Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1948, Síða 13
LESBOK MORGUNBLJVaSTNS
anna veikist ekki, en fimti hver
maður veikist oftar en einu sinni
á hverju ári að meðaltali. Tíðust
eru veikindi hjá börnum innan 5
ára aldurs, En unglingar á aldrin-
um 15—19 ára eru hraustastir allra.
RANNSÓKNIR hafa Jeitt það í
ijós, að einungis 7 menn af hverj-
um hundrað, eru lausir við líkams-
lýti. Um 70 af hundraði hafa ein-
hverja veilu í líkamsbyggingu sinni
og 23 af hundraði eru meira og
minna vanskapaðir eða fatlaðir.
En þrátt fyrir veikindi og van-
þroska fjölgar mannkvninu stöð-
ugt, og er það vottur um það, að
heilsufar sje batnandi. Fyrir stríð-
ið var það aðeins í einu landi í
Evrópu, Ítalíu, að svo mörg böm
fæddust, að sú kynslóð átti að geta
orðið fjölmennari, en sú næsta á
undan. Árið 1942 varð hið sama
uppi á teningnum í Danmörk. Og
nú eru hlutfallslega mestar barn-
eignir í Danmörku, þegar Ítalía er
undan skilin. í Englandi er öðru
máli að gegna. Næsta kynslóð þar
verður þriðjungi mannfærri en
núverandi kynslóð, ef barneignum
fjölgar ekki stórkostlega.
í löndum utan Evrópu er viðkom-
an miklu meiri. Ef alt fer með feldu
þá verður næsta kynslóð í Japan
hálfu mannfleiri en sú sem nú er
uppi. En í Bandaríkjunum og á
Nýja Sjálandi er fólksfjölgun
vegna fæðinga álíka og í Danmörk.
EN þótt fæð'ingum fækki, þá
fækkar ekki fólkinu að sama skapl
vegna þess að nú lifa menn yfir-
leitt lengur en áður. Mannslátum
fækkar meira en fæðingum á
hverju ári. í Danmörku hefir með-
alaldur manna t. d. hækkað um 20
ár á einni öld. En þótt talað sje um
að menn lifi lengur en áður, þá
er ekki átt við það, að menn nái
hærra aldri. Eftir því sem hag-
skýrslur herma, þá verða einstakl-
ingar ekki langlífari nú en áður. Á
seinni árum hafa menn elcki á-
ábyggilegar sannanir fyrir því, að
nokkur maður hafi náð hærra aldri
en 111 árum. Að vísu cru til sagnir
um fólk, sem sagt er að hafi lifað
upp undir 150 ár, en skjallegar
sannanir eru ekki fyrir því. Aftur
á móti eru fullgildar sannanir fvrir
því að menn eru að stækka. S?in-
ustu 20 árin hafa menn í Danmörka
hækkað svo, að meðalhhæð karl-
manna eru nú 5,7 fet í stað 5,5
áður.
BETRI lífsskilyrði valda því a3
meðalaldur manna hækkar og lík-
amsþroski vex. Hagskýrslur sýna
það líka, að meðalaldur fátæklinga
er lægri en hinna, sem lifa viS alls-
nægtir. Banamein fátækra og ríkra
eru heldur ekki hin sömu hlutfalls-
lega. Berklaveiki, lungnabólga,
krabbamein og hjartabilun eru al-
gengustu dánarorsakir þeirra, sem
fátækir eru. En sjálfsmorð, líf-
himnubólga og meltingarsjúkdóm*
ar eru tíðust banamein meðal hinna
ríku.
Hagskýrslur herma að enginn
munur sje á þroska heilbrigðra
barna fyrstu vikurnar, sem þau
lifa, af hverri stjett manna sem
þau eru komin. En eftir þrjá mán-
uði fer að bera á mismun, því að
þá þroskast börn efnaðra manna
betur en börn fátæklinga. Þetta á
þó ekki við nema þar sem mikill
munur er á efnahag manna. í Dan-
mörku gætir þessa mismunar mjög
lítið, enda er þar lítið um sára fá-
tækt nú orðið.-----
Þrátt fyrir styrjaldir og öng-
þveiti í fjelagsmálum flestra ríkja,
er það athyglisvert hvað heiisufar
manna fer batnandi. Og fái msnii-
kynið nú að lifa í friði, þá er von
um það, að þeir, sem nú eru börn,
fái að njóta betri heilsu og lengra
lífs heldur én foreldrar þeirra.
/
249
-------------------------------*
Barnahjal
Gunni var ekki nema á þriðja
árinu. Og hann vildi alltaf að
mamma sæti undir sjer. Einu sinni
sagði hún:
„Þú mátt ekki sitja í kjöltu minni
e'skan mín. Þú getur'meitt hann
litla bróðir, sem er hjerna inni“.
Gunr.i sagði: „Er það góður drcng
ur?-‘
„Já, það er besti drengurinn^ sem
' til er“, sagði mamma.
„Hvers vegna varstu þá að cta
hann?“ spu,ði Cunni.
★
„Þú ert sá mesti apaköttur, sem
til er í heiminum“, sagði Nonni í
bræði við Lillu systur sína, sem ekki
var nema fjögurra ára. Hún fór að
gráta út af þessari ósvífni og hljóp
til mömmu til þess að fá huggun.
Rjett á eftir kemur hún aftur og
er þá heldur en ekki hróðug:
„Þú sagðir ekki satt, jeg er lang
minsti apakötturinn í heiminum1.
★
Dyrabjöllunni hjá frú Margrjeti
var hringt. Hún fór til dyra. Þar
stóðu þrjár litlar stúlkur og sögðu;
„Megum við tína blóm í garðinum
þínum“.
Margrjet leyfði þeim það. Hálfri
stund síðar er hringt aftur. Þar voru
litlu stúlkurnar komnar með fult
fangið af blómum og þær spurðu:
„Viltu ekki kaupa falleg blóm?
Þau kosta ekki nema 10 aura“.
★
Siggi var ekki nema á þriðja ár-
inu og hann hafði stolist út á götu,
þar sem bílaumferðin er mest. Pabba
hnykti við þegar hann heyrði þetta:
„Veistu ekki að þú getur lent í
árekstri ef þú stelst út á götu?“
„Jú“, sagði Siggi skömmustulegur.
„Og hvað heldurðu þá að rekist á
þig?“
„Mamma".
-----------------------------»