Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Page 6
422 LE8BÓK MORGUNBLAÐSINS hætfan vií að rekast á eitthvað. þá er það ekki eins hættulegt og það lítur út fvrir að vera, að fljúga lágt. Maður er öruggur fyr ir loftvarnabvssum og or- ustuflugvjelum, því að þrer geta ekki stungið sjer að flug vjelunum. án þess að stingust sjálfar til javðar. Það einn, sem orustuflugvjelarnar geta í slíkum tilfellum. er. að koma aftan að eða frá hlið. og þá er enginn vandi að jafna um þær með bvss unurn frá skotturnunum. Vitan lega er )>að vjelbvssuskothríð frá jörðu, sem gæti grandað, en þeg ar flogið er með 250 mílna hraða á klukkustund. þá er ekki auð- velt að miða á flugvjel eða hæfa hana. ★ Fólk. sem var að viuna á ökr- um hjá bóndabæjum. veifaði okk ur með amboð og höttum um leið og við fórum fram hjá. í þorpi einu sáum við fjóra lögregluþjóna, sem stóðn með reiðhjól sín á torgi einu. Þeir heilsuðu okkur að her mannasið. Þeir voru klæddir blá- um einkennisfötum og með háa hjálma. Þeir voru alveg eins og enskir liigregluþjónar. Barnahóp- ur, sem var að leik. hætti leik sínum og börnin hóppuðu um og veifnðu til okkar. Ekki vorum við alveg vissir. hvenær við vorum komnir inn á þýskt land. vegna þess hve land ið er líkt þarna, en þó virðisí sem fleiri trje sjeu í Þýskalandi en Hollandi. En brátt sáum við fólk vera á harða hlaupum að leita sjer skjóls og vissum við þá, að við vorum yfir óvinalandi. Skvtturnar hófu skothríð með öllu. sem þeir áttu til ........... (hjer hefir ritskoðunin strikað út). Sumir Þjóðverjanna hjeldu aug- sýnilega. að við værum þýskar flugvjelar að koma heim frá ár- ásarleiðangri og byrjuðu að veifa — þangað til þeir heyrðu í byss- unum okkar og sáu eldglæring arnar koma á móti okkur. Loftið var fult pí Blenheim flugvjelum. Einu sinni flaug önnur flugsveit rjett fvrir ofan okkur', á leið sinni til árásar á rafmagnsstöð hjá Aachen. Það voru ekki nema nokk ur fet á milli okkar. Við flugum svo þjett. að sumar flugvjel- arnar lentu í vandræðum með að finna áfangastaðinn. því flugmað urinn í fvrstu flugvjelinni sá um að halda rjettri stefnu og við þurftum ekki annað en að fvlgja honum eftir. Jeg heyrði skygnismann minn hrópa: ,.Þarna er hún. formaður“. og rjett var það, að á hægri hönd gaf að líta turna Kölnardómkirkj- unnar. sem voru einskonar leiðar- \ ísar. því við vissum að rafmagns- stöðin var um 8 mílur fvrir ofan Köln. Síðan sáum við markið beint fyrir framan okkur. Það var nákvæmlega eins og við höfðum sjeð það á myndum áður en við lögðum af stað. Tvær samstæður af stærðar revkháfum, með um 150 metra millibili. Hlutverk okk ar var að fljúga á milli reykháf- anna og sleppa sþrengjum okkar á aðalstöðina. Foringi fararinnar tók stóra sveiflu. Sólin var á stjórnborðshlið okkai’. ★ INGAf) til höfum við ekki orðið var við eina einustu óvinaflugvjel nje loftvarnabyssu- stæði, þótt að sumir piltanna hjeldi því fram, að þeir hefðu sjeð aldglæringar frá óvinabyssum þjóta fram hjá sjer, er við vorum vfir Hollandi. Við höfðum aug sýnilega komið Þjóðverjum að ó- vörum. vegna þess að ..Welling- ton“ sprengjuflugvjelar höfðo verið vfir þessu svæði alla nótt ina og sennilega hafa Þjóðverjar ekki búist við anuari árás svona fljótt. Þeir hafa vafalaust* verið sofandi eða verið að hreinsa byss urnar sínar. Jeg var um það bil að snúa, til að komast yfir markið. þegar afturskyttan mín hrópaði: ,,Hæ! Orustuflugvjelar á bak- borða“. ★ Tvær Me. 109 (Messerschmitt) voru á leiðinni að okkur frá hlið Jeg sagði sveit minni að gera ráð- stafanir til að mæta þeim. Jeg sá fallbyssukúlur þjóta milli mín og næstu vjelar. Byssukúlurnar rifu stykki úr klæðinu á væng vjelar- innar. Loftvarnabyssuskothríðin fór nú harðnandi og kúlur sprungu alt í kringum okkur. Jeg sá b'ossa frá einu byssustæðinu og var að hugsa um, hvað jeg ætti að taka til bragðs, en einn vir okkar hópi steypti sjer á byssustæðið og þagg aði niður í því. Jeg sá foringja fyrstu flugvjela sveitarinnar steypa sjer á markið. Hún flaug svo lágt, að hanu livarf milli reykháfanna. Mjer varð ljóst. að við þurftum að hækka flugið. því annars myndum við lenda i sprengingunni t'rá sprengjuni hans. Jeg gaf skipun um að hækka flug- ið npp í 800 fet. Um leið og við flugum yfir markið, sá jeg rauða eldblossa inni í rafmagnsstöðvar- bvggingunni frá sprengjunv, sem voiru að springa. Vrið sleptum okk ar sprengjum einmitt þar sem við vildum helst að þær lentu. Stóra. svarta reykjarmekki lagði upp frá stöðinni og eldar loguðu víðs- vegar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.