Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 245 Fundinn fugl9 sem talinm var aldauða Aður cn Cook kom til Nýa Sjá- lands 1769, var þar íjölskrúðugt íuglalíf, og margar hinar einkenni- legustu fuglategundir, sem til hafa verið á jörðinni. Þar var íuglinn moa, sem var svo. risavaxinn að hann var 12 fet á hæð. Hann gat ekki flogið og þess vegna ofsóttu Maoriar hann þangað til enginn var eftir. Þegar Evrópumenn fóru að flytjast til Nýja Sjálands, höfðu þeir með sér hunda og ketti, sem urðu skæðir óvinir liinna ófleygu fuglategunda. Þeir fluttu þangað einnig hreysiketti og vislur, til þess að útrýma kanínum, en þetta bitnaði einnig á fuglalífinu, og hafa sumar fuglategundir orðið al- dauða. Meðal þeirra íugla, sem talið var þar sem eru fleiri lífverur en dropar í úthöfunum. Meira að segja fundu menn lifheima i hverjum dropa vatns. í hvert sinn sem við drógum að okkur andann, sogum við ofan í okkur ótrú- lega mergð lifandi vera. Og i hverju smakorni af staekum osti er iðandi líf. En ur þvi að natturan getur skapað líf við hin allra ólíkustu skilyrði hér á jörð, þa er það rökrétt alyktun af því að líf þroist a öðrum hnöttuni. Það er alveg sama þótt hnettir þessir sé olikir, hfið grær þar samt alveg eins og við hin ólíkustu skilyrði hér á jörð. Það er harla ólíklegt að náttúran haíi matt til að skapa hin stórkostlegustu stjarnhverfi, en hafi svo ekki mátt til þess að skapa líf á þessum hnöttum til að uppíylla þa. En þótt lífverurnar á öðrum hnöttum kunni að vera frá- brugðnar þeim liftegundum. sem við þekkjum, þá liggur þó næst að ætla að lífið vaxi þar fram á sama hátt og hér. (Útdráttur úr „Meo of Other Planets"). að útrýmt hefði verið, var fugl sá cr Maoriar nefndu takahe. Þetta var vængjaður fugl, en gat þó ekki ílogið. Fullorðinn takahe var um 20 þumlunga á hæð og vóg 6 pund- Hann var afar skrautlegur, fagur- blár um höfuð og háls, grænn á bakinu, dökkur á kviðinn og með hvitar fjaðrir í stélinu. Upp af nef- inu var rauður kambur og nefið blóðrautt efst en smálýstist og var gult í broddinn. Fæturnir voru af- ar stórir og sterklegir og rauðir á lit. Fugl þessi var orðinn mjög sjaldgæfur þegar Evrópumenn settus^ að í Nýa Sjálandi. Árið 1849 var einn skotinn hjá Resolute- ey og tveimur árum seinna náðu Maoríar einum hjá Thompson- sundi, sem er um 40 mílum norð- ar. Hamir voru teknir af báðum fuglunum og sendir til British Museum. Svo liðu 20 ár að ekki varð vart við neinn fugl af þessu tagi, en þá náði veiðihundur í einn hjá Te Anau-vatni, sem er sunnarlega a syðri eynni. Sá, sem fékk fugl- inn, ætlaði að plokka hann og eta, en ráðsmaður á búgarði nokkrum bjargaði fuglinum og seldi hann seinna til safnsins í Dresden í Þýzkalandi fyrir 105 sterlings- pund. Fjórða fuglinn veiddi hundur á sömu slóðum árið 1898. Stjórnin í Nýa Sjálandi keypti fuglinn fyrir 250 sterlingspund, svo að hann yrði ekki seldur úr landi. Var hann geymdur í Otago-safninu í Dune- din og heldu menn að þetta væri seýiasti takahe fuglinn, sem lifað Takahe-ungi með stóran haus og gríðarmiklar lappir. hefði í þessari veröld. Leið svo nær hálf öld að ekki varð vart við neinn takahe-fugl. Maður er nefndur dr. G. B. Or- bell og er læknir í Invercargill á Nýa Sjálandi. Þegar hann var drengur sá hann mynd af takahe fuglinum sem geymdur er í safn- inu í Dunedin, og móðir hans sagði honum frá því að menn teldu að fugl þessi væri aldauða. Varð þetta til þess að vekja óstjórnlega löng- un hjá drengnum til þess að rann- saka hvort svo væri. Hann vildi ekki trúa því að fuglinn væri al- dauða, hélt að hann gæti leynst einhversstaðar í óbygðum. Um 30 ára skeið leitaði hann allra upp- lýsinga, sem hægt var að fá um þennan fugl, en það var ekki fyr en 1945 að hann hóf leitina. Fyrstu árin varð honum ekkert ágengt og leitaði hann þó á þeim slóðum þar sem seinustu fuglarnir höfðu náðst. En svo frétti hann um vatn, sem var lengra upp í fjöllunum og þangað fór hann 1948. Og þarna fann hann hinn „útdauða“ fugl. Hafði hann leitað sér griðastaðar þarna langt frá alfaraleiðum. Hefir hann sezt að þarna í litlum dal, sem er um 3000 fet yfir sjávarmál og er umkringdur 4000 feta háum fjöllum. Ekki eru fuglarnir marg- ir. Segir dr. Orbell að þeir muni vera eitthvað miili 30 og 100. Við-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.