Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1943, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1943, Blaðsíða 2
362 LSflBOK AÍORQUNBLA081NS og vandamönnum, sem á undan voru komnir vestur, var þá allt selt sem losa mátti við sig og haldið til þorpsins þar sem skipið átti að taka vesturfarana. Um- boðsmaðurinn varð að ráða fram úr öllu, sjá mörgum fjölskyldum — máske með stóran barnahóp á öllum aldri — fyrir húsnæði og öllum nauðþurftum. fbúðarhús Vigfúsar var oft fullt af þessu fólki dögum og vikum saman, börnin grétu og görguðu, léku sér og flugust á og ruddu öllu um koll, mæður kvörtuðu og and- vörpuðu og feðurnir sögðu ljótt, gramdist töfin og tjónið en hríð- arkólgan næddi úr norðaustri og hafísjakarnir hringsnerust á vík- um og vogum. Þegar nú þar við bættist að bændur fóru að verða heylausir og ráku fóðrafé heim til eigendanna, svo öll úthýsi og hálf tómar vöruskemmur fylltust af jarmandi, svöngum sauðkindum, sem varð að halda lífinu í með kornmat og fiskúrgangi, þá má geta nærri að athaínamaðurinn hafði í mörg horn að líta og varð að láta hendur standa fram úr ermum. Vigfús tók þessu öllu með ró, greip máske við og við til orðtiltækja sinna svo sem: „1 hvað á að sanna“, „undarlegt var það með tíkina“ eða „það var eins og blessuð skepnan skildi það.“ Svo réði hann fram úr erfiðleikunum — sínum og ann- ara — kvað kjark í þá sem lá við að örvænta og hjálpaði þeim bágstöddu á ýmsa lund. Nú lítum við sem snöggvast inn í heimili Vigfúsar borgara á Vopnafirði nokkrum árum fyrir aldamót Það er kvöldvaka á þorranum, engir Vesturfarar komnir og fátt um gesti. Fólkið situr í stórri stofu. húsmóðirin, roskin fríðleikskona, í öndvegi og kringum hana fimm hálfvaxnar dætur — sonurinn er í skóla og því ekki heima, vit frá þeim sitja þrjár vinnukonur og þeyta rokka sína, hviskennari les fornar eða nýjar sögur upphátt fyrir fólkið, sauðamaðurinn, sem er nýkominn inn frá því að standa yfir á annað hundrað sauðum með starfsbróður sínum. vinnumanni Péturs Guðjjohnsen, kembir nú í ákafa ásamt smiðn- um, sem hefur lagt frá sér smíða- tólin og hleypur undir bagga með honum, því ekki er von að einn maður hafi undan að kemba- handa þremur efldum spunakon- um. Húsmóðirin prjónar, heklar eða saumar og það gera dæturn- ar líka, sumar tæja máske ull fyrir kembingamennina. Nálægt ofninum situr gamall maður og þæfir plögg, hann hefur annars ekki annan starfa en berja harð- fisk og kljúfa spýtur í eldinn. Annað sjónarsvið bar fyrir augu á Góukvöldum, þá sitja allir við að tína dún, tína úr honum síð- ustu óhreinindin. — Vigfús átti varphólma. Þetta var dúnninn þaðan, sem hafði verið verkaður heima og var nú að breytast í fína verzlunarvöru. Húsbóndinn sat löngum í skrifstofu sinni, las eða skrifaði eða spilaði á kvöld- um við vini sína, bræðurna Ein- ar lækni og Pétur Guðjohnsen eða örum & Wulffs verzlunar- stjórana Valdemar og Ölaf Da- víðssyni. Stundum kom hann þá jnn til fólksins, spaug'aði við það, lét syngja nokkur lög og útbýtti kringlum og feitum magálssneið- um til glaðningar, hafði hann þá sótt þetta hnossgæti upp á búð- arloft. Þetta var lítil mynd af heimilislífi Vigfúsar. En árin liðu og nú bar þann vanda að höndum að þorskurinn hætti að koma á miðin á sumrin, dofnaði þá yfir útgerð og verzlun og nú fór Vig- ■iús að langa til að reyna krafta sína við ný viðfangsefni. Honum buðust kaupendur að eignum sín- um í Vopnaíirði og á Akureyri var veitingahúsið til sölu. Varð það að ráði að kaupa það og flutti hann norður með fjölskyldu sína sumarið 1898, var hann nú 55 ára að aldri, en starfsþrek og áhugi óbilað. Hyrjaði nú síðari kafli æfiferilsins, ólíkur þeim fyrri og að mörgu leyti viðburðaríkari og kunnari alþjóð. Ilótelið var gam- alt, en ekki óvistlegt, og það kom brátt í ljós, að þessi nýja atvinna lét Vigfúsi mæta vel, gestirnir þyrptust að og undu sér hið bezta hjá þessum góða og grandvara gestgjafa, sem altaf var glaður og spaugsamur, á hverju sem gekk; dvöldu útlendingar og innlendir gestir oft mánuðum saman á hó- telinu og fanst þeir vera sem heima hjá sér. Oft sást Vigfiis á morgnana með bitterflösku og vindlakassa undir hendinni rölta raulandi upp stigann og í áttina til svefnherbergis einhvers af þessu „setuliði“; þeir voru nú orðnir vinir hans, og það þurfti að gleðja þá um leið og þeir vöknuðu, svo að þeir yrðu í góðu skapi, er þeir byrjuðu dagsverkið. Svo mættust allir við stóra mat- borðið, þar sem húsbóndinn sat í forsæti, sá öllum fyrir góðum beina og lét spaugsyrðum rigna, svo mönnum varð glatt í geði, eins og þegar bezt er á skemti- samkomu. Þremur árum síðar kom það ó- happ fyrir, að hótelið brann til kaldra kola með mestu af varn- ingi og innanstokksmunum; — ég tala um varning, af því að Vigfús

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.