Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1948, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1948, Blaðsíða 13
\ Um mig var það að segja, að líkam- legir ágallar mínir til konungstignar voru í öfugu hlutfalli við ágalla Her- berts. Hæðin var að vísu nóg. Jeg var þá þegar um 3 álnir á hæð, og herð- arnar í sæmilegu lagi, en jeg var grannvaxinn, eins og títt er um há- vaxna unglinga. En það var verst og þótti síður en svo konunglegt, að jeg var óvenjulega miðmjór. Ur þessu var þó haldið að mætti bæta með því að girða kodda framan á mig. Nú rann upp dagurinn, sem álfa- dansinn skyldi haldinn, að kvöldi til náttúrlega. Þetta var einn af þessum fágætu blíðviðrisdögum í skammáeginu, stilli logn og skafheiðríkt. Logndrífa hafði verið nóttina áður, og var föl á jörð. Frost var enn vægt. Þegar kvöldaði logaði alstirndur himininn í norður- ljósum, og fölir, kaldir geislar tungls- ins glitruðu í krystöllum rtýfallinnar mjallar. Nú var að íklæðast álfabúningnum. Það var gert í Iðnaðarmannahúsinu, með aðstoð fagmanna frá Leikfjelagi Reykjavíkur. Konungshjónin voru klædd hvítum kyrtlum og báru möttla. Kyrtill drottn ingar var mun síðari. Herbert var málaður í framan, en á mig var límt alskegg mikið og sítt. Mjer er það enn í minni, hve illa mjer f jell skeggið. Það bagaði mig í söngn- um, og mjer leið illa af hita á andlit- inu, enda var jeg þeirri stundu fegn- astur, er skeggið var reitt af mjer um kvöldið. Þegar lokið var við að búast álfa- búningnum, var gengið til Austurvall- ar. Templarasund var svo þjettskipað fólki, að lögreglan varð að ryðja álf- unum braut til vallarins, sem þeir einir höfðu aðgang að. Þetta gekk fljótt og vel, þótt fólks- þyrpingin væri mikil. Þó voru þá ekki nema tveir lögregluþjónar að verki. Alls munu þá hafa verið fjórir lög- regluþjónar að degi til. Þeir fóru að LESBÖK MORGUNBLAÐSINS fólkinu með lipurð og einurð og höfðu yfirleitt samúð fólksins. Álfahjónin gengu fyrst ir.n á Austur völl, og svo álfarnir tveir- og tveir saman í fylkingu á eftir, en fíflið síð- ast, eitt sjer. Það ljet öllum illum lát- um og reyndi að vekja sem mestan hlátur. Þegar inn á völlinn kom, byrjaði söngurinn. Sungið var „Máninn hátt á himni skín“, og mörg fleiri lög. Við gengum í hring, sem næst girðingu vailarins. Með fram henni var fólkið hvarvetna í breiðfylking. Þegar farnar höfðu verið all-margar hringferðir um völlinn, kom fyrir at- vik, sem rjeði því, að áiíadansinn hætti, en mundi ella hafa verið haldið nokkuð lengur áfram. Herbert er að kyrja tóninn í ein- hverju einsöngslagi og brýnir mjög raustina. All í einu dettur eitthvað á frosna jörðina. Jeg heyri hringl við fætur mjer. Stokkabeltið hafði sprungið af drottningunni. Jeg þreif beltið í snatri og stakk því í handarkrika minn. Herbert fataðist ekki. Hann hypjaði upp um sig kirtilinn og vafði að sjer möttlinum, sem áður hafði flakað frá honum, og söng lagið til enda. Ótrúlega fáir urðu þessa varir. Þó galaði stráklingur, sem stóð fast við grindurnar og með andlitið milii tein- anna: „Nei, beltið er dóttið af drottn- ingunni, og allt er að fara niður um hana“. "Nokkur hlátur varð í kringum stráksa. Þegar lagið var á enda, hvíslaði Herbert að mjer: „Við skulum hætta Gunnar og engan láta vita af þessu“. Við gengum því hátíðlega út af vell- inum og húrrahróp kváðu við frá á- horfendum. Förinni var síðan stefnt til Iðnaðar- mannahússins skipt um búning, og stiginn dans fram til óttu. ^ v ^ ^ 41 Þessa sögu segja Svertingjarn- ir í Barotselandi i Rhodesiu um það, hvernig kisa varð hús- < dýr. EINU SINNI voru engir. heimiliskett- ir til, heldur aðeirts villukettir, og þeir áttu heima í skógunum. Svo var það áð villuköttur og hjeri gerðust vinir og voru óaðskiljanlegir. Þeir ferðuðúst saman um skóginn, en einu sinni mættu þeir hafri og hafurinn stangúði hjerann til bana. Nú hafði kisa miiít vin sinn og þá afrjeð hún að slást'í fylgd með hafrinur.i. Nokkru seinna kom hljebarði og drap hafurinn og þá^lagði kisa lag sitt við hljebarðann. En það stóð 'ekki lengi, því að nú kom ljón og eftir harð an bardaga drap ljónið hljebarðann. Þá slóst kisa í för með ljóninu. Lengi voru þau saman, Ijónið og kisa, en svo mættu þau filahjörð og elsti fíllinn rjeðist á ljónið og tróð það undir fótum til bana. Þá hugsaði kisa sem svo: „Ef jeg gerist förunaut- ur þessa risavaxna dýrs, þá er engin hætta á því að við hittum nokkra skepnu svo stóra að hún geti drepið það“. Og svo fylgdi kisa fílnum. Eftir nokkra daga mættu þau Svert- ingja. Hann ljet sem hann sæi ekki köttinn, en fílinn drap hann með eitr- aðri ör. Þá vissi kisa varla hvað hún átti að gera — hún hafði aldrei sjeð jafn kátlega skepnu eins og þetta tví- fætta dýr. En úr því að það gat drep- ið fílinn, þá hlaut það að verða happa- drýgst að koma sjer vel við það. í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.