Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Side 6
Tr f 242 l LESRÓK MORGUNBLAÐSINS H. E.: GAIVILA TJALDIÐ HANN VAR að taka til í geymslu- kompu hjá sér. Margra ára sam- ansafn af gömlu skrani átti að fara í eldinn eða í öskuhaug, en það er nýtilegt var lét hann á stað ^r- Allt í einu varð fyrir honum lítill, samanvafinn böggull, sem hann í fyrstu fékk ekki komið fyrir sig hvað vaeri. Hann dustaði af honum rykið og athugaði hann í krók og kring. Jú, einmitt, það var tjaldið, gamla, litla tjaldið hans. Hann stóð með það í hendinni og minn- ingar löngu liðinna yndisr.tunda komu fram í huga hans. Úti ham- aðist norðan ofsinn og hörð snjó- korn hrukku inn um óþéttann loft- gluggann, en hann sá lítið, hvitt tjald í fögrum hvammi við bjart fjallavatn. — Blóðberg, beitilyng, gulur og grár mosi. Hraunbreiður. Sólroðin ský. — Hann vaknaði eins og af svefni og strauk hendinni um enni sér. Nú var ekki sumar, heldur vetur. Sumarið var liðið hjá eins og ævisumai hans sjálfs. Þessir gömlu fætur áttu ekki eftir að marka spor í raoldarflög og mosa. Hann lagði tjaldið frá sér og hélt áfram dundi sínu, en minning- arnar sottu á, og áður en varði var sumar komið, og hann var aftur að rangla um hraun og móa með malinn sinn, tjald og svefnpoka. Svo var eins og skugga bæri yfir. Óhugnanlegur atburður rifjast upp. — Hann er einn á ferð uppi í óbyggðum. Leið hans hefir legið um móa og mosagróin hraun, en eftir því sem ofar dregur verður leiðin torsóttari, og þegar hann loks kemst út úr hrauninu er degi tekið að halla. Hann velur sér tjaldstað, og brátt er tjaldið komið upp. Svo býr hann um sig í svefn- pokanum, réttir úr sér, og hvílir þreytta limi. Sólin færist upp eftir tjaldinu og hverfur að lokum. Skuggarnir lengjast. Einhversstað- ar úr tjarlægð berst kyrrlátt lóu- kvak. Spói vellur. Rjúpkerj lætur til sín heyra. Svo þagna raddirnar hver af annarri, og nóttin færist vlir, dul og hljóð. — Um lágnætt- ið, þegar fossinn breytir um nið, og tjaldið skelfur í næturkulinu eins og einhver ógn steðji að, er einmana tjaldbúa bezt að breiða vel yfir höfuð sér og .gefa sig Guði á vald. En hann gerði hvorugt, og því fór sem fór. Uss, hvað var þetta- Var ekki einhver að rjála við tjald- ið. Hann bærði ekki á sér, og hlust- aði. Nú var eins og gengið væri um. Án þess að fara úr svefnpok- anum, settist hann upp, og leit út. Þar var enginn. Hann lagðist aftur útaf, en óljóst hugboð um aðsteðj- andi hættu varnaði honum svefns, svo hann klæddist og fór út. En meðan hann stóð þarna og starði á úfið hraunið, var eins og eitt- hvað losnaði úr tengslum í sálar- fylgsnum hans, og hann var grip- inn óstjórnlegri angist og einmana- kennd. Hann einbeitti öllu vilja- þreki sínu til að losna úr þessu hræðilega ástandi, en hugsanirnar urðu að flækju sem honum tókst ekki að greiða; vitundin hvarf, og allt varð tóm og myrkur. — Þegar hann rankaði við sér, var hann á hlaupum niður með hraunjaðrin- um á leið til byggða. Og þangað komst hann undir morgun, hálf- sturlaður og illa til reika. — En mörg ár eftir þetta, lá minningin um þessa skelfilegu nótt, og ótt- inn við geðveiki á honum eins og mara. Hann hafði beyg af fjöllun- um, og þótt iöngun gripi hann við og við, að kanna fornar slóðir, áræddi hann ekki að dvelja fjarri mannabyggðum einn síns liðs. Svo var það kvöld eitt, að hann lá í rúmi sínu, yfirkominn af tann- pínu. Og þegar þrautirnar voru orðnar það miklar að honum fannst hann varla geta afborið þær, hurfu þær allt í einu, en hann var kom- inn upp undir loft í herberginu, og honum leið óumræðilega vel. Hann sá líkama sinn liggja í rúm- inu fyrir neðan sig, kannaðist við hann og vorkenndi honum, en fannst hann algerlegd óviðkomandi sér. Svo tóku þrautirnar til á ný, og'allt komst í samt lag. Þetta varð til þess, að hann tók að velta því fyrir sér, hvort það gæti verið rétt, sem hann hafði einhversstað- ar lesið eða heyrt, að líkamarnir væru tveir. En hann komst ekki að neinni niðurstöðu, trúði engum fyrir þessu hugarvíli sínu, og hætti að hugsa um það. Enn liðu nokkur ár, og kom þá annað atvik fyrir- Hann var við veiðar í stóru vatnsfallí. Óð út á sandeyri, reyndi nokkrum sinnum, en varð ekki var. En meðan hann stóð þarna, kom yfir hann sama angistar-tilfinningin og forðum, og hann vissi ekki af sér um stund. Þetta leið þó fljótt hjá, og hann óð í land og gekk upp með vatns- fallinu. En á hól, alllöngum spöl of- ar, sat félagi hans og beið eftir honum. Og er þeir hittust, segir sá: „Það kom dálítið einkennilegt fyrir mig áðan“. — „Nú“. „Já, ég sat hérna og horfði á þig þar sem þú stóðst úti á eyrinni, og allt í einu var eins og þú skiptist í tvennt og ég sá tvo menn“. — Þessi orð félaga hans urðu honum minnisstæð. Á undri því er gerzt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.