Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1948, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.05.1948, Blaðsíða 16
252 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS ÚR BRJEFI Þegar Matthías Jochumsson var ný- lega kominn að Odda, skriíaði hann vini sínum Eggert Ó. Briem og byrjar brjefið þannig: — Hefirðu komið á Rangárvöllu? Nei. Komdu! Tvö brauð í Holtunum, hæfileg þjer, hanga sem laus, eins og froða við sker. ssektu nú, sæktu nú, grallaragrjer: gæfan hjer strokkar nóg smjer! Og svo lýsir hann búskap sínum: Börnin 4 en 15 hross, 50 rollur, 8 kýr guðirnir hafa gefið oss; í gildara lagi karlinn býr. SJERA ÓLAFUR JÓNSSON fekk Garðaprestakall eftir föður sinn, Jón prest Kráksson, sem einu sinni var í Laugarnesi. Hann kallaði sig allt af Ólaf Jónsson Kráksson. — Var hann orðinn prestur 1609 og jafnvel fyr. Hann er talinn fæddur 1570. Var einlægur maður, fordildarlaus í orðum og allri hegðun, hræsnaði ekki við neinn, hver sem í hlut átti. Var því ekki ætíð í stórum kærleikum við fyrir menn á Bessastöðum, og helst getið við Holger Rosenkranz höfuðsmanns. Sjera Ólafur giftist ekki og var áldrei við konu kendur. Er þetta haft eftir hon- um: Böl er búskapur, kvöl er hjúskapur, aumt er einlífi og það elska jeg. Og einnig þetta: „Gott kall Garðar ef ekki væri Ófriðarstaðir og Óttar- staðir í sókninni“. (Lbs. hndr.). JÓSEP STERKI prestur á Ólafsvöllum, dóttursonur Odds biskups, var mikill maður og hinn mesti söngmaður. Var hann stundum í Skálholti. Hann gerði það eitt sinn til þrekraunar að hann óð Hvítá hjá Vörðuskeri fyrir ofan ferjustað á Skálholtshamri. Var þetta um vetur í frosti og vatnið svo djúpt að náði honum í höku. Hann studdist við járn- staf. En er hann kom í Skálholt settist hann á bæjarþröskuld og drakk 6 eða 7 merkur af kaldri sýru, „en eftir það Cdsm. mbC: ól. k. magnússdn. Nýr togari. Annar stærsti nýsköpunartogarinn, „Mars“, kom hingað til Reykja- víkur á þriðjudaginn var og sýnir myndin fólksfjölda sem fagnar honum þegar hann legst að bryggju. — Nýsköpunin er vinsælasta framfaraviðleitnin hjer á landi. Grundvöllur hennar er hinn sami og í nýsköpun Breta: samvinna rikis- valdsins og hins frjálsa framtaks til eflingar atvinnuvegum og þjóðarvelferð. — sló að honum hroll; þá leysti Brynjólfur biskup hann fyrir ofdirfð-'. Þorsteinn Erlingsson hefur kveðið um þetta í ,,Eiðnum“. STAKA EFTIR GUÐMUND KETILSSON Þegar niðurskurðaræðið gekk um Húnavatsnþing 1857 voru fengnir til sjerstakir menn í hverri sveit að skera fjeð, þeir er öruggastir þóttu. Var Guð- mundur Ketilsson þá gamall og í horn- inu hjá Ögn dóttur sinni og Jóni Árna- syni manni hennar á Illugastöðum á Vatnsnesi. Þangað komu niðurskurðar- menn á laugardagskvöld og gistu. Vildu þeir byrja sláturstörfin á sunnudags- morgun, en bóndi vildi lesa húslestur- inn fyrst, sem þá var föst venja. Varð úr þessu nokkuð karp. Þá sagði Guð- mundur: Tvennslags aga var jeg varð, vaknaði saga um húsin. Hvort vill draga hitt um garð helgidagur og lúsin. w- STÓRT HÖGG Sjera Þórður Þorgrímsson í Otradal var kvæntur Guðrúnu dóttur Svein- bjarnar Egilssonar skálds. Þórður var annálaður kraftamaður og eru margar sögur um aflraunir hans. Guðrún stökk frá honum og þótti mönnum hún mjög sr">yða heimilið af þeini hlutum, ,er m.kil -eign Var í og hún gat komist' á brott með. Prestur horfði á heiman- búnað konu sinnar með mestu rósemd og stillingu, eins og ekkert væri um að vera. En þegar hún var komin á stað, gengur prestur upp á loft og svalar gremju sinni með því að slá hnefa sin- um á einn sperrulegginn í baðstofunni, sem var undir skarsúð, og færðist hann þá úr stað, svo að þess sáust glögg merki á öllum borðunum, sem lágu á sperruleggnum. Skarsúðin vár þó gerð á venjulegan hátt, fótur sperruleggsins negldur með sterkum nagla ofan í sylluna og hvert borð í súðinni neglt í sperrulegginn. HVERS SON? „Hvers son er hann Jón Gissurarson á Bakkanum?“ spurði kerling aðra kerlingu. — „Er hann ekki Pálsson?" — „Jú, rjett er það,“ svaraði hin kerl- ingin, „hann mun vera sonur hans Bjarna Pálssonar í Nesi.“ (Sögn Þorst. Erlingssonar).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.