Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1947, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.03.1947, Side 7
99 niður fyr en um leið og á að borða þæ'l', því að ef loft leikur dálitla stund um sneiðarnar, gufar fjör- efnið upp úr þeim. Skortur á þessu efni mun vera algengastur hjer á landi, og gerir áreiðanlega vart við sig á hverju vori, enda þótt fólk hafi nóg að borða, því að þá eru þessi fjörefni ekki í mjólkinni, þau koma ekki fyr en kýrnar eru komn ar út á græn grös. Besta vörnin gegn C-fjörefnaskorti liggur í því, hvad fólk borðar mikið af kartöfl- um, því að enda þótt kartöflur sje ekki auðugar að þessu fjörefni, þá vinst það upp með því hvað þær eru mikill hluti fæðunnar. Skyr- bjúgur er afleiðipg þess að C-fjör efni vantar í fæðuna, og hann ger ir víst vart við sig á hverjh ári. D-FJÖREFNI. Það er mjög áríð- andi að börn fái nóg af þessu fjör- efni, sjerstakl. á veturna. Á sumrin fær líkaminn það úr sólargeislun- um. Þess vegna eru sólböð í svo miklum metum. En í skammdeginu og þegar ekki sjer til sólar dögum saman þarf að gefa börnunum lýsi, svo að þau fái nóg af þessum fjör- efnum. D-fjörefnask. veldur tann- skemdum og beinkröm, því að þetta fjörefni viðheldur tönnum og bein um og hjálpar til að endurnýja kalkið í þeim. ÞETTA eru ^iú helstu fjörefnin. Mörg fleiri eru nú kunn, og sum eru máske óþekt enn. En fái menn nóg af þessum fjörefnum öllum saman, þá er þeim ekki hætt við sjúkdómum, sem stafa af fjörefna- skorti, og, geta leitt af sjer aðra sjúkdóma. Kona nokkur, 93 ára gömul, kom þar að sem löng biðröð var og slóst í hópinn. Ungur maður kendi í brjósti um hana og kallað: „Lofið gömlu konunni að vera á undan!“ /■— Allir litu.við til að sjá hver gamla konan væri — og hún líka. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1' háttur Ungur maður var kominn til borg ar nokkurrar- í Sussex. Harxn var ókunnugur þarna og vissi augsýni lega ekki hvert hann átti að halda. Sneri hann sjer þá að vingjarnleg- um bónda, sem var þar á gangi og mælti: — Getið þjer sagt mjer hvar póst húsið er? — Já, sagði bóndinn og gekk snúðugt burtu. En ekki hafði hánn farið langt, er hann fekk samviskubit. Ef til vill átti ungi maðrWinn mjög brýnt erindi á pósthúsið, átti máske von á brjefi frá veikri móður sinni, eða þá svari við umsókn um atvinnu, eða hann þurfti að senda tilkvnn- ingu um lát skyldmennis. Hann sneri því aftur og sagði: — Fyrirgöfið að jeg var nokkuð stuttur í spuna áðan. Voruð þjer ekki að spyrja um pósthúsið — Nei, sagði ungi maðurinn og gekk snúðugt burtu. V 4/ ^ V Veiðistengurúr gleri MENN eru íjú farnir að búa til laxastengur úr gleri og þykja þær betri en bambusstengur. Þær eru ekki steyptar, heldur gerðar úr hárfínum glerþráðum og er sagt að rúmlega hálf miljón slíkra þráða fari í stöngina þar sem hún er gildust. Þessir glerþræðir eru mjög sveigjanlegir og þanþolnir, vegna þess hvað þeir eru grannir, og þola þessar nýu stengur því meiri beygju heldur en eldri steng ur. Aðra kosti hafa þær einnig fram yfir bambusstengurnar. Þær eru ljettari, sterkari og endingar- betri og þær þola sjávarseltu, en hana þola bambusstengur ekki. Barnahjal Það var kenslutími í kristn um fræðum og kenslukonan sýndi börnunum biblíumynd- ir, þar á meðal af Jósep og Maríu. Þau voru svo fátæk, sagði hún, að þau höfðu varla í sig og á. öll börnin kenna í brjósti um Jesúbarnið, að eiga svo fátæka foreldra, þangað til lítil stúlka segir stórhneiksluð: „Já, þau gátu ekki gefið ■(honum mat og föt, en samt þóttust þau hafa efni á því að láta mynda sig“. Kenslukonan sagði börnun- um dæmisöguna um týnda soninn. Svo spyr hún börnin út úr. — Það var víst einn, sem ekki varð feginn þegar týndi sonurinn kom heim aftur. — Hver var það? Pjesi: Alíkálfurinn. Nokkur börn voru að leika sjer að því að geta gátu. Ein gátan var svona: Hver er það, sem á kamb, en kembir sjer iekki? Þá varð einn strákurinn skömmustulegur og sagði: Það er jeg. Úr stíl um miskunnsama Samverjann: 0g svo sagði hanri við veitingamánninn: Hjerna eru tvær krónur handa þjer og ef þú eyðir meiru í hann þá skaltu eiga mig á fæti.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.