Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1949, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 17.07.1949, Síða 2
326 LESBOK MORGUNBLAÐSINS hrjúfri sKel leyndust heitar til- finningar í ætt við öldurót hafsins. I öllu sínu stríði er maðurinn jafn- an samur við sig, hvað sem öldin heitir. Og ef vjer, sem hjer erum saman komin í dag, viljum skilja forfeður vora, sem hjer börðust sinni baráttu, þá verðum vjer að leítas't'vío að skilja sjálfa oss fyrst. Eigindir þeirra eru erfð vor og óðal, hvert sem leið vor liggur. En raun- ar held jeg, að besti lykillinn til rjettrar sjálfsþekkingar sje að kynnast éldri kynslóðum, lífi þeirra og starfi. Þar er að finna ræturnar, sem vjer erum af sprottnir. r. ; i i' ; rioviu II. 'i,M óilirÍB(r> Leyfið mjer nú, áheyrendur góð- ir, að bjóða yður með í svolítið ferðalag. Farartækið er með þeim kynjum gert, að á því má ferðast aftur ;og fram í tímann, og vjer skulum bregða oss um 130 ár til baka eða til ársins 1820 eða þar um biL Vjer þurfum ekki að færa oss úr stað, því að Stokkseyri er áfanga staðurinn eins og nú. Vjer erum stödd hjer á sjávarbakkanum og lit- umst um. Hin fagra fjallasýn og víðátta er hin sama sem nú, hafið leikur við ströndina, sker og sund og boðar eru hin sömu. Þetta er náttúrufagur og náttúrumikill stað- ur eins og í dag. Og vjer lítum nær oss á bæi og bygð. Vjer þurf- um góða stund til að átta oss á því sem fyrir augun ber. Vjer þekkjum varla þessa bæi. Alls staðar eru lágreistir torfbæir, ofurlítil húsa- þyrping úr torfi og grjóti á hverj- um bæ. Á einstaka stað sjest stafn- þil úr timbri með vindskeiðum og litlum glerglugga, en víðast eru torfgaflhlöð með djúpum glugga- tóftum. Hjá mörgum bæjum stend- ur einstakt, lítið hús úr sama bygg- ingarefni sem bæirnir. Það eru sjó- búðirnai;, þar sem aðkomnir ver- menn hafast við á vertíðinni. Hjer og hvar hvolfa árabátar af ýmsum stærðum frá tveggjamanna förum upp í sexæringa. Stærri skip sjást ekki. Veiðarfæri sjáum vjer ekki önnur en færi með sökku og öngli, snoturlega hönkuð upp og hengd sem til þerris. Skinnklæði sjáum vjer og á nokkrum stöðum hanga í hjöllum, lýsisbornar brækur og stakka, vel og umhyggjusamlega hirt. Kringum kotin eru litlir tún- kragar, sem gefa mundu af sjer fóður handa 1—2 kúm í meðalári. — Sjógarð sjáum vjer engan eða aðrar varnir gegn ágangi hafs- ins. Vjer mundum fá þá hugmynd, að hjer byggi fátækt fólk við þröngan kost, og eitt hið mesta undrunarefni vort mundi sennilega vera, hvernig þetta fólk færi að því að sækja sjó á slíkri brimströnd á þessum litlu fleytum. Hjer hlýt- ur að búa harðgert fólk og góðir sjómenn. Vjer skulum nú heilsa upp á eitt- hvað af fólkinu, sem hjerna býr. en því miður er ekki tími til að koma á hvern bæ. Vjer skulum fyrst heilsa upp á Stokkseyrarbænd urna, Jón Ingimundarson og Jón Gamalíelsson yngra. — Jón Ingi- mundarson býr í vesturbænum. Hann er sonarsonur Bergs gamla í Brattsholti og situr á óðali hinnar gömlu Stokkseyrarættar. Hann er hniginn mjög á efra aldur, hefur látið af hreppstjórn og formennsku. en gegnir enn djáknastarfi í Stokks eyrarkirkju. Hann er hvítur fyrir hærum, kempulegur ásýndum og höfðinglegur á svip. Sambýlismað- ur hans, Jón Gamalíelsson yngri, er um fimmtugt, snarlegur maður með hvöss augu. Hann er einhver reyndasti og nafnfrægasti formað- ur á allri Stokkseyri, kann ekki að hræðast, en þó gætinn og öruggur. Hann lenti í hrakningnum til Þor- lákshafnar árið 1812, þegar 7 menn drukknuðu þar í lendingu af skipi Jóns stromps í Borg í Hraunshverfi Þessu næst skulum vjer koma við í Vestri-Móhúsum. Þar býr hrepp- stjórinn, Jón Þórðarson, þá þegar orðinn einn ríkasti maður á Suð- urlandi. Hann er þá um fimm- tugt og nafnkunnur formaður í mörg ár, aflasæll og djarfur sjó- sóknari. Hjá honum hefir Þuríður formaður verið háseti í mörg ár. Vjer skulum líta inn í Roðgúl og heilsa upp á hinn forna garp og mikilmenni, Brand gamla Magnús- son. Hann er nú kominn yfir ní- rætt, en hefur þó enn fótavist, mik- ill vexti, og gildur, þrátt fyrir ald- urinn. Hinn gamli járn- og skipa- smiður minnist nú fyrri tíma, er hann var forsöngvari í Stokkseyr- arkirkju og söng einn á móti öll- um, er aldamótasálmabókin var tekin í notkun. Hann er nú elsti maður sveitarinnar, og allir líta upp til hins gamla víkings og dá hreysti hans. Vjer skulum nú taka á oss krók upp að Ásgautsstöðum og heilsa upp á aðalskipasmið hreppsins, Jón Snorrason, sem er á besta aldri, rúmlega fimmtugur Hann bjó áður í Óseyrarnesi, og er einn af forfeðrum hinnar svo- nefndu Nesættar. Hann hefur smíð- á annað hundrað skipa og fundið upp nýtt og betra lag á þeim en áður tíðkaðist. Formaður hefur hann og lengi verið með góðri hepni. Vjer skulum heilsa upp á hjónin í Stokkseyrarseli vestra, Bjarna Guðmundsson og Vigdísi Símonardóttur, Eyjólfssonar sterka á Litla-Hrauni. Síra Jakob prófast- ur í Gaulverjabæ segir um Bjarna, að hann sje mikilfengur maður. Hann er um fertugt og synir hans ungir. Þá skulum vjer að lokum heilsa upp á tvær merkar konur, sem búa í Stokkseyrarhverfinu. Vjer komum að Eystri-Móhúsum og hittum yfirsetukonu sveitarinn- ar, maddömu Sigríði Hannesdóttur frá Kaldaðarnesi, konu Jóns Gam- alíelssonar eldra. Hún er skörung- ur mikill, og fátt fer fram hjá henni I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.