Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Blaðsíða 7
LK8BÓK MOROUNBLAÐSINS 335 Hvernig Japanar bjuggu sig undir stríðið Eftir JOSEPil McOABE Vandamál sagnaritara framtíð- arinnar verður ekki það að komast í skilning um, hvernig nokkur hundruð stjórnmálamannu og hernaðarsinna tók að dreyma um sigurvinninga, heldur hvers vegna heimurinn ljet þá koma á fót herstyrk til þess að leggja út á þá braut. Þetta verðum vjer að viðurkenna, að vjer vitum ekki mikið um, sjerstaklega ekki hvað snertir ófriðinn milli Bandaríkj- anna og Japans. Árið 1937 gáfu Bandaríkjamenn út hina nýju alfræðiorðabók sína, Encyclopedia Americana, og var þar auðvitað mjög langur kafli um Japan. Af 25 greinum þar um þetta efni, voru 20 ritaðar fyrir ameríska lesendur af japönskum áróðursmönnum,-3 af presti nokkr um, sem ber mest fyrir brjósti trúboð í Japan, og ein af prófess or einum, sem dáinn var fyrir 16 árum. Á hverri síðu voru Banda- ríkjamenn fullvissaðir um vin- áttu og friðarvilja Japana, og sagt, að Ameríka hefði ekkert að óttast úr þeirri átt. Fyrir jólin, þetta sama ár, komu Japanar mjög grimdarlega fram við Kínverja. Átján milljónir Kínverja voru reknir frá heimilum sínum, um 300 þúsundir óbreyttra borgara drepnir, og ferill japönsku her- mannanna var þakinn glæpum, ránum, nauðgunum og morðum. Samt urðu Bandaríkjamenn steini lostnir fjórum árum síðar, þegar Japanar rjeðust á Pearl Harbour. ★ hvítra þjóða, varð að leysa upp hina fornu herflokka, Samuraiana svonefndu, en það voru einmitt þeir, sem Japanir lýstu fegurst fyrir öðrum þjóðum. í rauninm voru þeir grimmir og ófyrirleitnir eins og miðaldaherskarar Evrópu Heilir skarar af þeim fóru auðvit- að í hinn nýja her og flota, og margir hófu þátttöku í blaða- mennsku og stjórnmálum. ★ Annað atriðið spratt af vexti iðnaðar og verslunar. Hvergi ann- arsstaðar var djúpið eins mikið milli auðs og örbirgðar, og sá smáhópur af ríkum fjölskyldum, sem rjeði yfir fjármálalífi jap- önsku þjóðarinnar, sá möguleika til meiri auðsöfnunar í arðráni Asíulanda. Þessar fjölskyldur gengu í bandalag við foringja hers og flota í hinu orðlagða fjelagi „Svarta Drekans“, sem var stofn- að fyrir 40 árum og keyptu enn- fremur fylgi stjórnmálamannanna. Þriðja orsökin var hnignun japanskra trúarbragða. Shinto, hin upphaflega trúarbrögð í Jap- an höfðu aldrei til að bera snefil af siðfræði, en forfeðradýrkunin og lotningin fyrir keisaranum, sem í þessum trúarbrögðum fólst, kom sjer vel fyrir drottnunarstefnu hinna valdagráðugu. En verra var með Búddatrúna. Hún var komin í fullkomna niðurlægingu þegar á síðustu öld. í hinu nýja Japan var hún svo tekin upp aftur af stjórnmálamönnum, hermönnum og auðjöfrum, sem sáu prestum hennar fyrir geysilegum fjárhæð- um, til þess að þeir ynnu að því, að gera áhangendur sína fulla af þjóðrembingi, og unnu þeir mikið á í þessu efni. Það hafði lengi verið almenn skoðun í Japan, að flestir af hinum 150 þúsuhdum presta og munka tryðu lítt á það, sem þeir prjedikuðu, og meira að segja rithöfundur jafn vinveittur Japönum og Armstrong prófessor staðfesti þetta fyrir 20 árum síð- an. Á trúarbragðaþinginu í Chi- gagó, árið 1934, staðfestu margir þetta sem sannleika um Búdda- trúna í Japan. Að vísu er þar eins og annarsstaðar fámennir hópar, sem lifa grandvöru lífi og hafa háar hugsjónir, en þeir eru ekki margir, svo að nú hafa prestar Búddatrúarmanna sama hlutverkið með höndum í Japan, og Göbbels og ráðuneyti hans í Þýskalandi. Búddatrxiarmenn í Japan gefa út tvö dagblöð, 20 vikublöð og 200 mánaðarrit, og söfnuðurnir eru skipulagðir mjög nákvæmlega, með skátafjelögum, ungmennafje- lögum og miklum samkomum. Þar eru fjelög ungra Búddatrúar- manna, sem skipulögð eru að fyr- irmynd K. F. U. M. O’Conroy prófessor, sem þekti Japana máske betur en nokkur annar hvítur maður, en kona hans var úr einni af aðalsættunum japönsku, og hann kendi við japanska háskóla í 15 ár, segir að minsta kosti 80 af hundraði hverju af búddaprestum og munkum sjeu samviskulausir mútuþegar. Betri hluti Búddatrúarmanna var notaður af ríkisstjórninni til þess að fá menn á sitt band um alla Asíu, og koma inn hjá þeim hugsuninni um eitt stórt Asíu- veldi, undir forystu Japana. Eitt af því, sem þeir kröfðust af Kín- verjum, meðan þeir sjálfir höfðu nóg að gera í heimsstyrjöldinni, var það, að japanskir Búddatrú- armunkar fengju óhindrað að predika í Kína. Þeir fóru um alla Asíu, jafnvel til Irak, og frá öll- um löndum hafa þeir smalað fvlgj endum sínum til Tokío, til leið- beininga og fundarhalda. Aldrei var farið leynt með takmarkið heima í Japan. Árið 1934 safn- aðist múgur og margmenni í nokkr ar af stærstu verslunum Tokíó- borgar, til þess að sjá þar myndir af eyðileggingu Bandaríkjaflotans, sem sagt var að búast mætti við árið 1936 eða 1937. í Síam, Mala- ya og Indland var fullt af erind- rekum Japana, og einnig á Cey- lon. Ameríka hefir minni rjett til þess en Evrópa, að tala um skyndi lega og sviksamlega árás á menn- inguna. Draumur Japana um að sígra Asíu alla og bola þaðan öllum áhrifum hvítra manna, byrjaði þegar er hvítir menn fyrst komu til Japan, árið 1853. — Það var lítið tekið eftir þessum áform- um á síðustu öld, því þá voru Japanir hernaðarlega máttvana, en hatur þeirra á yfirráðaþjóðum vesturlanda óx. Að slíku stuðlaði einkum þrennt: Þegar fara átti að sníða herinn þar eftir skipan

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.