Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1949, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1949, Side 4
54* LESBÓK MORGUNBLAÐSINS svæði lögðust þá algjörlega í auðn vegna þess að allir íbúarnir voru fluttir burt, og átti þetta aðallega við um Sudan og þær nýlendur, sem Frakkar eiga nú í Mið-Afríku. ÓgurJegar sögur bárust um fram- ferði þrælakaupmannanna, og leiddi það til þess að í Kairo var gefin út tilskipun, sem bannaði al- gjörlega þrælaverslun. En að baki henni stóð ekki það vald að hún kærni að neinu gagni. Með vaxandi menningu fór þó svo að almenningsálitið snerist gegn þræiasqlu og þrælahaldi. Og árið 1807 var þrælakaupmönnum líkt við sjóræningja í Englandi. Og árið 1833 bönnuðu Bretar með lög- um alt þrælahald í ríki sínu. Önn- ur lönd fóru að dæmi þeirra og sum höfðu orðið á undan með þetta, Danmörk 1792 og Svíþjóð 1815 Á árunum 1820—1850 greiddu Bretar Spánverjum og Portúgöl- um stórfje til þess árlega að þeir fengist ekki við þrælaverslun. Ár- ið 1848 bönnuðu Frakkar þræla- verslun bæði heima og í nýlend- um sínpm. Holland fylgdi dæmi þeirra 1865. I Bandaríkjunum varð að heva borgarastyrjöld til þess að fá þrælahald.afnumið (1860). — Portúgal bannaði þrælahald 1878 og Brasilia 1888. Og síðan neyddu Bretar soldáninn í Zansibar að banna þrælaverslun, en þar hafði þá verið miðstöð hennar. En í. mörg ár eftir þetta heldu þrælakaupmenn uppteknum hætti, og fluttu fjölda ánauðugra manna vestur um haf til Mið-Ameríku og Suður-Ameríku. Voru það ófyrir- leitnir skipstjórar, sem aðallega fengust við þetta. Herskip Norður- álfuþjóða reyndu eftir bestu getu að hindra þessa þrælaflutninga, en við. það versnaði að stórum mun meðferð þrælanna á skipunum. Nú var þeim jafnan kasað í lestir skip- anna og fengu aldrei að koma undir bert loft á leiðinni. Liðu þeir þar hinar hræðilegustu kvalir og marg- ir dóu. Og oft kom það fyrir þegar einhver ósvífinn skipstjóri sá sitt óvænna er herskip elti hann, að hann ljet kasta öllum þrælunum fyrir borð. Það eru ekki nema 50 ár síðan, að helstu ríki veraldar tóku hönd- um saman um að koma í veg fyrir alla þrælaverslun, og 17 þeirra lofuðu að beita herstyrk sínum til þess. Samt viðgengst þrælasala og þrælahald enn í dag, einkum í Abyssiniu, hjeruðunum við Rauða- hafið, Suður-Arabíu og ýmsum hjeruðum í Afríku, sem enn eru lítt kunn. í öllum þessum löndum er þrælahald, en hve mikið er selt úr landi af þrælum, veit enginn. Og það er hægar sagt en gert að ráða bót á þessu. „Austur er aust- ur og vestur er vestur — og geta aldrei sameinast“, segir málshátt- ur. Og margir þjóðflokkar á þess- um slóðum geta alls ekki skilið að neitt sje athugavert við mörg þús- und ára venjur. Áiið 1922 ljet Þjóðabandalagið gamla sjerstaka nefnd rannsaka hvernig háttað væri þrælahaldi og þræ’asölu um allan heim. Nefndin gaf aldrei út nákvæmar skýrslur um það En sama árið og hún var skipuð, gerði breskt herskip upp- tækt arabiskt þrælaskip í Rauða- hafi. Var það fult af þrælum frá Abyssiniu og átti að selja þá á markaði. Einn af nefndarmönnum, Lugard lávarður kvað upp úr með það, að þúsundir manna mundu seldar úr landi í Abyssiniu á hverju ári. Abyssinia hafði gengið í Þjóða- bandalagið, og Haile Selassie keis- ari komst nú í mestu klípu. Hann varð að lofa því að afnema þræla- hald og þrælaverslun. Enginn ef- aðist um að hann væri sjálfur fús til þess. En við raman var reip að draga. Árið 1923 gaf hann þó út lög um þrælahald. Þar er svo ákveðið, að þeir sem eigi þræla, megi hafa þá áfram, en harðlega bannað að selja þá Þrælaeigandi getur þó arf- leitt elsta son sinn að þrælum sín- um, en geri hann það ekki á lög- formlegan hátt, fá allir þrælamir frelsi þegar hann deyr. Enn frem- ur er svo ákveðið að ánauðugra börn skuli vera frjáls, og ef ambátt á barn með húsbónda sínum, þá fær bæði hún og barnið frelsi — Þræll, sem sætti ómannúðlegri með ferð og gat sannað það fyrir rjetti, átti að fá frelsi. Jafnhliða þessum lögum var stofnað sjerstakt ráðu- neyti, sem skyldi fjalla um þessi mál. Og tilætlunin var að þræla- haldið hyrfi smátt og smátt úr sög- unni. Það var ekki hægt að afnema það alt í einu, vegna þess að það var rótgróið í meðvitund þjóðar- innar að þrælahald væri bæði eðli- legt og nauðsynlegt. Nýtt vanda- mál kom og til sögunnar. Þræl- arnir, sem fengu frelsi, vissu ekk- ert hvað þeir áttu af sjer að gera og gátu ekki sjeð fyrir sjer sjálfir. Þess verður því sennilega nokkuð langt að bíða að þrælar þekkist ekki í Abyssiniu. Meðal Araba hafa þrælarnir ótal störf með höndum. Sumir vinna erfiðisvinnu á ökrum, aðrir eru verðir, sendisveinar, ökumenn o. s. frv. Hjá háttsettum embættismönn- um eru oft 10—12 þrælar á verði við dyrnar og húsið er fult af á- nauðugum þjónum. Allir eru þeir vel til fara. Kóraninn mælir svo fyrir, að þrælar skuli hafa sama mat og húsbændur, vera vel klædd ir og fá fræðslu. Ef einhver er vondur við þræl sinn á þrællinn að fá frelsi, segir í Kóraninum. Og hjá Aröbum lifa þrælar alt öðru lífi en annars staðar, því að Arabar kappkosta að lifa eftir fyrirmælum Kóransins. Á dögum Múhameðs var þrælahald enn eins og það hafði verið um þúsundir ára, en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.