Lesbók Morgunblaðsins - 18.07.1943, Side 8
216
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
FJAÐRAFOIÍ
skipin. Vonandi á þetta fyrir sér
að hverfa, nema menn hafi brýn
erindi.
★
Það er oft nauðsynlegt að líta
til baka yfir farinn veg, eins og
það er enn nauðsynlegra að líta
fram á veginn. Þessi þáttur sigl-
inganna bregður upp nokkrum
myndum úr þeirri baráttu sem
lokið hefir þann veg, að í stað
þess sem áður önnuðust útlend-
ingar og útlend skip svo til allar
siglingar hingað til lands, annast
nú íslendingar og íslenzk skip að
mestu þessar siglingar. Vantrú-
in á því, að við gætum þetta, var
almenn og mögnuð, en reynslan
hefir þaggað hana niður. Nú er
hverju mannsbarni ljóst, að við
erum fullfærir um að annast all-
ar okkar siglingar og þurfum
ekkert til annara að sækja í því
efni, ef við kunnum til að gæta.
Hitt kunna einhverjir að deila
um ennþá, að við getum tekið
gildan þátt í alþjóðasiglingum,
eins og aðrar sjálfstæðar þjóðir.
Um það mál vantar ennþá fram-
kvæmd og forustu, en hitt er víst
að við eigum öll skilyrði til þess
að verða siglingaþjóð og þá fyrst
og fremst djarfa og prúða far-
drengi, sem hvorki skortir skyn-
semi eða þrek til þess að reyna
nýjar og okkur áður ókunnar
brautir.
Framtíð lands og þjóðar er við
hafið og moldina bundin; — og
fyrst og fremst við hafið. Um
sóknina til hafsins dreymir unga
fardrengi djarfa drauma, sem
þeir munu gera að veruleika.
— Heyrið þér, ungfrú. Ég er viss
um, að ég gæti gert hverja einustu
konu hamingjusama.
— Hvernig stendur á þvi?
— Ég er dömuskraddari.
★ .
— Heyrið þér, þjónn. Lítið nú bara
á. Það er rautt hár í súpunni.
— Það er af kokknum----------en
ekki getur hann nú gert að því strák-
greyið, þótt hann sé rauðhærður.
Hann: Hafið þér nokkurn tíma
óskað, að þér væruð karlmaður?
Hún: Nei, en þér?
★
— Þú ert þá trúlofuð Karli.
— Jæja, er farið að tala um
það?
— Nei, en ég þekki hringinn,
sem þú ert með.
★ «
— Hann hljóp frá henni, þeg-
ar þau voru komin upp að altar-
inu.
— Jæja, brast hann þá hug-
rekki, er á hólminn var komið?
— Þvert á móti. Þá fyrst herti
hann upp hugann.
★
— Hagskýrslur segja, að
þriðji hver maður í Ameríku eigi
bíl.
— Nú, þá skil jeg ekkert,
hvers vegna í skrambanum þeir
eru að smíða alla þessa fjögurra,
fimm og sjö manna bíla.
★
— Stjörnufræðingar hafa
langa lengi verið að reyna að
reikna út, hve þungt tunglið sé,
en þeim hefur enn ekki tekist það.
— Er það nokkur furða, þeg-
ar tunglið er alltaf annaðhvort að
vaxa eða minnka.
★
— Hér í blaðinu stendur, að
hver maður tali að meðaltali
10.000 orð á dag. Er það ekki
eins og ég hef alltaf sagt, að kon-
an mín skarar langt fram úr öðr-
um.
★
— Við hjónin höfum 100 kr.
tekjur á viku.
— Já, það er gott á þessum
erfiðu tímum, að konan hjálpi
manni sínum að afla fjár. Hvað
vinnur konan þín sér mikið inn
á viku?
— 100 krónur.
★
Húsfreyja á sumargististað
sér, hvar kona er að búa sig til
brottferðar.
— Hvað er þetta. Ætlið þér að
fara frá okkur svona fljótt?
— Já, jeg þori ekki annað. Jeg
hef tvisvar skrifað manninum
mínum og beðið hann um pen-
inga, og í bæði skiftin hef jeg
fengið þá.
Loftárás á Palermo
Amerískur myndatökumaður tók þessa mynd um borð
I „fljúgandi virki“, þegar verið var að gera loftárás
á Palermo.