Lesbók Morgunblaðsins - 21.11.1943, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.11.1943, Síða 7
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 359 jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiHumiiiiwiiuimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii | Vígsla H runakirkju 1. sunnu- ( dag í adventu .fliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin Kirkjuvísur 1865 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiHiutuHiunmimmiiiiiiuir Gefst nú enn kostur mér að muna margt, sem að hrærir sinnisfar. Fæddist ég ungur upp í Hruna; oft í blíðviðri og gleði þar stafaði sunnu geisla glans í gegnum ljóra hyggjuranns. Víst er nú sem égvakni af draumi viður inndælislega sýn. Hrifinn frá æsku gömlum glaumi glaðværðar' ljósið bjart mér skín, sem innstu partar innra manns ilgeislum vermir blíðheims ranns. Enn er ég staddur hér í Hruna hátíðarmorgni björtum á. Hingað nam fólk í hópum bruna, er heyra bæði vildi’ og sjá það, sem á tíma þessum réð, þegjandi hressir líf og geð. Hér stendur nýbyggð háreist kirkja; hér mænir stöpull skýja til. Járnbitar húsið sterkir styrkja, stórir glerljórar skreyta þil; stóll og altari glitra gljá, gnæfir við ræfur hvelfing blá. Fagurt er húsið Hrunakirkja, hagra völunda gjörð af snilld; xllt fannst oss vilja að því styrkja ánægju gjöra margra vild. Blíðviður sunnu brosti hlý birta mót ljósa hjálmum í. Veglega kirkj u-vígslu þuldi vitur snillingur yfir lýð; hljómur söngmanna í hvelfing buldi, honum samboðin regla fríð, blíð og snjöll ræða, bænin heit og blessun yfir kirkju-sveit. * Það er ágætt, hve margur maður, er mikið vænti heyra og sjá, heim til sín aftur huga glaður heitt og prísaði stundu þá; því hátt á fjórða hundrað manns hlustaði á vígslu messuranns. Biðjum nú allir einum rómi á megi hrína ræða sú, er afbragð var að allra dómi, og ávöxt bera dyggð og trú. Löng æfi krýni heiðri hann, er helgidóms lét byggja rann. Þessi mæld frrm í máli styzta mærð, heldur stirð en þeigi dimm, á degi kirkju árs hins fyrsta er átján hundruð sextíu og fimm; hún ætti samt að hika við að hitta nokkurn braga smið. Séra Jóhann Briem, sóknar- prestur í Hruna 1845—1883 (t 1894), gekkst fyrir því af dugnaði og skörungskap, að kirkjunni í Hruna var komið upp. Vandaði hann og hið bezta til hennar. Kirkjan er senn 80 ára gömul. Vígsluljóðið lýsir gjörla, hverju fram fór þenna dag, er Hruna- kirkja var vígð, og því finnst mér rétt að birta það, svo það falli ekki í fyrnsku. En ljóðið mun vera í fárra manna höndum og ekki prentað fyrr. Höfundur kvæðisins, séra (íuð- mundur Torfason, var fæddur í Hruna 5. júní 1798. Ragnar Benediktsson. =IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.