Lesbók Morgunblaðsins - 10.07.1949, Síða 1
XXIV. árgangur.
25. tölublað
ovgmtMatoitw
Sunnudagur 10. júlí 1949
HAFNAR-ÍSLENDINGS-
ÞÁTTUR
Eítir Sigurð Guðmundsson,
skólam eistara
SUÐUR í Kaupmannahöfn varð 3.
júlí 75 ára íslenskur menntamaður,
mikill mætismaður og einkenni'eg-
ur á fagran hátt. Rúman helming
aldar eða 52 ár hefur hanr. ekki
komið heim til ættlands síns, eða,
með öðrum orðum, ekki síðan á
seinustu öld. Langan aldur hefur
hann, aí kyrrlæti og hljóðlvndi,
stundað sama starf, unað lífi á
sama stað. Hann er, sem sagt var,
ekki hávaðamaður, ryðst hverg:
um, sjest sjaldan á fjölsóttum
mannamótum, hefur ekki sóst eftir
hátekjum nje stórgróða, hefur haft
sig lítið í frammi, enda sjest nafn
hans nær aldrei í blaðadálkum nje
áprenti. Má nokkuð kynnast mann-
inum á, að hann hefur neitað end-
urtekinni beiðni minni um mynd
aí sjer til birtingar. Hefur honum
tekist að leynast svo, að fáir á landi
voru kannast nú, að líkindum, við
nafn hans, nema frændur og vanda-
menn, skólabræður, vinir og fornir
sveitungar. Samt hefur hann lifað
inntaksmiklu lífi, er auðsæll á sína
vísu, svo að margur auðugur hef-
ur ástæðu til að öfunda auðsæld
hans.
Þessi maður er Páll Sæmunds-
son, cand. phil., fyrrum fulltrúi í
fjármálaráðuneyti Danmerkur.
Hann heíur aldrei blandað geði
við marga nje gengið götur fjöld-
ans. En fornum fjelögum er hann
að mörgu merku kunnur. Mörgum
þeirra hefur hann orðið ógleym-
anlegur. Er þeim og undarlega far-
ið, sem að ráði kynntust Páli Sæ-
mundssyni og gátu gleymt honum,
þeim þokka, sem hann bauð af sjer,
og allri framgöngu hans og ein-
kennileik.
Páll Sæmundsson er Árnesingur,
fæddur í Hraungerði í Flóa þjóð-
hátíðaranð 1874 og ólst þar upp
hjá foreldrum sínum, Sæmundi
prófasti Jónssyni og konu hans.
Stefaníu Siggeirsdóttur, af Krossa-
víkur ætt. Voru bræður hans Geir
Sæmundsson, vígslubiskup á Akur-
eyri, orðlagður söngmaður, radd-
fagur og raddþýður, svo að af bar,
og sjera Ólafur Sæmundsson í
Hraungerði. Eru þeir báðir látmr.
Jeg hygg, að eigi liafi margir sagn-
i'rægir klerkar nje sögukunnir þjón
að Hraungerði. En tveir forfeður
Einars Benediktssonar voru þar
prestar, langafi hans, sjera Bene-
dikt Sveinsson, og langa-langafi
hans, sjera Sveinn Halldórsson, er
var lengi prófastur í Árnessþingi og
talinn merkur klerkur. Var hann
kvæntur systur Jóns Eiríkssonar
konferenzráðs. og dó hún í llraun-
gerði. (Fanst mjer liinum mikla
andans manni, Einari Benedikts-
syni, þykja vænt um, að hanti var
af ætt Jóns Eiríkssonar). Annars
er saga Hraungerðinga og Hraun-
gerðisklerka mjer lítt kunn. En hitt
veit jeg, að fagurt er í Hraungerði
sem annars staðar í Flóa, þar sem
jeg hef farið um. Er undarlegt og
ómenningarlegt að kalla jafn-víð-
sýna sveit Svarta-Flóa. Hitt væri
sann-nefni, að þetta mikla undir-
lendi hjeti Bjarti-Flói. En þvi minn