Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1954, Blaðsíða 1
32. tbL
t V
aygtmMaíiáinð
Sunnudagur 29. ágúst 1954.
XXIX. á
ar§-
EYÐIMERKURÞJÓ
Landnám inni í miðri Sahara
*
r« ■>
3V
Stræti í Ghardaia. þorpi Beni Isguen.
TTA hundruð kílómetra suður
af Algier, inni í miðri Sdhara
eyðimörkinni, er grýttur dalur,
sem nefnist M'Zab. í þessum dal
eru fimm einkennileg þorp. Stend-
ur hvert þeirra á ofurlitlum hóli
og efst á hverjum stað gnæfir hvít-
ur musteristurn yfir byggðina.
Á þessum stað býr sérstakur
þjóðflokkur, sem menn vita lítil
deili á, en ýmsar sagnir ganga um
hvaðan hann sé runninn. Þeir eru
nefndir Mozabítar óg vitað er að
þeir áttu heima á hinni frjósömu
Miðjarðarhafsströnd Afríku fyrir
þúsund árum. Þeim svipar mjög til
Gyðinga í útliti, en eru Múhameds-
trúar, eins og Arabar. Sumir segja
að þeir sé afkomendur einnar
hinna „týndu“ kynkvísla Gyðinga.
Aðrir segja að þeir muni vera af-
komendur Kartagóborgarmanna, er
komist hafi undan, er Rómverjar
lögðu borgina í eyði. Sumir halda
að þeir sé ein ættkvísl Berba, sem
byggðu Miðjarðarhafsströnd áður
en Arabar komu þar til sögunnar.
En þá ber þess að gæta, að Berbar
hafa verið herskáir menn allt fram
á þennan dag, en hið sama verður
ekki sagt um Mozabíta, því að þeir
eru friðelskandi menn. Verður því
ekkert með vissur sagt um, hverjir
hafi verið forfeður þeirra, og viti
þeir það sjálfir, þá halda þeir því
leyndu.
En eitt er víst, að kynflokkur
þessi varð fyrir miklum ofsóknum
af hálfu þeirra Múhamedsmanna,
er næstir þeim bjuggu, vegna þess
að þeir væri blendnir í trúnni og
heldu ýmsum fornum átrúnaði. Það