Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1949, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.1949, Blaðsíða 1
I Sunnudagur 11. september 1949. XXIV. árgangur, 34. HEIMILI HIMBRIMANS VIÐ ÍSLENSK FJALLAVÖTN n Tveir enskir fuglafræðingar, G. K. Yeates og K. J. Carlson, voru hjer á landi í sumar til þess að ná myndum af himbrima við hreiðr- ið. Þegar heim kom skýrðu þeir frá því að sjer hefði tekist þetta, og mundu þetta fyrstu myndirn- ar, sem teknar hefði verið af him- brimum hjer í álfu (himbriminn verpir hvergi í álfunni nema á ís- landi). En þetta er ekki rjett. í Lesbók 20. júní í fyrra birtist mynd af himbrima í hreiðri og hafði Björn Björnsson kaupmaður i Norðfirði tekið hana (og fleiri myndir). Himbriminn er einhver allra styggasti fugl hjer, svo að ilt er að komast í skotfæri við hann. En Birni hafði nú samt tekist að komast í G—8 metra færi við liann. — í eftirfarandi grein segja útlendingarnir frá því hvernig sjer gekk og lýsa háttum himbrimans að nokkru. Greinin er útdráttur úr greinum í „Times“ og „Illu- strated London Ne\vs“. IL E 1 M K Y N N I himbrimans má mildu l'remur leijast vestan liaís en austan, og aðallega mun liann lialda sig í Kanada. Á sumrin sjást þeir stundum í tilhugalífsskrúða lijú Bretlandseyjum, aðallega þó lijá Hjaltlandi. Þetta hefur leitt til þess að fram hafa komið órökstudd- ar getgátur um það, að hann muni verpa þarna. En það getur ekki verið. Hjer er áreiðanlega um geld- fugl að ræða, því að varpstöðvar himbrimans eru miklu norðar. Fyrir breska íuglafræðinga er hægast að kynnast himbrimanum á íslandi. Hann er þar algengur. Aðallega verpir hann þó við fjalla- vötn, en stundum niðri í bygð. — Hann er góðkunningi íslendinga, enda hlýtur hann að vekja athygli á sjer hvar sem hann er. Sjerstak- lega verða mönnum minnisstæð hin óhugnanlegu gól í honum þar sem hann er á sundi, og hinir hvellu skrækir, þegar hann er á flugi. Þar sem þessi tígulegi fugl hef- ur ekki, svo kunnugt sje, verið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.