Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Page 6
51S
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
En letrið ú þesSum steini hefir ekki
látið á sjá, og eru stafirnir allir
glðggir og skírir og er þó áletrun-
in talsvert langt mál.
★
Skarð hefir verið höfuðból frá
upphafi Islandsbygðar og er enn
í dag. Þar búa nú Kristinn Indriða-
son (bróðir Indriða miðils) og El-
inborg Bogadóttir Magnússen.
Ætt hennar iná rek.ja til Ilúnboga
Þorgilssonar, sem bjó á Skarði um
1100. Þau hjón eiga þrjár uppkomn
ar dætur og nú allar heima. Tvær
þeirra eru giftar. Þarna eru og
foreldrar Kristins í hárri elli. Eru
því 1 heimilinu fern hjón af sömu
fjölskyldu. og er það víst fátítt.
Maður þarf í rauninni ekki ann-
að en koma sem snöggvast heim að
Skarði til þess að finna að yfir
öllu hvílir þar andi aldagamallar
inenningar kynborinnar ættkvíslar.
Það er ekki gott að segja hvernig
í þessu liggur. En menn mundu
finna þetta ósjálfrátt þótt þeir
vissu ekkert um sögu staðarins og
þeirra, sem þar hafa átt heima.
Þetta liggur blátt áfram í loftinu,
bæði úti og inni.
Við vorum einn dag um kyrt á
Skarði og við urðum þessa vör á
margan hátt. Og eigi kom það síst
fram í viðmóti fólksins og því að-
alsmerki gestrisninnar, sein lætur
gest og ganganda eigi aðeins finna
það, að hann sje boðinn og vel-
kominn, heldur lætur alls staðar
skína í gegn, að það sje hann. far-
andmaðurinn, sem syni heimilinu
sjerstakan heiður með því að setj-
ast þar upp. Og þar svífur enn vf-
ir andi þess skörungsskapar, sem
kom fram hjá Geirmundi heljar-
skinn þegar hann gaf þræli sínum,
frelsi og bú fyrir það. að þrællinn
tók að honum forspurðum margt
fólk á hans kost vetrarlangt ,.og
bað það engu launa“.
Hjer sjáið þið mynd af hinni frægu leikkonu Evelyn
Keyes. Einhver gæti ef til vill haldið, að hún væri komin í
samkvæmiskjól og ætlaði út með aðdáanda sínum, en svo er
ekki. Hún er bara í náttkjól og ætlar beint í háttinn.