Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS í^-239 málið hefði verið rannsakað betur og með prófum fengnar upplýsing- ar um hvort næturverðirnir væri sannir að sök að hafa vanrækt stór- kostlega eftirlitsskyldu sína nóttina sem tjónið varð. En þrátt fyrir þetta var þó svo mikill hiti í mönn- um, að það var samþykkt á fund- inum með 6 atkv. gegn 4 að víkja næturvörðunum frá um stundar- sakir, eða þangað til rannsókn hefði farið fram. =//= lk Þennan sama dag hófust svo rétt- arhöld í málinu í skrifstofu Hall- dórs Daníelssonar bæjarfógeta. — Voru margir menn yfirheyrðir og bar þeim ekki saman um á hvaða tíma tjónið hefði orðið. Næturverð- irnir þóttust hafa farið heim á venjulegum tíma um morguninn og þá hefði eigi verið sýnilegt að nein hætta væri yfirvofandi. Aðrir þóttust hafa komið niður í fjöru í sama mund, og þá hefði allt verið um garð gengið. En þrátt fyrir það að svo mikið bar á milh, kváðust allir fusir til þess að staðfesta fram- burð sinn með eiði ef þess yrði krafizt. Næturverðirnir voru yfirheyrð- ir og cr því rétt að skýra fyrst frá því, scm þeir sögðu. t =//- Guðmundur Ingimundarson á Bergsstöðum var þá aðalnætur- vörður. Hann kvaðst hafa farið lieim á venjulegum tíma um morg- uninn, eða klukkan rúmlega 5, og hann hefði ekki orðiö þess var að neitt tjón hefði þá orðið af sjávar- ganginum, enda hafi brimið ekki verið tiltakanlega mikið þá og langt til fjæðar, því að samkvæmt almanakinu hefði háilóð átt að í vera um kl. í). Hann kvaðst oft hafa heyrt aðra segja, og orðið þess var sjalíur, að hér í Keykjavík værí ekki komið háflcð fyr en klukku- ( stund seinna, en talið er í alman- akinu. Gat hann þess að sér hefði að vísu sýnzt að allmikill hroði mundi verða með flóðinu, en engin hætta á að tjón gæti hlotizt af, því að allir mundu komnir á fætur áð- ur. Sér hefði alls eigi komið til hugar að það mundi bera svo bráð- an að að sjórinn umhverfðist. Til sönnunar sínu máli gat hann þess, að klukkan tæplcga 5 hefði hann verið staddur við gaflinn á húsi biskupsins, því að þar væri þeir næturverðirnir vanir að hitt- ast á morgnana um það leyti, og svo hefði og orðið í þetta sinn. — Þarna skildu þeir svo þegar aítur og fór Jónas næturvörður austur í bæ, en Guðmundur kvaðst hafa gengið suður á Kirkjugarðsstíg (nii Suðurgötu) og svo út Hlíðarhúsa- veg að húsi því er Sveinn snikkari Sveinsson átti áður (nú Vesturgata 38) og síðan niður í bæ. Þegar hann gekk fram hjá Grófinni var sjórinn ckki kominn alveg upp að stokkn- um,* en öll skip voru fyrir oían stokkinn. Gekk hann svo fram í bryggjuhús og voru brimsogin þá farin að slettast upp á bólverkið austan við bryggjuna. Þaðan gekk hann austur að bæjarbryggjunni og hitti þar Jónas aftur. Engan mann sá hann annan á ferli. Fór hann svo heim og þá var klukkan rúmlega 5. Fraihburður Jónasar Jónssonar næturvarðar var alveg samhljóða þessu. Hann sagði að þegar þeir skildu klukkan rúmlega 5 og íóru heim til sín, liaíi verið ómögulegt að hugsa sér að nokkurt tjón yrði * Slokkurinn í Grófinni þótti allmik- ið mannvirki á sínum tíma. Ilann var gerður úr 10" trjám og náði milli liúss Björns Kristjánssonar og bryggjuhúss- ins. Voru trén fcst sainan með járnum og skurðuð moð höggnu gi jóti og trjám, sem rekin voru niður i sjávarkambinn. Upp fyrir þennan stokk skyldi setia batana og varnadi hann því að sjór græfi undan þeim. Stokkur þessi var gerður sumarið 1884. af sjávargangi, því að brim hefði ekki verið tiltakanlega mikið og alls ekki sýnilegt að það mundi aukast svo fyrir fótaferðartíma, að það gæti valdið tjóni. Hann sagði og að þeir næturverðirnir vævi vanir að vekja sjómenn þegar þeir álitu að nokkur hætta gæti verið á ferðum, og seinast hefði þeir vak- ið þá aðfaranótt mánudagsins kl. 1 %. =//= Þcnnan fyrsta dag voru ekki fleiri yfirheyrðir, en þremur dög- um seinna hófust yfirheyrslur að nýju og stóðu í tvo daga. Guðmundur Ásmundsson útvegs- bóndi í Hákoti kvaðst hafa farið á fætur þegar klukkuna vantaði 10 mínútur í 5 þennan óveðursmorg- un. Sagði hann að klukka sín gengi eins og kirkjuklukkan og munaði sjaldan meira á þeim cn 3 mínút- um. Þegar hann kom út sá hann þegar að voði var á fcrðum, því að sjórinn hafði þá gengið fast upp undir stakkstæði Fischcrs, sem var þar uppi á sjávarkambinum. Ilann hljóp þá með heimilismanni sínum, Jóni Sveinssyni, niður í Grófina, og voru þá flest skipin komin á hliðina, en skip Jóh. Ólscn alveg farið. Hann lét þá Jón Sveinsson bregða taug um hnýfilinn á skipi sínu og halda því þannig á meðan hann vakti háseta sína tvo í Ara- bæ og ennfremur Jóh. Ólsen og þá í Hákonarbæ. Guðmundi tókst að koma skipi sínu undan sjó rétt áður en nýtt ólag kom, en það bar hin skipin hærra upp á kambinn. — Næturverðina sá hann hvergi. Geir Zoéga kaupmaður skýrði frá því að hanri heíði vakrrað kl. 4 um nóttina cftir því sem vandi sinn só. Varð honum þá litið út um glugga og sá hann að sjórinn vrar kominn upp fyrir hús Björns Kristjánsson- ar, en annars skyggói þaó hús á sjoirui þangað tB rúailega væri

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.