Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1943, Síða 3
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
195
sögu Bandaríkjanna. Massac-
husetts Avenue er merk að því
að þar standa flestar sendiráðs-
byggingar erlendra ríkja og
aðrar skrauthallir frá gamalli
tíð. — Breska sendiráðshöllin
stendur þar — gamalt stórhýsi
úr rauðum múrsteini, dálítið
fornfálegt, en virðulegt.
Veð þessa götu hefir íslenska
sendiráðið aðsetur — þó ekki
innanum skrauthallirnar, heldur
utar, fjær miðborginni. Þar hef-
ur sendiherrann okkar, Thor
Thors, leigt sjer vistlegt íbúðar-
hús með garði umhverfis og býr
þar með fjölskyldu sinni. En aft-
an við íbúðarhúsið, úti í garðin-
um, er lítið einlyft hús, sem
hann notar fyrir skrifstofur. —
Þar inni eru aðeins tvær litlar
skrifstofur og vinna þar, auk
sendiherrans, tveir aðstoðar-
menn og tvær skrifstofustúlkur.
Þarna er hið besta samkomu-
lag, þó þröngt sje. Hið unga ís-
lenska sendiráðsfólk er úrval og
landi voru til sóma á allan hátt.
Sendiherrann hefir nú verið
að reyna í meira en ár, að út-
vega skrifstofupláss nær mið-
bænum, sem væri rýmra og hent-
ugra, en ekki tekist. Líklegt er
að sendiráðið verði að gera sér
þrengslin að góðu þangað til
eftir stríð.
Jeg get ekki látið hjá líða að
minnast á, hve sendiherrahjónin
í Washington eru innilega góð
og hjálpsöm við Islendinga, sem
til Ameríku koma. Við eigum
þar hauk í horni, sem óhætt er
að flýja tiL Og trú mín er sú,
að Thor Thors fylgi sínum mál-
um — þ. e. málum Islands —
vel fram.
★
Mjer er ómögulegt að ljúka
svo þessari grein um Washing-
ton, að jeg minnist ekki ofur-
lítið á lista- og minjasöfn borg-
arinnar — þó þau út af fyrir
sig væru reyndar efni í margar
greinar. Þau eru hinn merkileg-
asti vitnisburður um uppáhald
Ameríkumanna á listum og forn-
minjum.
Hin helstu standa í hvirfingu
á Capitol-hæðinni og við Con-
stitution Avenue.
Mellon listasafnið svonefnt eft-
ir auðmanninum, sem gaf rík-
inu safnið — er þeirra yngst,
því byggingu þess var ekki lok-
ið 1938. Má óhætt telja það með-
al fremstu listasafna í höfuð-
borgum heimsins. Það er snjó-
hvít marmarahöll í klassiskum
stíl. Hvelfingin yfir miðri bygg-
ingunni er borin uppi af 24
rammbyggðum súlum úr græn-
um, fægðum marmara, sem
speglast í hinum skínandi hvíta
gólffleti. Gosbrunnur seitlar og
ýmiskonar jurtagróður vex á
göngunum til beggja handa og
býður gestum til hvíldar, á milli
þess, sem notið er hinna ódauð-
legu listaverka meistaranna
gömlu. Þarna er m. a. úrvals-
safn af ítalskri miðaldalist og
helgimyndum.
Þá er Shakespeare-safnið, sem
auðmaðurinn Folger gaf. Það er
aflöng bygging með hreinum
nútímasvip, en hefir tekist
meistaralega að samræma hið
miðaldalega frá tímabili Elísa-
betar drottningar. Fram með
hliðinni eru níu ris-myndir, sem
sýna atriði úr leikjum Shake-
speares, en við gaflinn er nýmóð-
ins stytta af „Puck“, eftir amer-
íska listakonu. Þegar inn er kom-
ið, er eins og stigið sje 400 ár
aftur í tímann. Þar er lestrar-
og matsalur útbúinn nákvæm-
lega eftir enskri 16. aldar fyrir-
mynd, sama er um leiksvið og
áhorfendasal. Það er eins og
gerðist á dögum Shakespeares.
Þarna eru yfir 25,000 bindi og
100,000 handrit af leikritum
Shakespeares á öllum tungumál-
um og í óteljandi útgáfum —
auk þess þúsundir af leikskrám,
leikbúningum, myndum af leik-
urum o. fl. Svo er álitið, að þetta
sé fullkomnasta safn sem til er
— og hreinasta paradís fyrir
Shakespearefræðimenn.
Jeg spurði eftir íslensku þýð-
ingunum, en umsjónarmaðurinn
vissi ekki til, að þær væru í safn-
inu.
Smithsonian Institute er af sum-
um álitið svarti sauðurinn með-
al skrauthallanna á Capitol-hæð.
Enskur maður, að nafni Smith-
son, gaf þessa byggingu um
miðja síðustu öld, til eflingar
vísinda- og menningarrannsókn-
um.
Það er úr dökkrasðum múr-
steini, við hliðina á öllum hvítu
-höllunum og gæti verið miðalda-
borg, eða þá gamalt klaustur
eða kirkja — en er skemmtileg
tilbreytni frá allri hvítu klassik-
inni.
Þar er allmikið listasafn, aust-
urlenskt, — en þar er líka mikið
safn af myndum eftir ameríska
listamanninn Whistler, sem eins
og kunnugt er gaf myndum sín-
um nöfn eins og tónsmíðum:
Nocturne í bláu — bleikrauð
rhapsodia — ljósgræn barcarolle
o. s. frv. Þessi listamaður ól ald-
ur sinn í Evrópu að miklu leyti.
Eitt sinn skreytti hann herbergi
fyrir enskan lávarð, þegar hann
dvaldi í Englandi og var uppi-
staðan í litum og skreytingu
páfuglinn og litir hans. Lista-
maðurinn og lávarðurinn urðu
seinna ósáttir út af herbergi
þessu. Með einkennandi ame
rískri nákvæmni og tryggð hefir
herbergi þetta verið rifið, fjöl
fyrir fjöl og flutt í listasafn
Smithsons. Nú hafa fjalirnar
verið skeyttar saman og settar
upp, svo að herbergið lítur út
eins og það var í upphafi —
„The Peacock Room“.
Library of Congress — þing-
bókasafnið — stendur andspæn-
is þinghúsinu og er afar skraut-
leg bygging. Með grænum kop-
ar-kúpli, tignarlegum súlum og
svipmiklum inngangi minnir það
mest á skrauthallir Venezíu. —
Veggir eru skreyttir frescó og
mosaik og er sumstaðar innlagt
með skíru gulli. 6 miljónir bóka
eða þar yfir eru þar undir þaki.
Á svölum yfir inngangssal er
stjórnarskrá og grundvallarlög-
Bandaríkjanna til sýnis. Til að
sjá er eins og að þarna sé há-
sæti, en gyltur ljósbjarmi fellur
á bókfellið frá földum ljósum.
Þarna er hljótt umhverfis, líkt
og maður stæði frammi fyrir
helgum dómi.
Hæstaréttarhöllin nýja er svo
sem steinsnar frá bókasafninu.
Hún er í hvíta klassiska stílnum