Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1946, Side 8
388
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
þannig gott tækifœri til þess að kynn-
ast henni. Fyrir stríð voru nothæfir
hafnargarðar, sem skip gátu lagst að,
um 20 þús. metra langir. Nú eru not-
hæfir tæplega 10 þús. m. Þó er búið
að endurbyggja mörg þúsund metra,
sem eyðilagðir voru. Þarna eru nú all
ínörg skip, þeirra á meðal þýzka stór-
skipið Evrópa, sem Frakkar fengu í
staðinn fyrir Normandí, sem var
stærsta skip þcirra. Það er búið að
skíra Evrópu upp og nú heitir hún
Liberty. Við siglum alveg upp að hlið
þessa tröllaukna skips. sem margar
svaðilfarir fór í styrjöldinni og alltaf
tókst að sleppa úr klóm brezka flot-
ans. En nú siglir það um höfin undir
nýju nafni og frönsku flaggi.
liétt hjá hafnargarðinum, sem Liber
ty liggur við er eitt hinna öflugu kaf-
bátahrciðra. sem Þjóðverjar byggðu á
vesturströnd Frakklands. Það cr lágt
og lítið ber á því, cn þak þess er úr
geysi þykri steinsteypu. Rétt fyrir
utan hafnarmynnið liggur stórt am-
erískt flutningaskip nær alveg í kafi.
Þetta skip rakst á tundurdufl nokkuð
frá landi en tókst að komast upp á
grunn áður en það sykki. En koma
þess upp að hafnarmynninu stofn-
aði borginni í mikla hættu. Farmur
]>ess var nefnilega (i þús. tonn af
sprengiefni. Ef eldur hefði komist að
því og sprenging orðið er talið lík-
legt áð það sem cftir var uppistand-
andi a£ le Havre hefði hrunið til
grunna.
Fjöldi hálfsokkinna skipa er ennþá
í höfninni. þeirra á meðal franska
stórskipið París, sem var 04 þús. smá-
Icstir og var citt fegursta skip Frakka.
Mörg skip eru einnig sokkin fyrir ut-
an áðalhafnargarðana en á sand-
ströttdinni fyrir austan höfnina er fullt
af allskonar braki svo sem eyðilögð-
um innrásarbátum o. s. frv. En inn-
an um þetta brak er unga fólkið að
symla og baða sig. Það verður að
nota sólskinið og hvað kemur því
þetta styrjaldardrasl við. Nú er frið-
ur, sólin skíu á himninum og sjóriun
Le Havre: Aðalgatan jyrir og ejtir stríð.
er svalandi. Það er það sem máli
skiptir. Rjett fyrir utan höfnina er
Yjöidi smáárabáta á makrílveiðum.
Annars er útgcrð borgarinnar ennþá
í kaldakolum.
Við höfum nú siglt um alla höfn-
ina og séð hvernig ástand hennar er.
Það er ömurlegt. Enda þótt nokkur
hluti hennar sé þegar nothæfur er
gert ráð fvrir að endurbygging hcnn-
ar og hafnarinnar yfirleitt taki ekki
færri en 12—15 ár. Bandámenn byrj-
uðu að nota höfnina nærri því strax
eftir að Þjóðverjar gáfust upp. Hafa
síðan verið fluttar um hana 3 miljónir
bandarískra hermanna, og geysimikíð
af allskonar hernaðayiauðsynjum.
En nú er tími okkar i le Havre á
þrotum. Varðskipið rennir að bryggju
og skilar okkur í land. Svo liggur
leiðin inn í Iand aftur upp með Signu
áleiðis til Rúðuborgar hinnar fornu.
Vegurinn liggur um dásamlega fallegt
land. Til vinstri handar eru háir kalk-
klettar í grænni skógarumgerð, til
hægri rennsléttir bakkar Signu og
Signa sjálf með fjölda skipa, sem
eins og við cru á lcið til Roucn, en
þangað uppeftir geta allstór skip
komist.