Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1952, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1952, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 377 Crunnmynd er sýnir stóra heyhellinn og' hlöðuna. Myndin er teiknuð af handahófi og eru hlutföll því ckki rétt. Veggir hlöðunnar eru hlaðnir af grjóti nema á kafla næst heliis- dyrunum þar sem brotinn var unp mcbergsrani og er siétt móberg neðst í veggnum. Nokkuð af gömlu kroíi, sem er að finna hingað og þangað • um veggina í heyhellinum stóra. Einkennilegir eru hinir samandregnu stafir I S á bremur stöðum og sitt með hverju móti. í Hestahclli er áletrunin T.II.S. 1722 (endurnýuð). Fyrir mörgum árum fannst forn róðukross í veggskúta í fjárhelli hjá Hóli í Kelduhverfi og er hann geymdur hér í Þjóðminjasafninu. Mér finnst það því vel hafa getað átt sér stað að slíkur róðukross hafi einhvern tíma verið geymd- ur í veggsV.otinu í hellinum á Hell- um, t. d. upp úr siðaskiftum, þegar mönnum var bannað að tilbiðia dýrlingamyndir. Ég mundi trúa væri mér sagt, að um þær mundir hefði búið á Hellum sá bóndi, er ekki þýddist hinn nýa sið og hafi því flutt helgimynd og bænastað sinn út í hellinn, þar sem hann gat óhultur rækt sinn pápiska átrúnað. Ymislegt krot er á veggjum hell- isins hingað og þangað, sumt er mjög máð og lítt læsilegt eða alls ekki. Innan um er alls konar krot eftir aðkomumenn á seinni árum. Þar eru einnig fangamörk nokkurra seinustu ábúenda, sem hafa sýnt hellunum sóma. Þar er fyrst G. Þ. S. 1844. Það er fangamark Guðlaugs Þórðarsonar er þá tók við búi. Hann var bróðir Þórðar Þórðarson- ar er var einhver fyrsti íslenzki skósmiðurinn í Reykjavík. Þórður hafði lært iðn sína í Lúbeck og kall- aði sig því Thordarsen. Systir þeirra Álfheiður, sem fyrr er nefnd, bjó í Hvammi með Stefáni bróður sínum; hafði hann einhverntíma verið í Odda og kallaði hún hann því stúdent. Þegar hún var á ferð hér syðra var hún vön að kynna sig þannig: „Ef þið þekkið Stefán stúdent, Þórð skómakara í Reykja- vík, Guðlaug dýralækni á Hellum og Jón smáembættismann í Skarðs- kór, þá er ég systir þeirra bræðra“. Guðlaugur á Hellum var hagmælt- ur og orkti þessa vísu um syni sína: Einn er Filpus óþægur, annar Stefán*) siðprúður, þriðji Þórður þriflegur, þessa drengi á Guðlaugur. Filippus tók við búi á Hellum eftir föður sinn og þarna er fanga- mark hans: F. G. og síðan kemur M. J., fangamark Magnúsar Jóns- sonar núverandi bónda, sem er kvæntur Vilhelmínu Ingibjörgu, dóttur Filippusar. Af gamla krotinu, sem þarna er, verður ekkert ráðið um aldur hell- isins. Elzta ártalið, sem ég sá í heyhellinum gamla er 1687. Þá er þar og ártalið 1723, en í Hestahelli er áríalið 1722. Franskur maður, Martin de la Martiniére, dvaldizt nokkra daga á íslandi árið 1653 og skrifaði síðan lýsingu á landi og þjóð, sem menn hafa talið að mestu leyti vitleysu. *) Hann drukknaði í Veiðivatnaför. En meðal annars segir hann: „Sum- ir íslendingar búa' í hellum, sem þeir hafa gráfið í kletta, aðrir búa í kofum, sem gerðir eru úr fisk- beinum og timbri“. Þetta hefir ver- ið talin kórvilla, en frásögnin hefir þó við rök að styðjast. Fiskbeinin eru auðvitað hvalbein, en það var víða siður að nota hvalbein til bygginga. En um byggð í hellum má benda á hvað einn af lærdóms- mönnum þeirrar aldar, Gísli biskup Oddsson segir í „Undur íslands“ (1638): „Hellar finnast í landi þessu bæði ógn margir og stórir. Sumir hellarnir eru gerðir af manna hönd- um, höggnir inn í kletta og unnir af aðdáanlegri snilli; þeir eru helzt ætlaðir fyrir hey og þá líka fjós og eldsneyti, og synja ég ekki fyrir, að sumir þeirra, sem ég hefi séð, hafi verið hentugir til íbúðar, því að svo snillilega eru þeir gerðir, að það var eins og þeir væri undir ein- um mæniási, þar sem þeir voru úr einu samanhangandi bjargi og bún- ir næsta víðum gluggum, en inni voru snagar, borð, sæti, skemmlar, fáguð rúmstæði og legubekkir". Eggert Ólafsson segir líka í Ferðabók sinni: „í Flóanum í Ár- nessýslu er lítill bær einn höggvinn út í móberg. Eru þar nokkur her- bergi. Þar var að vísu áður hellir .. .... Hrútahellir (undir Eyjafjöll-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.