Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Síða 13
LESBÖK MORGUNBLAÐSENS 525 A að að giska fimm mínútum seinna bætt ihann við: „Það verða einhver ráð með að finna mátu- lega jörð handa ykkur. þó tímarnir sjeu raunar ekki sem bestir til jarðakaupa". Hans Jörgen svaraði aðeins með að kinka kolli, það var alveg nóg. Það var auðsjeð á báðum, að í þessu efni voru þeir sammala. Gamla manninum hafði líka líkað vel við Inger þegar hún var í vist hjá honum. Það var ekk fyrr en Chr. Vang hafði kastað síðustu moldarrekunum á rófnahrúguna, að hann sagði með stirnað bros á vörum: „Næstu dagana verður erf- itt að fást við hana mömmu okk- ar“. Þá fyrst brosti Ilans Jören til föður síns og sagði: „Já, og senni- lega verður það verst fyrir þig“. Þetta var í fyrsta sinni, sem talað var hátt um levnilega og sameig- inlega mótspyrnu, sem þó var orð- in tíu ára gömul. Feðgarnir gengu heimleiðis með skóflur um öxl, ferðalag þeirra líktist mest þögilli mótmælagöngu. Aldrei síðan gamli presturinn hjelt skilnaðarræðuna hafði verið eins margt fólk í JTilstrupkirkju eins og þennan sunnudag. Trúaðir og vantrúaðir þyrftust til kirkjunn- ar, eins og þeir væru snortnir af skyndilegum trúarákafa. Allir reyndu að troða sjer eins innar- lega í kirkjuna og unt var til þess að fá útsýn yfir altarið. Þarna gerðist það. Fólk veitti því eftirtekt, að hvort Maren Vang, sonur hennar eða eiginmaður voru í kirkju í dag. Þau voru annars vön að sit.ia í þeirra gamla sreti bak við fjölskyld- una frá Hilstrupbæ. Jæja, það voru nú engin undnr þó þau kæmu ekki í guðshús fvrst um sinn. Aldrei þessu vant hringdi Mikael hringjari stundvíslega i dag. TTann var enn fýlulegri en hann var van- ur, þar sem hann rölti sniðhalt, fram hjá kirkjufólkinu. Krampadráttum sást bregða fyr- ir á andliti Pallesens kennara með- an hann las bænina. Drottinn jeg er kominn í þitt heilaga hús.------ Með ótta og skelfingu veitti Palle- sen því eftirtekt að honum flaug nýtt áframhald í hug--------------- til að sofa hjá konunni, sem jeg elska. Svitadropar spruttu fram á enni hnas meðan hann vísaði setning- unni á bug og las næstu setningu siðabókarinnar —--------til að lofa þig og ákalla. — Pallesen ljetti stórum þegar Iiann hafði lokið bæninni, og fór að syngja sálminn. Inndælan blíð- an, blessaðan fríðan. Biistaðinn þinn. I miðjum sálminum varð honum ljóst hversu einkennilegt það var. að einmitt þessi Sálmur skyldi vera sunginn í dag. Honum hafði dottið hið sama í hug kvöld- ið góða. Vongóð í vídd þinna salg vernd hljöta spörfugl og svala. Pallesen kennari gekk fram og aftur um kirkjugólfið og líkti spör- fuglinum og svölunni við Hans Jören og Inger, þó honum stæði beygur af slíkum hugsunum. „Musteri þitt veitti mönnunum skjól. máttlausum fuglum er ákveðið ból“ söng söfnuðurinn. Fólkið var hjá- róma og virtist vera eins og úti á þekju. Presturinn minntist ekki bein- línis á atburðinn; en hið kringlu leita velhirta andlit hans var ennþá sorgbitnara og áhyggju fyllra en það átti að sjer. ITann talaði bæði lengi og inni lega. ITann talaði um lítilsvirðingu mannanna fvmir guðshúsi og heilögu sakramenti, um siðlevsi unglinganna og laun svTidarinnar, dauðann. Hann vitnaði klökkur í orð fríhyggjumannsins. Þess bera menn sár um æfilöng ár sem 'aðeins var stundar hlátur. Með kitlandi ánægju, ánægju heimfærði söfnuðurinn hvert orð-, sem presturinn sagði upp á synda- fallið mikla í Ililstrupkirkju- í dag var altarisganga eins og venja var til einu sinni í mánuði, og það voru óvenjulega margir til altaris. Guðs börn þyrptust í dag að altari Drottins, eins og skríll að að aftökustað lljer gerðist það. Pallesen kennari og kona hans voru að venju meðal hinna síðustu. Corpus deleeti. Áþreifanleg sonn- un, hugsaði Pallesen, um leið og hann kraup á rauðu flossessuna og neytti líkama Krists. Á bæ nokkrum í sveitinni sátu Inger og Hans Jören í stúlknaher- berginu. Þau sátu á rúmstokknum og hjeldu hvort utan um annað. Herbergisfjelagi Inger átti frí. Húsbændurnir voru í kirkju. Ró og friður hvíldardagsins ríkti á bæn- um. Hans Jören strauk Inger um Ijósu lokkana, hann hafði svo margt að segja henni, en hann sagði bara. „Hefurðu verið heima hjá þjer síð- an?“ Inger kinkaði kolli. „Já, í gærkvöldi, það var nú ekki óblandin ánægja“. „Var mikið um að vera ?“ „Mamma hágrjet, pabbi var þegjandalegur, hann spurði hvort þú vildir kvænast mjer. Krakkarn- ir voru hljóðlát og það var öllu verra en þó þau hefðu strítt mjer, eins og þeirra er venja“. ,,Veslingurinn“, sagði Hans Jör- en og þrýsti hönd hennar. ó, sagði hún glaðlega og .kyssti hann. Hvernig átti hún að útskýra fyrir honum að henni leiddist þetta alls ekki, þvert á móti var hún glöð og hamingjusöni. Nú myndu þau giftast. Nú þyrfti hún ekki Jengur að hlusta á vælur móðnrinnar, nje nöldur föðursins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.