Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1945, Qupperneq 5
IÆSBÓK MORGUNBLAÐSINS PYTTURINN BOTNI A - SM /i ...11«. m KS3 ÞESSI SAGA er um Fenjamýr- ina, pyttinn botnlansa ofj drenginn. „Drengur“, sagði mjaltakonan og rjetti sig upp með mjólkurskjól- una, „leystu kvíjabandið, jeg er búin“. Ilann hlýddi begjandi, og meðan ærnar runnu út um dyrnar, stóð hann hljóður við grindarhornið og beið, uns kvíarnar voru tómar, þá rölti hann á stað, í slóð ánna. Ilans, atvinna var að sitja hjá. Hann var tíu ára að aldri. „La-la-la“. Uaun labbar raulandi á eftir ánum og danglar bandspott- anum sínum annars hugar í þúfna- kollana, sem hann fer framhjá. jllann er enn staddur á holtunum; suður af bænum, þar sem finna- skeggið vex í brúngrænum topp- um og er höfuðjurt staðarins auk. grámosans sjálfs. — Áfram. Iljer dettur engum í hug að riema staðar, Það sýna hinir mörgu samliggjandi troðningar. Hver fótur, sem treður holtið, er fótur á ferð, — á leið til betra lands. ★ FENJAMÝRIN, — hver þekkir hana til jafns við hann? — Enginn — enginn. Því þó þú hafir kannske einhvern tíma lagt uni hana leið þína, þá minnist þú nú einskis, annars en hins ryðrauða leirs henn- ar. gljúpa mosa og fegurðarskorts. Alls þesa minnist og drengurinn með þjer, en svo ótal margs að auki. Sumar eftir sumar var Fenja- mýrin allur hans heimur, og í sann- leika sagt: stærri heim átti hvorki jeg nje þú, þó við byggjum í borg, '— kannske ekki sjálfur Einstein, í Bandaríkjunum. Svo mikil er Fenjamýrin þeim, sem hana þekkja. NÚ ER IIANN kominn alla leið. Hann stendur undir hárri brún holtsins og beinir sjónum sínum út yfir rnýrina. Víðáttu mikil er hún ekki. Hún liggur mitt í þröng holtanna, girt holtum á alla vegu. Engan bæ er að sjá, ekkert mann- virki er nokkurs staðar að sjá, — aðeins ávalar brúnir holtanna alt í kring. Drengurinn stendur kyrr langa stund og lofar ánum að dreifa sjer. Nú fyrst hefst hinn dýri dagur. i— Það er flesja vaxin hávöxnum hrossapunti skammt í frá. Hún ber annan lit en umhverfið, eins og blátt og grænt og svart sje kembt Saman. Þar sat hann í gær lengstum og brá skyrsíjur sínar. Ilann brá þar þrjátíu og tvær skyrsíjur og eyddi í þær um það bil fimmtán íhundruð stráum. I fyrradag hafði hann hins vegar haldið sig við flóðin og búið til starkónga ein- göngu. — En hvað hyggst hann þá fyrir í dag? Byggja fuglunum hreið ur? — Tína Bol>ba í torfdælum föður síns? — Fylgjast með hallar- byggingu köngurlóarinnar á balan- nm við flóðið? Nei. Góð er að vísu hver hugmyndin, en best er hin ónefnda þó. Hann leggur af stað austuv mýr- ina, hægt, varíærnislega, með lút- andi höfði. Það er ekki sama hvar stigið er niður, — ekki þegar fætur manns eru berir og niaður hefur Fenjamýrina undir þeim. Mörg er sú þúfan, sem leynir sárum broddi, — fjalldrapanum hjer, hrossapunt- inum þar, að ógleymdri hinni bleik- i'ættu göngurló, sem er stærri eu jötunux og grimmari en ljón. —■ Öruggastar eru gulstararkeldarn- ar, grunnar og mjúkar í senn, og svo blessunarlega volgar i s^skin- inu. — Hann nálgast mið^enp 't't- arinnar, veður enn ei+t “ a’- flóð og krækir fyrir s rotu. Alt í einu er hann við markið, hann er staddur á barmi pyttsins botnlausa. Pytturinn botnlausi. — Ótal sinn um hefur drengurinn staðið hjer fyrr, kallaður hingað af dámagni hans, með aðra þelft hjartans í greip geigsins, hina á valdi lokk- andi gruns. —- Hvað er þetta, sem við honum blasir? — Það er auga. Eitt bládimmt auga með broddgula hvarma úr mosa starir upp til hans og reynir að dáleiða hann. Og ef því nú tækist það einhvern daginn, — þá hvað? — Þá----------Þá kæmi enginn drengur með ærnar sunnan. holtin í kvöld, og þarna niðri í dimmunni, — þarna lengst niðri í innýflum Fenjamýrarinnar lægi lít- ill líkami og hreyfðist ekki framar. I— Er það kannske þetta, sem pytt- urinn botnlausi vill honum? Þögn. Og geigurinn herðir tak sitt og vill hrinda honum frá, grunurinn ljúfi heldur á móti. — Eitthvað þýtur við eyra drengsins, — eitt- livað þýtur í stargresinu á bak við hann. Það er golan. Sunnangola fer yfir mýrina og brýtur hið skyggða sjáaldur hennar í þúsund mola. En það varir ekki lengi, lógn- ið kemur að liðnu andartaki og læknar það aftur. „Nú er það tært“, hugsar dreng- urinn og færir sig ögn nær, sjald-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.