Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 8
414 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS GRÍMSVÖTN. Fyrra laugardag lagði )0 manna leiðangur, undir stjórn Sigurð- ar Þórarinssonar jarðfræðings, upp á Vatnajökul og var ferðinni heitið til Grímsvatna. Ætluðu þeir að fara á bíl eins langt og komist verður. Hjá Gríms- vötnum ætluðu þeir að gera ýmsar athuganir og reyna að komast að því hvort hægt muni að sjá Skeiðarárhlaup fyrir á þeim breytingum, sem verða á jöklin- um hjá Grímsvötnum vegna jarðhitans þar og gosa. Hafa hugir náttúru- fræðinga vorra mjög stefnt að Grímsvötnum á seinni árum, enda eru þar mikil og margþætt rannsóknarefni. Myndin er tekin af Grimsvötnum á flugi yfir Vatnajökli (Ljósm. Ól. K. Magnússon). hann ekki hvert ég vilji halda, en ekur rakleitt að skrifstofudyrum saltfélagsins, Salinas. Hann veit nefnilega að þar inni er Antonio Carcia, kallaður Toni, sem er einn af þeim örfáu í Ibiza, sem nokkuð kann í enskri tungu. Orðaforði Tona er talsverður enda er hann aðal túlk- ur félagsins og hin mesta hjálpar- hella allra útlendra sjómanna, sem koma á skipum, sem eru á vegum félagsins, en framburðurinn er stundum harla einkennilegur, jafn- vel svo að erfitt er að skilja við hvað hann á. Til dæmis talaði Toni einusinni mikið um einhvern „Gorman“, en það virtizt vera afar valdamikill náungi, svo valdamikill að Franco sjálfur var hreinasti hé- gómi í samanburði við hann. „Gor- man“ leyfði þetta, en harðbanrvijBi hitt og Toni hristi höfuðið, graf-al- varlegur á svipinn. Við höfðum þó ekki 'heyrt þess getið i heimsfrétt- unum að nein stórvægileg breyting hefði orðið á Spáni, í sambandi við völd Francos eða heilsu hans og skildum því lengi vel ekkert í þessu, en loks kom í ljós að Toni átti við The government — stjórnina — og þá var gátan leyst. Fólkið í Ibiza á það sameiginlegt með öðrum Spánverjum, sem við höfum hitt, að það er hæverskt, vingjarnlegt og hjálpsamt. Engir út- lendingar verða fyrir ónæði á göt- unum, hvorki af hórusölum, betl- urum eða ágengum götusölum, sem elta menn á röndum í hafnarborg- um Italíu. Það er friðsælt í þessum spænska smábæ, lítil umferð öku- tækja, nema þá hægfara hestvagn- ar sveitamannanna í kaupstað með afurðir sinar. Víða sitja menn fyrir dyrum úti með handavinnu sína og algengt er að ungar stúlkur sitji við útsaum og knipplingar á gang- stéttinni og firtast ekkert við þótt vegfarandinn stöðvist til að dázt að listaverkinu, en spænskar konur eru, eins og vitað er, frægar fyrir listfengan heimi'jsiðnað. Verslanir eru margar í Ibiza og þar fæst margt góðra muna. Verðið á minjagripum, ætluðum skemti- ferðafólki, er fremur hátt, en nauðsynjar mjög ódýrar. Til dæmis um það, sögðu mér íslenzk hjón, sem dvalist hafa langdvölum á Balarieyj- um, að sæmileg aðhlynning, hús- næði, fæði og nauðsynleg þjónusta kostaði þau, að meðaltali, sem svar- aði einu sterlingspundi á dag, en slíkt mun ódýrara en víðast annar- staðar. Veitingahús eru svo að segja í hverri götu, eða götuhorni, því Spán- verjum þykir nauðsynlegt að geta skroppið inná slíka staði, til þess að fá sér glas, til hressingar í amstri dagsins, eða sitja yfir léttu víni, og spjalla við kunningja á kvöldum, en hófsmenn eru þeir í bezta lagi eins og flestir, sem byggja vínlöndin. Á sumum þessum stöðum er dansaö á kvöldin og það er ekki eingöngu ungt fólk, sem þá skemtun sækir, heldur eru þar einnig mæður og feður ungu stúlknanna, sem ^hafa vakandi auga á að alt fari siðsam- lega fram og taka þær síðan heim með sár að lokinni skemtun. — Og svo kveðjum við Ibiza. Hundaspá. Menn kalla að hundur bjóði gest- um, ef hann liggur fram á lappir sín- ar og snýr hausnum móti dyrum. Ef hann leggur hausinn ofan á hægri löppina, á einhver meiri maður að koma. En snúi hundur rassi að dyr- um, en horfi þó til dyra og liggi í hring, þá kemur einhver ófrómur. Aðr- ir segja að hundurinn bjóði frómum, ef hann leggur trýnið beint fram á lappirnar, en ófrómum ef trýnið stend- ur út af öðru hvoru megin.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.