Lesbók Morgunblaðsins - 18.07.1943, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.07.1943, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 211 landanna. Hann hafnaði freist- andi tilboðum frá Danmörku og Þýzkalandi og afréð að taka sér bólfestu í Kristianiu. Fullur eft- irvæntingar _kom hann til höfuð- borgarinnar. En þau rúmlega átta ár, sem hann dvaldi þar, urðu ekki eins og hann hafði gert sér vonir um. Til þess að geta fleytt fram lífinu, varð hann að taka sér fyrir hendur ýms auka- störf, söngstjórn og þreytandi fyrirlestra, sem ollu því að hann varð ekki eins óskiftur við þau verkefni, sem hann hafði ásett sér að ljúka. Kristiania var á þeim tímum fremur lítil borg. Tónlistarlífið var fábrotið og við- vaningslegt í samanburði við tón- listarlíf annarra evrópiskra borga. Flestir þeir, sem áhuga höfðu á tónlist, höfðu lítil af- skifti og sýndu lítinn skilning á þjóðlegum verðmætum, og fáa gat rennt grun í, hvern snilli- kraft og auð Grieg ætti eftir að færa norskri tónlist. Hann fékk litla viðúrkenningu, en því meiri kulda og gagnrýni og komst að raun um, að hann mætti meiri skilningi í öðrum löndum heldur en í því landinu, sem hann hafði ætlað að helga krafta sína. Þung- lyndið heltók hann oftsinnis og veitti honum sár, sem aldrei virt- ust ætla að gróa til fulls. Þegar hann var 25 ára gamall, brá hann sér stundarkorn til vinanna í Danmörku og á hinum hamingju- sömu mánuðum, sem hann dvaldi á Sjálandi, varð til eitt glæsileg- asta verk hans á þessum árum, A-moll konsertinn fyrir píanó og sömuleiðis hin dásamlega og bjarta G-moll sónata fyrir fiðlu. Það varð Edvard Grieg og norskri tónlist til happs að hann á árunum, sem hann dvaldi í höf- uðstaðnum, eignaðist Björn- stjerne Björnson fyrir vin og að- dáanda. Þó að Björnson væri ekki hljómnæmur maður, þá skynjaði hann, hvað í Grieg bjó og lét hann óspart vita í orði og verki, að hann tryði á hann og tónlistar- áform hans. Skáldskapur Björn- son varð þar að auki sannkölluð náma yrkisefna fyrir Grieg; þarf ekki annað en nefna lagið við Sigurð Jósalafara, óperubrot- ið Ólafur Tryggvason, „Land- kjenning“, „Bergljót", eða rom- anse eins og „Det förste mödes södme“. Vinátta hans við Johan Svend- sen, sem bjó í höfuðstaðnum á sjöunda tugi aldarinnar, veitti honum einnig mörg yrkisefni. Ár- ið 1870 stofnaði Grieg Musikk- foreningen. Hann og Svendsen stjórnuðu einnig mörgum hljóm- leikum í borginni, og glæddi það mjög tónlistarlíf hennar. Grieg fór hvað af hverju að hljóta meiri viðurkenningu, enda þótt hann þyrfti að bíða miklu lengur eftir þakklæti og áhuga. Það var ekki fyrr en 1869 að ríkisstjórnin veitti honum fyrsta ferðastyrk-’ inn. Bréf frá Liszt, sem þá var á hátindi frægðar sinnar, reið baggamuninn. Lofaði hann mjög tónsmíðar Grieg. Grieg fór þá í árs ferðalag til Rómaborgar og hitti þar m. a. Liszt og landa sína Ibsen og Björnson. Stórþingið 1874 veitti honum fastan tónlist- armannastyrk, kr. 1600.00 á ári, og gerði það honum kleift að gefa sig allan að tónsmíðum, án þess að vera að nokkru leyti háður höfuðborginni, sem hann var fyr- ir löngu orðinn leiður á. Á næstu árum fór hann oftsinnis til Dan- merkur og Þýzkalands, en var mestan tímann búsettur í Berg- en. Lögin við Peer Gynt urðu til á þessu tímabili, og voru það þau fremur en nokkuð annað, sem gerðu nafn hans frægt út um heim. Salan á hinum mörgu lyr- isku tónverkum hans óx stöðugt, og þau gerðu hann vinsælan sem heimilistónskáld í mörgum lönd- um. Balladen op. 24, sem byggð- ist á norskri þjóðvísu, var ekki eins aðgengileg, en ef til vill snjallari en allt annað, sem Grieg hafði áður samið. Þessi Ballade hefir greinilega orðið til meðan Grieg háði bar- áttu við sjálfan sig, baráttu, sem að nokkru leyti virðist hafa verið trúarlegs og siðferðilegs eðlis, en að öðru leyti staðið í sambandi við þau þjóðlegu vandamál, sem Grieg átti við að stríða. Texti þjóðvísunnar gefur margt til kynna: Eg kan so mangen ein vakker song um fagra land uti verda; men aldri har eg no höyrt ein gong dei song um det oss er næra. Og difor vil eg no pröva pá á gjer’ ei visa, so folk kan sjá at og her nora kan vera bra, um det foraktast der söre. » / Mikið hefir verið rætt um sorg- irnar í tónlistarlífi Griegs. Stund- um var eins og á hann væru lögð bönd, svo að hann gat engu áork- að, og mun það hafa stafað af erf- iðleikum norsks tónlistarumhverf is. Brautryðjendastarfinu, sem unnið hafði verið til að gefa þjóð- legu tónlistinni listrænt gildi og þróa þá tæknislegu kunnáttu, sem til þurfti, — var ennþá of skammt á veg komið. Aftur á móti var efniviðurinn óþrjótandi, og Grieg fannst oft eins og eitt- hvað „hlypi í baklás“, eins og hann komst að orði, og fannst honum þá sem hann væri aflvana og einmana. Þessi skoðun, sem einna helzt hefir verið haldið á lofti af Monrad Johansen, hefir vafalaust nokkuð til síns máls. Hin sérstæða og persónulega skoðun Grieg á tæknislegu hlið- inni á norskri tónlist, hefir held- ur ekki gert honum léttara um vik. Á hinn bóginn er hægt að álasa Monrad Johansen fyrir, að hann kennir þjóðlegu viðfangs- efnunum um getuleysi það og skort á hæfileikum, sem stundum virtist verða vart við hjá Grieg. En Grieg virðist hafa fundið til fjötra þessara þegar á þeim ár- um, er hann dvaldi í Leipzig, og var hann þá ekki farinn að glíma við nein þjóðleg viðfangsefni. Það hefir með öðrum orðum verið lundarfar hans og sálarstríð, sem erfiðleikunum olli. Við þekkjum mörg dæmi samskonar getuleysis hjá öðrum tónskáldum, en sköp- unarmáttur Grieg var aldrei meiri, en þegar þessum tímabil- um var lokið. Burtséð frá þessu, má segja að hin „sorglega" skoð- un ofannefnds ævisöguritara á lífi Edvard Grieg, sé mjög ýkt og það svo, að hætta er á, að æskuf jörið og hin dásamlega lífs-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.