Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 4
410 -V- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS óvinsældar, er útlend og innlend blöð telja, að landshöfðingi Finsen sé í hjá þjóð vorri, og sem nú ávallt verður hér augljósari og augljósari". —★— Nú leið að afmæli konungs, 8. apríl. Þá var efnt til hátíðahalda á þremur stöðum í- bænum. Stóðu helztu embættismenn að einu hóf- inu, borgarar að öðru, en skólapilt- ar að því þriðja og var það haldið í latínuskólanum. Segir nú ekki af hinum tveimur fyrrtöldu veizlum, því að þar gerðist ekkert sögulegt, heldur skal minnst á samsæti skólapilta. Hófst það með átveizlu kl. 6—7 um kvöldið. Voru þar í boði fjórir prestlærðir menn og tveir af prestaskólanum, auk kennara og Jóns Árnasonar umsjónarmanns. Rektor og tveir helztu kennararnir komu þó ekki fyrr en seinna, því að þeir voru í höfðingiasamsætinu. Veizlan hófst með hinni mestu hófsemi, því að allir skólapiltar voru þá í bindindi á annað en rauð- vín. En þó var þeim allheitt í skapi. Zophonias Halldórsson mælti fyrir minni konungs og hrópuðu piltar þrjú húrra á eftir. Þá mælti Páll Vigfússon fyrir minni íslands og hrópuðu menn þá níu húrra. Svo mælti Lárus Halldórsson fyrir minni Jóns Sigurðssonar og þá ætl- aði húrrahrópum aldrei að linna. Landshöfðingi og stifsyfirvöld (Bergur Thorberg amtmaður og Pétur biskup) höfðu verið boðin. Landshöfðingi afþakkaði, en stifts- yfirvöldin komu aðeins til þess að þiggja sína skál, því að þau höfðu yfirumsjá skólans. En svo brá við að þessu sinni, að engin kvæði voru orkt né sungin, og þótti það ný- lunda. Að lokinni máltíð var sezt að svokallaðri „eftirdrykkju“ og mun þá hafa verið eitthvað göróttara um hönd haft heldur en rauðvín. Stundu eftir miðnætti voru margir farnir, þar á meðal kennarar. Voru menn þá orðnir örir. Piltur nokkur gekk þá upp á ræðupallinn og ætl- aði að tala fyrir minni landshöfð- ingja, þar sem það hafði „gleymst". Hófst þá kurr fnikill í salnum og pípnablástur. Einhver piltur hljóp fram og ætlaði að draga ræðumann niður af pallinum, en í sama mund tóku hinir að kasta glösum. Brotn- aði eitt þeirra í höfði þess, er ráðist hafði að ræðumanni, og særðist hann talsvert og fell blóð niður um hann allan. En ræðumaður slapp ómeiddur, þótt skotin væri honum ætluð. Segir svo ekki meira af þeirri viðureign. Það var venja að skólapiltar fengi 50 rdl. styrk frá stiftyfirvöld- unum til þess að halda konungs- hátíð. En þegar rektor mæltist nú til þess að fá þennan styrk fyrir þeirra hönd, neituðu stifsyfirvöldin að greiða hann, en fólu rektor að rannsaka hverjir hefði verið valdir að þeirri óreglu, sem var í skólan- um þetta kvöld. Rektor varð einsk- is vísari um það, og sneri sér nú til landshöfðingja og bað hann að hlutast til um að piltar fengi styrk eins og vant væri. En landshöfðingi taldi að stiftsyfirvöldin hefði farið rétt að, því að hér hefði verið um að ræða óafsakanlega óreglu í skól- anu~i og skort á velsæmi af pilta hálfu. Þetta mæltist illa fyrir og tóku blöðin málstað pilta. En Jón Ólafs- son tók af skarið í „Göngu-Hrolfi“ og ritaði hverja árásargreinina að annarri um allt þetta mál, er hann kallaði „landshöfðingj ahneykslið“. Út af því stefndi landshöfðingi honum þremur stefnum og hóf síð- an þrjú mál á hendur honum. Átti Jón þá í vök að verjast. Hann fekk blað sitt prentað í Landsprent- smiðjunni og höfðu tveir kennarar gengið í ábyrgð fyrir greiðslu til prentsmiðjunnar. En prentsmiðjan var undir stjórn stiftsyfirvaldanna og segir í „Göngu-Hrolfi“ að þau hafi tilkynnt kennurunum að þeir yrði að afturkalla ábyrgðina, að viðlögðum embættismissi. Gerði annar þeirra það og þá var þess krafist að Jón greiddi hvert blað fyrirfram, en þess var hann ekki megnugur. Svo fellu dómar í und- irrétti í málum hans. Var hann í einu þeirra dæmdur í 200 rdl. sekt til ríkissjóðs, í öðru í sex mánaða einfalt fangelsi og í hinu þriðja f ársfangelsi. Leizt honum þá ekki á blikuna og flýði land — fór til Vesturheims. Þegar Jón var farinn, lægði ófriðaröldurnar. Og þótt Alþingi 1873 byrjaði nokkuð ófriðlega, þá lægði einnig þær öldur er á þingið leið og var þar samþykkt bæn til konungs um að gefa landinu nýa stjórnarskrá á næsta ári, á 1000 ára afmæli íslandsbyggðar. Hilmar Finsen var þess mjög fýsandi að þessi leið væri farin og hét öflugu fylgi sínu. Og svo fór, sem menn wmmm Líkneskja Kristjáns konungs IX. á Stjórnarráðsblettinum. Hún á að sýna þann atburð, er kqnungur rétti fslend- ingum „frelsisskrána“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.