur-
norð-austur með 14 mílna hraða.
Ajax var fremst, síðan Achilles
og þá Exeter. ,
Klukkan 6.14 sást reykur á
bakborða út við sjóndeildarhring.
Exeter var sagt að athuga málið.
Tveim mínútum síðar kom til-
kynningin: „Jeg held að það sje
vasaorustuskip".
Óvinurinn var að koma í ljós.
Bresku beitiskipin og andstæð-
ingur þeirra sigldu beina línu
andspænis hvor öðrum og var
Graf Spee að norðanverðu.
Bresku skipin settu þegar á fulla
ferð og höguðu sjer samkvæmt
fyrirfram gerðri áætlun, sem æfð
hafði verið daginn áður.
Aðalaðferðin lá í því, að ráð-
ast frá tveim áttum á þýska skip-
ið, sem hafði alla yfirburði hvað
fallbyssur snerti. 11 þuml. fall-
byssurnar á Graf Spee voru á
tveim fallbyssustæðum og aðferð
Harwoods hlaut því að neyða
þýska skipið til að snúa fallbyssu-
kjöftunum á hvoru byssustæðinu
fyrir sig í sitthvora áttina að
hinum bresku skipum, sem voru
afar dreifð, eða að skjóta ein-
göngu í aðra áttina.
Sjóorustan hefst.
Exeter, sem var sterkast hinna
bresku skipa, með 8 þuml. fall
byssur, sneri í vesturátt. Ajax
og Achilles sneru snarlega til
norðausturs og ftálguðust hinn
mikilúðuga andstæðing sinn.
Og kl. 6.18, fjórum mínútuni
eftir að reykurinn sást fyrst, hóf
Graf ,Spee skothríð á löngu færi.
Frá öðru byssustæðinu var skotið
Framh. á bls. 56.