Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1953, Blaðsíða 6
412 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS sem þarna hefur verið komið fyrir. Sé nú ekkert skip fyrir til að lesta saltið, er þvi komið fyrir í þróm til geymzlu, en það mun víst sjaldan að langt líði á milli skipakomu til La Canal, hitt mun tíðara að skipin verði að bíða eftir afgreiðzlu, jafn- vel í nokkra daga. Vinnan við útskipun á saltinu er nokkuð mannfrek í Ibiza, ekki sízt fyrir þá sök, að þar er engin bryggj- an' og auk þess eru allar aðferðir gamaldags. Þegar bátarnir eru komnir að skipshliðunum, því saltið er lestað á bæði borð sam- tímis, krafsa verkamennirnir það upp í litlar tágakörfur, með skaft- stuttum spöðum, skvetta síðan úr körfunni upp í stórt járnmál, sem síðan er hafið uppí skipið og hellt í lestarnar, en þar eru einnig verka- menn, sem moka því til og jafna. Ætla mætti það óhentugan tvíverkn- að að krafsa saltið fyrst uppí körf- urnar, í stað þess að moka því beint í málið, með skaftlöngum rekum, en svo er þó ekki, því þetta gengur mjög greitt, kanske fyrst og fremst vegna þess að mennirnir eru þessu vanir, en við nánari athugun sézt einnig að þessi aðferð er mun léttari, því að í stað þess að rétta sig upp við hverja fyllta reku, sem er mikil bakraun, þurfa þeir aðeins að rétta sig einu sinni með körfuna og tvær rekufyllur. Mennirnir í bátunum vinna skorpuvinnu, þar til' hann er tæmdur að hverju sinni, en fá svo nokkra hvíld á meðan honum er róið í land og nýr farmur sóttur. Með þessum vinnubrögðum tekzt þeim að fullferma yfir 2000 smálesta Útskipun á salti i La Canal Áveitusvæðið á Ibiza uppmokstri, eða görðum. Smátt og smátt gufar vatnið í sjónum upp i sólarhitanum, en eftir verður þunn skán af salti, sem síðan er rakað saman og mokað í stóra hrauka víðsvegar um svæðið. Aður en salt- skánin er fullþurr og ótekin er hún rauðleit að sjá, en verður snjó- hvít er þurrkun er lokið. Geta má nærri að marga góða þurkdaga þurfi til þessarar fram- leiðzlu, en svo er einmitt á þessum slóðum, því talið er að þarna séu um 300 sólskinsflagar að meðaltali á ári, en árleg framleiðzla um 100.000 lestir. Frá saltsvæðinu til La Canal liggja einfaldir, mjóspora járnbrautarteinar og um þá fer * dvergjárnbraut, sem dregur á eftir sér fjölda lítilla vagna fulla af salt- inu til útskipunar. Þegar lestin er komin til La Canal og eitthvert skip er þar fyrir að lesta, er hellt úr vögnunum á járngrind, en þar standa margir verkamenn með stóra tréhamra og berja saltið, sem oft er í kekkjum, þar til það rennur niður um járngrindina ofan í kvörn, sem malar það enn smærra og frá henni rennur það svo niður í bátana, sem liggja við neðsta pallinn af þremur,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.