Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1949, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
553
r
mw
. HITLER
HAUSTKVÖLD
Sól er hnígin hafs að bárum svölum,
hæðst á tindum brennur kvöldsins skraut.
Rökkurálfar djúpum niðri í dölum
dökkum fingrum strjúka hverja laut.
Heim í náttstað fuglar allir færast,
fegnir því, að hvíla þreyttan væng,
í aftangolu blómin smáu bærast,
bleikar krónur hneigja að vetrarsæng.
Máninn yfir austurfjöllin flýtur,
fölleitur, í tígulegri ró,
skin hans gegnum húmið braut sjer brýtur,
birtu daufri lýsir fold og sjó.
Himinn dökknar hægt í sorta nætur,
hljóðnar allt, en kyrrðin tekur völd.
Sjerhvert strá á grundu dalsins grætur
gripið ótta, er fellur hjelan köld.
Stjörnur brosa blítt til jarðar niður,
bjartir geislar stafa þeim af hvarm,
yfir öllu hvílir helgur friður,
haustið vefst að náttúrunnar barm.
Sólu fegri norðurljósin ljóma
leiptursnögg, um geiminn, fjær og nær,
þögul vitna um háa helgidóma,
hulinn mátt, sem enginn skynjað fær.
Fagra haust, sem fold í nálín klæðir,
fegurð þín er tignarleg og glæst.
Er kvöld þín lognblíð hjúpa grund og græðir
kemst Guði sjálfum hugur mannsins næst.
Einar Friðriksson.
landi þar sem jeg er fæddur. Þeir
eru kallaðir vínþrúgur. Það er
hægt að gera vín úr þeim.
LEIFUR: Einmitt það, þetta eru
þá vínþrúgur. Jeg hefi oft héyrt
getið um vínþrúgur, en jeg hefi
aldrei sjeð þær áður. Jeg hefi
drukkið vín. Það er mjög góður
drykkur.
TYRKER: Herra, ef við getum
náð í. meira af þeim, þá skal jeg
búa til vín handa þjer eins og við
gerum heima.
LEIFUR: Þá skulum við kalla
þetta góða nýa land Vínland, Vín-
land hið góða.
TYRKER (snýr sjer við og hróp-
ar til skipverja): Hlustið á allir
saman. Höfðinginn segir að við eig-
um að kalla þetta góða nýa land
Vínland, Vínland hið góða.
. GERIR VART VIÐ SIG
í TÍMARITINU „Neues Europa“
sem gefið er út í Stuttgart, segir
nýlega að Hitler sálugi hafi komið
fram á miðilsfundi hinn 6. júlí í
sumar. Á hann þá að hafa sagt:
„Orðrómurinn um það, að jeg sje
á lífi í Suður-Ameríku, er alrang-
ur. Jeg gekk sjálfviljugur í dauð-
ann 30. apríl 1945.“
Ýmislegt fleira hefur blaðið eftir
honum, meðal annars þetta:
„Þar sem jeg nú er lít jeg alt
öðru vísi á málin.en jeg gerði í lif-
anda lífi. Meðan jeg var á lífi vildu
menn aldrei segja mjer sannleik-
ann og jeg vildi heldur ekki heyra
hann. Nú grátbæni jeg yður um að
vinna saman í friði og eindrægni,
°g byggja upp það sem hrundi í
rústir að minni tilstuðlan. Jeg rjeði
ekki við mig fyrir valdaþorsta. —
Þjer verðið að vinna bug á nasism-
anum og hernaðarandanum. Og
þjer getið kallað á mig til hjálpar
hvenær sem yður sýnist —“.
Annað þýskt blað „Die okkulte
Welt“ segir að þetta sje mesta vit-
leysa. Það segir frá því að vintr
Hitlers hafi haft fjarsamband við
hann og þá hafi hann sagt:
„Yður skjöplast ef þjer haldið að
jeg sje dauður. Baumgart kapteinn
flaug með mig til Arabíu“. Baum-
gart var þýskur orustuflugmaður.
Önnur þýsk blöð fordæma þenn-
an frjettaflutning af Hitler. Meðal
annars segir „Frankfurt Ábend-
post“ að þetta sje gert til að nota
sjer heimsku og trúgirni fólks til
framdráttar nasismanum.
íW ^ íW
í HVERT sinn, sem einhverjum dettúr
eitthvað gott í hug og hann sker upp
úr með það, þá koma áreiðanlega tíu
menn og segja að sjer hafi'dottið hið"
sama í hug.