Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1952, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1952, Síða 1
28. tbl. Sunnudagur 3. ágúst 1352. XXVII. árg. Árni Óla: IVióbergsSieiiaraiir á Suðurlaiidi Rannsókn móbergshellanna á Suðurlandi verður sumum hugstætt viðfangseíni. Vér vitum að hér er um elztu hús á íslandi að ræða og samt bíðum vér eftir því að tilviljun færi oss upp í hendurnar einhverjar sannanir um aldur þeirra og uppruna. Samtímis tr fárast um að vér eigum engar gamlar byggingar, en það er að vísu síður sprottið af þjóðrækni, heldur en löngun til að trana þeim íraman í útlendinga. — Ég kom fyrir skömmu í hellana hjá Hellum á Landi, sem vitað er að eru að minnsta kosli 600 ára gamlir, og af þeirri heimsókn er þessi grein sprottin. VESTAN undir Skarðsfjalli í Land- sveit standa þrír bæir risulegir og er skamt á milli þeirra. Næst þjóð- veginum er Múli, þá Hellar og inn- ar með fjallinu er Hvammur. Múli hét áður Látalæti og var hjáleiga, en Guðmundur Árnasonhreppstjóri og fræðimaður gerði hana að sér- stakri jörð, húsaði hana vel og gaf henni nýtt nafn 1917. Túnin í Múla og Hellum nú sam- in. Þau standa hátt og teygjast upp í fjallið, en fram undan eru sléttar og grónar grundir alla, leið út að Þjórsá. Fjallið-iyfir bæunum er all- mjög gróið, en þó sjást enn á stöku stað ör, þar sem jarðspildur hlupu fram í jarðskálftunum miklu 1896. Þau ör eru nú sem óðast að gróa. Hér er fagurt um að litast á björt- um sumardegi. Hlýtt er í skjóli fjallsins, túnin víðlend og grasgef- \ in, og maður veit reyndar ekki hvar túnin þrýtur og úthagi tekur við, því að allt sýnist eitt slétt og fagurt tún fram undan. Hamdan við það glóir sól á Þjórsá hjá Nautavaði, og enn lengra í burtu hyllir Stóranúp og fleiri bæi. En þegar komið er suður fyrir fjallsmúlann blasir við önnur sjón. Þar voru fyrrum þrír bæir, Fells- endi, Króktún og Skarð. Þeir hafa verið fluttir í minni elztu núlifandi manna undan ágangi sandsins, og standa nú góðan kipp sunnan og aústan við fjallið. Hellar í Landsveit. Skarffsfjall í baksýn. éT

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.