Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Page 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 523 artin rfenóen: j- KIRKJUBRÚÐKAUP W*WTJSW'-* ’*****’.]$*’wrJ' w™' ■* ^FT" V .vv-T^yjjypp, PALLESEN barnakennari, seni einnig var meðhjálpari og forsöngv- ari í Hilstrupkirkju, var að koma af nefndarfundi í sjúkrasamlaginu. Þegar hann nálgaðist kirkjuna fór- að rigna. Hann átti enn tveggja kílómetra leið fyrir höndum. Allt í enu datt honum í hug að regnhlífin hans, væri ef til vill í kirkjunni. Hann tók vasaljósið áitt upp úr vasanum og fór inn um sáluhliðið. Þgð var nóvemberkvöld og klukk- an bráðum orðin ellefu. Jíirkjugarðurinn var eyði- og skuggalegur, og ósjálfrátt fór Pallesen að hugsa um allar drauga- sögurnar, sem hann hafði heyrt þótt hann vissi að það bryti í bága við boðorð guðs að festa trúnað á þessháttar þvætting. Hvergi hræddur hjörsi í þrá taut- aði Pallesen og greiðkaði sporið. Ilann náði í kirkjulykilinn og opn- aði dyrnar. Það ýskraði ömurlega í hjörunum og hann kipptist við af átta. Svo herti hann upp hugann og gekk rösklega inn gegnum forkirkj- una. Hann íýsti með vasaljósinu til beggja hliða meðan hann gekk þungum skrefum inn miðja kirkj- una. Regnhlífin átti að standa við innstu sætaröð nálægt stól með- hjálparans. Kennarinn var kominn innarlega í kirkjuna þegar vasaljósið datt úr hendi hans. Með skjálfandi hönd- um tók hann það upp og lýsti inn í ícórinn. Hann drap titlinga og ætlaði naumast að trúa sínum eigin augum. Framan við altarið á beði, sem var reiddur lir flossessum grátn- anna lágu tvær verur. Ungur mað- ur og ung stiilka sváfu þar væran í ástúðlegum faðmlögum. Þau höfðu breitt kápuna hennar ofan á sig í teppis stað, en ábreiðan hafði færst Ur lagi, svo sívölu hnjákollarnir og mjóu meyjarfæturnir hennar komu í Ijós. Annars ásust að- eins hendur og höfuð. Pilturinn var dökkhærður með hrokkið sveipótt hár og óharnað andlit. Stúlkan sem var smáfríð og fíngerð hvíldi upp að brjósti hans. Pallesen var alltof óttasleginn til að veita því eftirtekt hversu lag- leg þau voru. Hann nötraði af æs- ingi og gat engu orði upp komið. Allt í einu virtust þau vakna við birtuna frá vasaljósinu. Ungi mað- urinn reis upp við dogg, deplaði augunum framan í ljósið, æpti af ótta og þreif í ungu stúlkuna við hlið sjer. Hún reis einnig upp, horfði sem steini lostin á Ijósið, meðan roði færðist yfir háls henn- ar og andlit. Eina mínútu eða leng- ur var dauðaþögn í kirkjunni, svo losnaði tunguhaft kennarans. „Hvað sje jeg — Tnger og Hans Ungi maðurinn opnaði og lokaði munninum nokknun sinnum, en ekkert hljóð kom yfir varir hans. Hann stóð hægt á fætur og unga stúlka fylgdist með honum. Við skulum fara tautaði hanu loksins, og hjálpaði stúlkunni hálf klaufalega í kápuna. Stiilkan beygði sig og ætlaði að leggja flos- sessurnar á sinn stað. „Láttu þær liggja“, sagði Pallesen með hrana- legri rödd. Hjónaleysin litu skelk- uð á hann, síðan leiddust þau hæg- fara og niðurlút út úr kirkjunni. Pallesen kennari stóð sem negld- irr niður framan við altarið og starði á hinn rauða s»ssubeð. Hvílík vanhelgun--------------— hjer húsi guðs----------rjett fram- an við heilagt altarið. Jafnvel fuglinn hefir fundið hús og svalan á sjer hreiður, þar sem hún leggur unga sína: „ölturu þín, Hrottinn hersveitanna, konungur minn og guð minn“. Orðum ritn- ingarinnar skaut upp í vitund Palle- sens, en hann vísaði þeim óttasleg- inn á bug. það var guðlast að hugsa þannig. Pallesen var skelf- ingu lostinn. Þau höfðu bæði verið nemendur hans. Ilans Jörgen hafði alltaf verið meðal hinna duglegustu. ITann mundi greinilega hversu fagra söng rödd Inger hafði haft. Ilversu göm- ul ætli þau sjeu orðinf Um tvítugt. ITans Jörgen var einkabarn virð- ingarverðra bændahjóna. Faðir Inger var hringjari við kirkjuna, og’ hún var vinnukona á bæ í sveitinni. Það hlaut að vera hún, sem hafði náð í lyklana að kirkjunni. Skyldi þau hafa brallað þetta lengi? Pallesen andvarpaði. I býtið næsta morgun ákvað hann að tala Arið prestinn. Hann færði ekki sessurnar. Presturinn átti að sjá þær með eigin augum. Áþreifanlcg sönnun. „Corpus delecti“ tautaði Pallesen, honum hætti við að sletta erlendum orð- um. Hann gleymdi að taka regnhlíf- ina með sjer þegar hann fór út úr kirkjunni, svo hann var bjórblaut- ur þegar hann kom heim. Kona hans settist upp í rúminu, tilbúin að ausa yfir hann skömm-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.