Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Blaðsíða 2
o LESP.ÓK MORGUXBLAÐSINS lleilsu hafði hún með afbrigðum fram á síðustu ár og gekk að slætti meðan hún <rat. Þetrar hún trat það ekki lengur, þá ljet hún gat það ekki lengur, þá ljet hún okkur krakkana fara með sjer upp í fjall og skar þat1 töðugresi, en við ljet- um í pokana. Þorgerður var há kona vexti, nokkuð stórskorin í andliti, en þó frið sýnum. líún var 16 ára þegar hún giftist Sigurði. Síðustu árin var hún hjá Steini föður mínum í Njarðvík. þar dó hún um áttrætt. Fram á síðustu stund fvlgdist him vel með öllu sem gerðist. Það var tekið til þess hve allir synir Sigurðar voru vel gefnir bæði til sálar og líkama af svo mörguin. Allir voru þeir annálaðir söng- menn. Foreldrar mínir, Steinn Sigurðs- son og Guðný Árnadóttir, reistu sjer bæ í Njarðvík, sem heitir að Borg. Faðir minn var mvndarlegur á velli oe fríður sýnum or fjör- maður svo af bar, bókhneigður og las mikið^ Dönsku læi'ði hann af sjálfu sjer og endursagði okkur oft sögur, sem hann las á dönsku. Smiður var hann með ágætum og listhneigður; teiknaði og dró upp, en þó held jeg að mjer sje óhætt að fullyrða, að hann hafi verið lítt skrifandi. llann smíðaði sjer rennibekk og rendi þar kúpur, bakka og ýmis- konar öskjur. Mikið smíðaði hann Öskum með svörtum tálkngjörðum. Margí af þessu þóttu mestu ger- semi og var eftirsótt. Líkkistur smíðaði hann allar þar sem til hans náðist, því enginn þótti smíða þær jafn vel. Ilann fór snemma að leergja fvr- 5r sig lækningar og varð af því svo eftirsóttuur, að kannske mái segja, að þeiri'a vegna hafi heimil- ið farjð margs á mis, því ekki var þar til launa að sjá. Kerúlf læknir sagði um hann, að hann væri það Njarðvík. mesta læknisefni, sein hann hefði kynnst. Oft sendi Kerúlf honum meðul af ýmsu tagi, því hann sagði, að það væri óhætt að trúa honum fyrir þeim. Einnig vildi hann að faðir minn fengi fæðingartengur til að taka á móti börnum, en aldrei varð af því og hefir slíkt kannske ekki verið leyfilegt. Jeg man að margir láðu föður mínum það að hann vildi ekki brúka margar hinar gömlu hrossa- lækningar, heldur vildi nota sem mest hreinlæti, en slíkt var af mörg um talin lítil nauðsyn. Ilann, tók á móti öllum börnum þegar til hans náðist og hafa þau sjálfsagt skift mörgum hundruðum, þó ekki viti jeg um tölu þeirra. Af þessu var hann af' mörgum kallur yfirsetukona. Oft heyrði jeg hann ta!a um, hvað sjer ofbiði meðferð, sem margir vildu hafa á sjúklingum og sængurkonum. Við konur, sem búnar voru að taka ljettasóttina, var sú aðferð algeng, að tveir karlar eða konur leiddu þær á milli sín um gólfið aftur og fram, meðan nokkur von var að halda þeim uppi. Faðir minn notaði mikið heitt vatn og bursta, bæði við sæng. urkonur og s.jilklinga. Konur þær, sem hánn sat yfir, máttu ekki hevra annað nefnt, en hans væri vitjað úr því. Altaf var hann tilbúinn að fara af stað þegar hans var vitjað, hvort sem var á nóttu eða degi, ríðandi, eða gangandi. Af fylgdarmönnunum hafði hann oft lítið að segja, því hann gekk eða reið |iá at' sjer. Stunduin varð það aðalhlutverk ]>eirra að tína upp einhverjar tusk- ur af honum, sem hann hafði hent, eða týnt á hlaupunum. A síðustu árum hans, eftir að hann gat ekki lengur ferðast, voru honum veitt yfirsetukonulaun í einskonar við urkenningarskini, enda munu það allir i>eningar, sem hann fjekk fvrir lækningar. Draumamaður var faðir minn mik- ill -og dulrænn. Alltaf vissi hanri fyrir ef veikindi gengu og hverjir yrðu mest veikir. llann sagði okk- ur oft þessa drauma jafnótt og hann drevmdi þá, en flestum þeirra hefi nú gleymt. Eitt sinn gekk mikið mislinga- faraldur yt'irá á Uthjeraði og líorg- avfirði. Rjett áður en þetta var, dreymdi föður minn, að hann var að erfiða við að koma okkur syst- kinunum öllum upp á svo nefnda Iljalla í fjallinum fyrir ofan bæinn, en verst gekk honum að koma koma mjer og Sigurði bróður mínum. Við fengum iill mislingana og við Sigurður urðum mest veik. • Nóttina eftir að Þórunn, kona Sveins á Dallandi í Húsavík dó, segir faðir minn um »morguninn: „Mikið þ vkir mjer, ef Þórunn í Ilúsavík hefir ekki þóst þurfa mín í nótt, í liðlanga nótt hefir hún ekki gengið frá augum mjer. Hafið' þið annars frjett að hún væri ó- i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.