Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Síða 11
f LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 247 úr róðri. Tveir menn fórust, en sex komust í björgunarbát úr togleðri, sem vélbáturinn hafði og flutu á honum þangað til annan vélbát bar þar að og bjargaði þeim. 15. apríl sótti sjúkraflugvélin fár- veikt stúlkubarn frá Deildartungu í Borgarfirði. En á meðan hún var á leiðinni hingað varð bróðir telpunnar undir traktor og stórslasaðist. Flug- vélin sótti hann líka. Bifreiðaárekstur varð í Svínahrauni 20. apríl og slösuðust tvær konur mik- ið og voru fluttar í sjúkrahús. Aðfaranótt 27. april féll sextugur maður, Samson Jónsson af hestbaki á Langholtsvegi í Reykjavík og beið bana. m - j®-. a .1 ^ ,v' t ELDSVOÐAR 1. apríl brann bærinn Gunnólfsvík á Langanesi til kaldra kola og varð engu bjargað af innanstokksmunum. 6. april kom upp eldur i svonefndu Ginkrhóteli á Keflavíkurflugvelli og skemmdist það mjög mikið. VESTUR UM HAF 'Gylfi Þ. Gíslason prófessor fór vest- ur í haf í boði Bandaríkjastjórnar, til þess að kynna sér kennsluaðferðir þar og, próf í viðskiptafræðum. Séra Eirikur Brynjólfsson á Útskál- um sagði lausu embætti sínu og ætlar að flytjast vestur til Vancouver á Kyrrahafsströnd, að beiðni íslendinga þar, sem vilja fá íslenzkan prest. Hefir hann lofað að vera þar 2—3 ár. Fjórir ungir íslendingar fóru vestur til Alaska og voru ráðnir í skógar- vinnu þar. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Á sumardaginn fyrsta voru opnaðir fyrir almenning tveir sýningarsalir í nýa Þjóðminjasafninu, og eru þar að- allega munir frá 17. og 18. öld. ÁRNASAFN Ónefndur maður sendi Þjóðminja- verði kr. 500.00 að gjöf i byggingar- sjóð að væntanlegu Árnasafni hér á landi. Stúdentafélagið tók upp hug- myndina og skoraði á þjóðina að koma upp húsi fyrir sáfnið með frjálsum samskotum. Gaf það svo 1000 kr. úr sjóði sínum til þessa. Félag íslenzkra stórkaupmanna gaf 10.000 kr. í sjóð- inn og margar fleiri gjafir bárust. Var svo hafizt handa um fjársöfnun um land allt. SÝNINGAR Ungur málari, Sverrir Haraldsson, hafði sýningu í Reykjavík og seldust þar 24 myndir. Frú Vigdís Kristjánsdóttir hafði list- sýningu (gobelin og málverk) í húsi Þjóðminjasafnsins. Sýning var haldin í Reykjavík á 29 myndum eftir 10 unga norska málara. íslenzka listsýningin, sem send var til Belgíu, var opnuð 6. april í Briissel og hefir fengið góða dóma. ÍÞRÓTTIR Landsflokkaglíma fór fram í Reykja- vík 4. apríl og varð Rúnar Guðmunds- son Á sigurvegari í 1. flokki, Gunnar Ólafsson UMFR í 2. fl., Elías Auðuns- son KR í 3. fl. og Guðmundur Jóns- son UMFR í drengjaflokki. Skákþingi Norðlendinga lauk 8. apríl og varð Jón Þorsteinsson lög- fræðingur hlutskarpastur og hlaut tignarheitið „Skákmeistari Norður- lands“. Á sundmeistaramóti Norðurlanda fyrir unga menn, sem haldið var í Ósló, varð Pétur Kristjánsson hinn þriðji í röðinni í 100 m. skriðsundi. Drengjahlaup Ármanns fór fram 27. Þar sigraði Svavar Markússon KR, en Ármann vann bæði þriggja og fimm manna flokkakeppnina. Víðavanghlaup fór fram í Reykja- vík á sumardaginn fyrsta eftir venju og tóku 15 menn þátt í því, þar á með- al Oddgeir Sveinsson er keppti nú í 22 sinn. Sigurvegari í hlaupinu varð Kristján Jóhannesson ÍR. MANNALÁT 4. Lydia Angelika Knudsen, ekkja séra Ólafs Magnússonar í Arnarbæli. 4. Sigurður Kristjánsson bóksali 97 ára. 8. Árni Geir Þóroddsson fiskimats- maður nær 89 ára. 10. Frú Sigríður Benónýs, í Berkeley, Kaliforníu. 17. Frú Ingibjörg Þóra Kristjáns- dóttir frá Laugarnesi, 75 ára. 18. Sigurður Árnason vélstjóri á Bergi við Reykjavík, 75 ára. 19. Magnús Jónsson trésmiður í Reykjavík, 82 ára. 27. Frú Sigríður Magnúsdóttir, kona Ólafs Lárussonar prófessors. 27. L. H. Miiller kaupmaður í Reykjavík. Viðskiptasamningur Svía og íslend- inga var framlengdur um eitt ár. Vextir hækka. Frá 1. apríl hækk- uðu innlánsvextir hjá bönkunum um 1,5—2,75 af hundraði. Var það gert til að örva innlög sparifjár. Samtímis hækkuðu útlánsvextir um 1 af hundr- aði. Fyrsti ríkisráðsfundur eftir fráfall herra Sveins Björnssonar forseta var haldinn 1. apríl og voru þar afgreidd mörg mál. Pálmi Hannesson rektor var kosinn í orðunefnd í stað Sigurðar heit. Hall- dórsssonar trésmíðameistara.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.