Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1943, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 27.06.1943, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 199 NAFNLAUS BRJEF (Framh. úr síöustu Lesbók). Nokkrar vikur liðu áður en Morin væri tekinn fastur. En þá kom dálítið einkennilegt fyr- ir: Varla hafði rjettvísin kló- fest Morin fyr en Clovis Hugues og kona hans urðu fyrir ákafri og langvarandi árás. Þau höfðu engan frið fyrir nafnlausum brjefum og póstkortum og var efni þeirra svívirðilegra en nokkru tali tæki. Með hverri póstferð streymdu þessi and- styggilegu brjef inn í húsið. Frá öllum landshornum Frakklands. Það var eins og öll þjóðin hefði tekið sig saman um að kvelja úr þessum hjónum lífið. Brjefin voru, að því er sjeð varð, skrifuð hvert af sínum manni. Svo ógeðsleg voru mörg þess- ara opnu brjefspjalda, að starfs- fólkið á pósthúsunum lagði þau í umslög, áður en þau voru bor- in heim til viðtakenda. Hjer er dálítið sýnishorn af þeim. Þetta er brjef til Clovis Hugues: „Hamingjusami hundur! Nú vitum við hvers vegna þú, þessi ljóti vanskapningur, hefir kvænst fegurðardrósinni. Hún fyllir pyngju þína með peningum þeim, sem hún vinnur sjer inn með ástaræfintýrum sínum. Þú ert kænn refur! Þú vissir á- byggilega hverskonar kvenmaður það var, sem þú varst að kvæn- ast. En að hún skyldi heldur vilja ljótan kryppling eins og -þig en laglegan náunga eins og Normand, það getur enginn skil- ið. — ^Uir Frakkar liggja í krampahlátri". Þetta ófjetislega brjef var þó engan veginn af verstu tegund. Hver skyldi því furða sig á því, að þessi veslings hjón yrðu al- veg örvingluð, og loks varð frú Hugues alveg yfirbuguð. Vanda- menn hennar voru orðnir hrædd- ir um að hún myndi missa vitið. Lögreglan reyndi eftir mætti að komast fyrir upptök þessa sorpbrjefaflóðs. En það tókst ekki. Alt benti á, að Morin væri potturinn og pannan í þessu öllu saman og að hann hefði með ærnum tilkostnaði boðið út dá- litlum her sjer til aðstoðar í þessari andstyggilegu herferð. En svo kænlega hafði hann farið að ráði sínu, að alger ógerningur var að fletta ofan af honum. Og sú varð reyndin, að þótt það hefði sannast á Morin í rjettar- höldunum, að hann hefði keypt og mútað mörgum vitnum í skilnaðarmálinu, þá smeygði hann sér út úr kærunum og gekk út úr réttarsalnum frjáls maður. Því var haldið fram, að mál Morins hefði verið tekið slíkum vetlingatökum vegna þess, að margir háttsettir lögreglumenn væru við það riðnir. Á sama augnabliki, sem rjett- urinn sýknaði Morin, dæmdi frú Hugues hann til dauða í huga sér. Það var nýbúið að láta Morin lausan, þegar níðbrjefaflóðið braut af sjer allar stíflur. Og það náði ekki aðeins til þeirra hjónanna, heldur einnig til vina þeirra. En nú hætti Morin sjer of langt. Lögreglan fjekk í hend- ur fullgildar sannanir fyrir því, að að minsta kosti einhver hluti brjefanna átti rætur sínar að rekja til hans. Hann var því tekinn fastur í annað sinn. ★ Daginn, sem taka átti mál Morins fyrir að nýju, stóðu þau Clovis Hugues og kona hans á- samt nokkrum vinum sínum í ganginum fyrir utan rjettarsal- inn í dómshöllinni í París. Frú Hugues var mjög æst og taugaóstyrk. Það sást greinilega á henni. Kinnar hennar voru blóðrjóðar og í reikulum augun- um var einkennilegur glampi. Alt í einu kom hún auga á mann, sem kom gangandi út úr rjettarsalnum og ætlaði auðsjá- anlega út úr húsinu. Það *var Morin. Hann var aleinn. Hún stökk í áttina til hans, tók skammbyssu úr barmi sjer, og áður en Morin gat bjargað sjer á flótta, hafði hún skotið á hann einu — tveim — þrem skotum. Morin riðaði og fjell þungt til jarðar. En jafnvel þegar hann var dottinn á gólfið skaut frú Hugues tveim skotum í skrokk- inn á honum. Það verður hræðilegt uppþot þarna. Allir þjóta á vettvang. Hönd er lögð á herðar henni. Hún er tekin föst fyrir banatil- ræði. Morin er ennþá með lífs- marki. Þungur skrokkur hans er tekinn upp og honum ekið í sjúkrahús. Þar liggur hann í rúminu í hálfan mánuð milli heims og helju. Að lokum lognaðist hann út af, en fram að síðasta andvarpi hjelt hann því fram, að hann hefði ekki sjálfur skrifað nje fengið aðra til að skrifa eitt einasta af þessum nafnlausu níð- brjefum, sem hann var álitinn upphafsmaður að. Nú kemur síðasti þátturinn í þessum sorgarleik. Jeanne Clovis Hugues situr í rjettarsalnum, ákærð fyrir morð af ásettu ráði. Hún er klædd svörtum kjól og hún er á þessum „hörmulega tíma fallegri en nokkru sinni fyr“, hermdu frásagnir blaðanna af rjettarhöldunum. Hún er föl, *en róleg og hughraust. Með daufu brosi lítur hún yfir alla, þekkta og óþekkta, sem við- staddir voru, og hryggðust inni- lega af hinum hörmulegu örlög- um hennar. Án nokkurra svipbrigða hlust- ar hún á öll vitnin, sem öllum kemur saman um sekt hennar. Svo fer hún fram á að fá að setjast í vitnastólinn. Þar segir hún hina hörmulegu sögu sína. Hún talar rólega, en með festu. Saga hennar er vafalaust ein- hver sú átakanlegasta, sem sögð hefir verið í rjettarsal. Hún byrjaði á að játa verknað sinn og sekt sína. „Jeg drap Morin", segir hún. „Algjörlega af ásettu ráöi. Það

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.