Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 521 að guttla undir þeim, drengur minn“, — en það var orðtak hans. „En getur þú haldið í 12 hesta?“ „Jeg get það, ef vel er róið“. — Var svo lagt frá landi. Jeg hjelt í hestana, en Þórður reri. Aldrei mun jeg gleyma þeim átökum Þórðar, með árinni, mjer fannst skipið bók- staflega gnötra við hvert árartog, viss þóttist jeg um það, að 4 full- hraustir ræðarar hefðu' ekki betur gjört. Tmgði jeg svo á hestana með homun, að því búnu bauð Þórður mjer að borða, því, drengur minn, jcg þekki sultinn við ferjuna. h'ljótir vorum.við að bera upp úr skipinu. ÞórðUr tók alla .jafna sinn hálftunnusekkinn í hvora hönd og fór með sem ekkert væri, þar sem aðrir höfðu nóg með einn. Oft kom það fyrir að menn mistu hálftunnupoka í ána, ef rok var og slæmt að standa að upp- skipun. En værí Þórður nærstadd- ur, kom það ekki að sök, því hann greip pokann, henti honum svo sem 4 faðma á land úpp, enda þótt hann sjálfur stæði þá í sandbleytu og vatni upp í mitti. EINIIVERJU SINNI vorum við Þorkell, síðar bóndi á Óseyrarnesi, við ferjuna, en kvöld var komið og norðan stórviðri. Sjáum við þá að tveir lestamenn koma að ánni, og er þar þá kominn „ferju-Þórð- ur“ og Bjarni frá JUið í Þykkva,- bæ. Ekki þótti okkur fjelögum á- rennilegt að leggja út á ána, eius og luin leit út þá, en lxinsvegar ilt að láta mcnnina liggja úti á Tangánum yfir nóttina, í því for- aðsveðri sem á var. Fórum við því á stóra skipinu, en drógum þó varla, og gekk afai* illa. Þeir Þórður og Bjarni óðu svo langt út í ána. á móti okkur. sem þeir sáu sjer fært að koniast. t>að jeg svo Þórð að láta ekki meira í skipið en svo að fjórir menn gætu róið því. „Og ætli við Bjarni minn reyn um ekki að gutla því tveir einir þennan si>öl“. Var svo lagt á stað með 7 hesta á efþir. Engum, sem við var staddur, datt í hug að þeir drægju undan í því veðri, sem þá var komið, en það fór á annan veg, ofrið var undir liest- uniun. Þórður sat á bakborða, þar var róðurinn þyngri. Sótti hann. róðurinn svo knálega að Bjarni varð að biðja hann að hægja á sjer, því að afróið væri. Er austuryfir kom, var kominn moldbylur og hörkufrost. Ilestarnir látnir i hús, og hlynnt að ferðamönnum. — I'að var almennt álitið að engir aðrir austur þar hefðn drcgið yfir Ölvesá í það sinn, en Þórður í Sumarliðabæ og Bjarni frá Búð, á svo stóru og gangtregu skipi. En Þórður og Bjarni höfðu tekið á árinni fyr. Þeir voru frammímenn hjá Vilhjálmi í Kirkjuvogi, og liiá af því sjá. að vel var barkinn sk.ip- aður þar, enda var skipshöfn Vil- h.jálms í Kirkjuvogi orðlögð fvrir þrek og harðfengi, á sinni tíð. EITT SINN á „leslunum" v.ar Þórður var staddur í Lefolís-biið á Eyrarbakka, ásamt mörgum öðrum og beið eftir afgreiðslu; þá voru menn afgreiddir í þeirri röð, sem þeir lögðu inn. Þórður frá Sumar- liðabæ þykist vita að nú sje komið að sjer. Spvr því búðarmanninn hvort hann sje nú ekki sá næsti, sem á að afgreiða. Búðarmaður segir J>að. vera, en að hann hafi nú svo lítið, að hann geti beðið. Þórður vindu-r sjer þá inn fyrir ))i\ðarborðið, tekur með hægri hendi í öxlina á búðarmanninum og sleng ir honum á gólfið, sleppir ckki tak- inu, kippir honum upp og s.lengir endilöngum á búðarborðið og segir: „Konulu nú með bókina mína, dreng ur minn“. Þá gekk fram T.horgrím- sen, verslunarstjóri. og segir: „ll.jer er bókin l)ín Þórður minn., jeg skal afgreiða þig“. Thorgrímsen brosti að þessu, og aðrir viðstaddir, en Þórði stökk ekki bros, aðeins kímdi er hann gekk út úr búðinni litlu síðar. En er Þórður síðar um, daginn kemur í búðina til að kveðja verslunár- stjórann, þiður Thorgrímsen Þórð að rjetta sjer kútinn þann arna, er stæði fyrir utan búðarborðið, cn það var reyndar brennivfnstunna. Þórður gengur rólega að tunnunni. og setur hana með hægð uþp á búðarborðið, en þrír menn gengu fram og tóku tunnuna ofan af borðinu. — Thorgrímsen brosti að, og bauð að gefa Þórði á ferðaþel- ann. EITT SINN er Þórður var við ferjuna á Sandhólaferju, keniur ]>ar s.jera Gísli Thorarensen á Felli í Mýrdal, og er á heimleið. Ilann fer að tala um |)að hvort lijer sje nokkur, ,sem muni geta hjálpáð s.jer út í skipið. en enginU gaf sig frani, og er prestur búirin að spretta af hesti sínum. Þá ber Þórð þar að og segist hann skuli reyna að Iáta hann ekkv vaða. Tekur svo hægri heiidi undir prest, en heldur á hnakknum í þeirri vinstri, veður hann svo yfir álana og út að skipinu, eins og hann væri með ekki neitt tneð- ferðis. Þá segir sjera Gísli: „Þefta er sú mesta aflraun, sem jeg hefi vit- að. 25 fjórðungar var jeg á Eyrar- bakka í mórgun“. Borgaði prestur þá ríflcgan J’erjú toll', en Þórður átti „tár“ á flösku, sem þá var vel Jtegið af presti. Enginn drykkjumaðnr var Þórð- ur, Jtótt ekki gæti hann. bindismað- ur kallast. Lítil brögð munu hafa verið að því að hann „sæist „kend- ur“ við „ferjuna“, ett kæmi það fyrir, þá fjekk hann sjer smjörbita hjá einhverjum ferðamanninum, borðaði hann. og ])á ltvarf „vím- an“ af Þórði, sein dögg fyrjp sýlu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.