Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1941, Page 8
56
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Síðasta ferð ,Graf Spee‘ Pjaðrafok
Framh. af bls. 52.
á Exeter, en úr hinu á Ajax og
Achilles.
Skipin nálguðust fljótlega, og
tveim mínútum síðar hleypti Ex-
eter af frá tveim fremstu fall-
bj’ssustæðum sínum og skaut af
fjórum 8 þuml. fallbyssum á
19.000 metra færi. Áður en langt
leið var einnig hlevpt af tveim
aftari 8 þuml. fallbyssunum.
Skothríðin virtist valda Graf Spee
erfiðleikum, því skömmu síðar
sneri Graf Spee öllum sínum stóru
fallbyssum að Exeter. Fyrsta skot-
hríð óvinarins náði ekki skipinu,
önnur skothríðin fór yfir skipið
og sú þriðja var „gleið“, það er
eitt eða tvö skot náðu ekki, en
hin fóru yfir skipið.
Hjerumbil um leið hófst skot-
hríðin frá Ajax og Achilles. Var
hún bæði hröð og áhrifamikil og
skotfærið varð styttra, þar sem
skipin fóru með fullri ferð í átt-
ina að óvinaskipinu.
Á meðan á þessu stóð varð Ex-
eter fyrir ákafri skothríð og kl.
6.23 sprakk 11 þuml. sprengikúla
um leið og hún snerti yfirborð
sjávar, skamt frá herskipinu.
Sprengjubrotum rigndi yfir skip-
ið, áhöfn tundurskeytahlaupanna
fórst, símasamband skipsins bil-
aði og reykháfar og kastljós
skektust. Einni mínútu síðar
hitti 11 þumlunga kúla beint í
mark á fallbyssustæði B, rjett
framan við brúna. Byssustæðið og
báðar fallbyssurnar urðu ónothæf-
ar og átta af fimtán sjóliðum,
sem þar störfuðu, biðu bana.
Sprengjubrot stórskemdu stjórn-
pallinn og drápu og særðu alla,
sem þar voru, nema skipherrann
og tvo aðra menn, einnig skemd-
ust leiðslnr i stýrisbúsinu.
I nokkrar mínútur var skipið
stjórnlaust, þar til þeir, sem voru
í neðri stjórnpalli, tóku að sjer
stjórn skipsin§ og stýrðu því í
fyrverandi stefnu þess. Stjórn-
pallurinn var eyðilagður og Bell
skipherra ákvað að berjast áfram
frá aftari stjórnpalli. Honum tókst
að komast þangað, en komst þá
að raun um, að allar símalínur
voru ónýtar. Það var þá tekið
það ráð, að stýra skipinu frá
varastýrinu afturá og í 45 mín-
útur stjórnaði skipherrann skipi
sínu og stýrði eftir smá áttavita
úr björgunarbát og fyrirskipanic
hans gengu mann frá manni og
þurfti til þess 10 manna röð að
koma þeim skilaboðum á milli.
Exeter var undir stöðugri skot-
hríð og tvær 11 þuml. kúlur hittu
skipið í viðbót að framan, fyrir
utan skemdir, sem hlutust af
kúlubrotum, sem sprungu nálægt
skipinu.
Ajax og Achilles höfðu einnig
nóg að gera. Skothríðin bar svo
mikinn árangur, að kl. 6.30 var
11 þuml. fallbyssum eins byssu-
stæðisins á Graf Spee snúið að
þeim. Stöðug skothríð úr 5.9
þuml. byssum Graf Spee hafði
dunið að báðum minni beitiskip-
unum ,en þó án árangurs.
Skömmu síðar skaut Exeter
stjórnborðs tundurskeytum að ó-
vinaskipinu. Þau mistu marks
vegna þess að Graf Spee mislík-
aði hin breska skothríð og beygði
150 gráður undan og huldi sig
reykskýi.
Meira.
Það er betra að þegja og láta
álíta sig bjána, heldur en að tala
og taka af allan vafa.
Abrabam Lincoln.
Kunnur blaðamaður var nýdá-
inn. Verndarengill hans
fylgdi honum til himnaríkis og
var í þann veginn að fara inn um
hliðið, er Sánkti Pjetur tók í
taumana.
„Staða?“ spurði Pjetur og
byrsti sig.
„Blaðamaður“.
„Ekkert rúm fyrir yður hjer!“
Og Pjetur skelti hurðinni aftur '
harkarlega.
„Jæjá“, sagði engillinn. „Þá er
ekki um annað að ræða en hinn
staðinn“. .
„Hvaða starf höfðuð þjer með
höndum á jörðunni?“ spurði
kölski.
„Jeg vann við blöð“.
„Mjer þykir fyrir því, en hjer
er ekkert rúm fyrir yður“. Og
kölski lokaði að hjá sjer eins og
Sánkti Pjetur hafði gert, en þó
ekki alveg eins harkarlega.
En blaðamenn eru ekki strax
af baki dottnir þótt á móti blási
í bili.
Blaðamaðurinn kom sjer upp
útgáfufyrirtæki á óbygðri stjörnu
og hóf blaðaútgáfu.
Áður en mánuður var liðinn var
hann búinn að fá blaðamanna-
kort, sem veitti honum aðgang að
báðum hinum fyrnefndu stöðum.
„Illustrado" Havana.
★
— Þjónn, hafið þjer vestið
mitt?
Þjónninn: Þjer eruð í því,
herra minn.
—« Nú, jæja, það var eins gott
að jeg spurði yður, því annars
hefði jeg sennilega farið út vestis-
laus
*
— Á hverri nóttu dreymir mig
sama hræðilega drauminn: Mjer
finst jeg detta í sjóinn og jeg
brýst um á hæl og hnakka þar
til jeg vakna í svitabaði. Hvað á
jeg að gera?
— Læra sund.
★
Sársauki skilnaðarins er ekkert
á við fögnuð samfundanna.
Dickens.