Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Síða 4
332 lisbOk morgunblaðsins ÞEGAR KÓLUMBUS FANN AMERÍKU Eftir Þórhall Þorgilsson magister Niðurl. rásagnir hinna fyrstu Spán- verja, sem litu þessar furðu strandir, eru yfirleitt látlausar og gagnorðar, lausar við hjátrú og öfgar og að því leyti í ósamræmi við þær kynjasögur, sem bráðlega bárust út um öll lönd gegnum hroðvirknislegar þýðingar og end- ursagnir ímyndunarfullra grúsk- ara. í handritasafni Landshóka- safnsins er „Þáttur af Columbo um hans landa uppleitan og ó- kunnar siglingar“ (JS. 43 4to), skrifaður á árunum 1660—80, ef- laust eftir einhverri enskri eða þýskri fyrirmynd. Þar segir svo: „ . . . Enn komu þeir til ann- ara eyja, kölluðu aðra Guanahani, en hina Hispaniam . . . Þeir fóru þar í land, en fólkið umflúði þá og forðaðist, skýldi sjer í skógin- um og vildi ei finna þá nje við þá tala. Þó gátu þeir höndlað einn kvenmann. Hana höfðu þeir með sjer til skipsins og veittu henni vín að drekka og gáfu henni eitt og annað glæsilegt. skran. Þeir færðu hana í öll kvenföt og fluttu hana svo í land aftur . . . Eu sem landsfólkið hitt sá, að þessi kona hafði eignast föt og aðra velvild af þessum komumönnum, og hún sjálf sagði þeim frá þeirra þægri viðhöndlan við sig, hlupu þessar villimanneskjur í hópatali miklu ofan til skipsins og seldu skipverjum gull sitt og aðrar gersemar . . . Það urðu þessir spænsku skipsmenn varir þeirra háttalags, að þeir höfðu einn kong yfir sjer þar á eyjunum. Hann heimsótti þá, og voru af honum vel mótteknir og veitti hann þeim vel. Innbyggjar þess- arar eyjar baka sitt brauð af einlags rót, sem þar vex. Gull er í litlu áliti hjá þessu fólki. Þeir fara aldrei til annara landa til að brúka kaupmenskuskap eður höndlun við aðrar þjóðir. Þeir taka gull upp sem annan sand, þann sem hrynur ofan af fjöllum af vatnsfalla rás, óg bræða það, slá úr því flatar plötur, þar ofra á . . . (Þar eru) hræðilega stór- ir demar, dúfur á vöxt við endur og gæsir, snjóhvítar með rauðum höfðum og aðskiljanlega litum fjöðrum og vængjum.. Columbus þóttist merkja á einu og öðru sig ekki vera langt frá Indíen.. Þeir fuijdu þar og svo mastyx,*) álún, rauðan pipar og engifer. Sem Columbus var nú á þeirri ey með sitt fólk, þá báru lands- menn sig upp fyrir honum, að þeir liðu stóran skaða og yfirgang af því fólki, sem kallast Canibal- ister, kváðu þær slæmu manneskj- ur færi oft af sínu landi til þess- ara og annara, tæki fólk til fanga og deyddi, æti þá síðan og höndl- uðu við þá miskunnarlaust sem óargadýr; þær ungu manneskjur færði þeir sjer og eldi þær, þar til þær væru orðnar feitar, og slátruðu þeim svo, sjer til sæl- gætis að eta. Gömlu fólki slátr- uðu þeir strax, snöruðu burt inn- ýflum . . . æti þeir svo vel hend- nr og fætur, en það þeir leyfðu, söltuðu þeir niður og geymdu. Unga kvenmenn hjeldu þeir til þess að eiga börn, hver börn þeir einnig aflífuðu að eta. Enga kven menn vilja þeir eta, en hafa þá til þess, sem sagt er. 'Gamlar kon- ur brúka þeir til þrældóms og erf- iðis. Og nær þessir Canabalistar kæmi þar á eyjuna, flýði hver maður í skóga og fylgsni, því þeir væri grimmir og harðúðugt fólk, og þar með sterkir, svo 20 af þeim gæti fangað og yfirunnið 100 eyjamanna eður þessa lands innbyggjara. Eftir þetta bjó Columbus sig og sigldi til eyjar þessara Cannibal- ista, og með því það var á sunnu- *) Eimsk. ilmkvoða. degi, hann þangað kom, kallaði hann eyna Insulam Dominicam eður sunnudagsey. En sem þeir fóru í land, þá merktu þeir, að margt fólk var þar á eyjunni, en hún er öll skógi vaxin með græn- um trjám. Iljer fyrir fóru þeir lengra áfram og hittu enn aðra ey. Hún var sem hin fyrri yfir- vaxin öll grænum skógarviði og trjám, frá hverjum lagði lysti- legur ilmur, svo skipsfólkið fær stóra löngun að fara þar á land og kanna ey þessa. Ei fundu þeir þar heldur neina lifandi skepnu, utan stórar eiturpöddur, er fer- fætlingar kallast. Columbus gaf þessari ey nafn og kallaði hana Insulam Crucis (Krossey). En sem þeir sigldu með landi og framhjá þessari ey, urðu þeir var- ir við nokkur smáhús eður hittur, sem 20 eður 30 til samans. Þau voru smíðuð kringlótt sem hring- ur við neðan, en mjó upp. Af trje voru þau bygð og þakin með páhn- viðarblöðum. En þegar sltipsfólkið fór í land og vildi gaumgæfa þess lands háttalag, hlupu þeir inn- lendu úr sínum húsum og hýbýl- um og flýðu, skiljandi hvað er komið var eftir, því að bæði menn og konur flúðu í skóginn. En þeir spænsku skipsmenn gengu inn í húsin og fundu þar nokkra yngis- pilta, sem aumlega fangnir voru og inn settir til þess að fita þá til slátrunartímans. Þessa leystu þeir og höfðu með sjer burtu. Þar voru og svo margar gamlar konur, sem haldnar voru til æfi- langs þrældóms. Þeir fundu þar og líka stóra leirpotta og leirker, full með saltað mannakjöt, gæsa, papagoja og andakjöt, öliu saman blandað; þar fyrir utan höfuð af ungmenni eður piltbarni upphengt á einn snaga og draup þá enn af því volgt blóð, því það hafði verið nýafskorið. Þá fundu þeir og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.