Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Síða 1
1. tölublað. Sunnudagur 7. janúar 1945 XX árgangur. Iiafoldkrpmuniljjii h.t - FRÁ LIÐIMUM DÚGIIM Frásögn Þorbjargar Steinsdóttur frá IMjarðvík Eítir Halldór Pjetursson ÞAÐ er gamall og góður siður. Jiegar mcnn fara að tala um s.jálfa- sig, að byrja á ætt sinni. Jcg skal ekki fara langt aftur í tímann. Jlin svonefnda Njarðvíkurætt, sem jcg cr af, bvrjar með Sigurði afa mínum. Sigurður þessi var souur sjcra Jóns Brynjólfssonar in-csts að Eiðum. Út af sjcra Jóni cr kom- inn sfór ættblákur, bæði á Aust- urlandi og Suðurlandi. Sigurður afi minn byrjaði búskap í Hólshjá- leigu í Iljaltastaðaþinghá. Kona hans var Kristín María dóttir sjera Sigfúsar prests í Ilofteigi. Börn þeirra, scm upp komust voru Jón, Þorkell, Áslaug, Guð- ríður og Sigríður. Seinni kona Sigurðar hjct Þor- gerður Runólfsdóttir frá Surtsstöð- um í Hlíð. Þeirra börn: Steinn faðir minn, Ilallur, Runólfur, Sig- fús, Gestur, Sigurður, dætur Hildur og Ingibjöi’g. Alls átti Sigurður að sögn 30 börn í hjónabandi, eitt áður en hann giftist og eitthváð milli kvenna. Hann sagði víst stund um í spaugi að hann væri ekki al- veg viss með töluna. Þrátt fyrir hina miklu ómegð< bjó afi minn sæmilegu búi og jeg hefi heyrt að hvert barn hans hafi Þorbjörg Steinsdóttir. fengið 30 dali í arf cftir hann, Sigurður var almcnnt talinn gáfu- maður, fróður vel, cnda einstak- ur bókamaður. Þoigerður, amma mín, bjó lengi í Njarðvík cí'tir dauða Sigurðar, með sonurn sínum, sem tóku við ráðsmennska jafnóðum og þeir kom- ust upp, cn þá fóru þcir eldri að hciman. Þorgcrður var tápkona hin mesta og sá um alt bæði utanbæjar og jnnan. Þrátt fyrir’ þetta gaf hún sjer alltaf tíma til bókalcsturs og las allt, sem hún náði í. Jeg hcyrði til þcss tekið hve greind hún hefði yerið. íslendingasögur og Norður- landasögur kunni hún svq? að hún sagði þær. Ekkert barn var talið svo heimskt, að Þorgerður gæti ekki kennt því, enda var það þrauta beitin að koma til hcnnar börnun- um, sem vandræði þótti að kenna. Skáldmælt var hún talin í besta, lagi og kastaði oft fram vísiun í gamni. Vín átti hún árið um kring og veitti það kunningjum sínum, sem komu að heimsækja hana. Ekki mun hún þó liafa keypt vín, held- ur sendu vinir hennar henni það. Höfðingjar og fræðimenn, sem fóru þar um slóðir, lögðu oft lykkju á leið sína til að þeimsækja hana. Einkum munu þetta þó hafa verið, menn, scm voru að viða að sjer forn um fróðleik, bæði sögulegum og ætt fræði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.