Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
575
Bjargsigs-utbúnaður frá Grímsey.
hverju leyti frábrugðið þeim, er
fluttu landnámsmennina til íslands
þá hefur það sjálfsagt í aðalatrið-
um sama lag og sama búnað. Lík-
anið stendur því hér sem elzti full-
trúi þeirra fleyta, sem flotið hafa
við strendur landsins.
Sá, sem skoðar líkanið og ber það
saman við önnur bátalíkön, sem
þarna standa, er ekki lengi í vafa
um, að nánasti ættinginn stendur
á stalli sínum lítið eitt innar, en
það er af teinæringi frá Breiða-
firði, hákarlabát, eins og þeir tíðk-
uðust á síðustu öld, með bognum
stefnum, einni siglu með þversegli
á rá, eins og fornaldarseglin hafa
verið, að viðbættu toppsegli, sem
kallast „fokka“, en sá seglabúnaður
var algengastur við Breiðafjörð og
á Vestfjörðum — og reyndar við
Norðurland líka frameftir 19. öld-
inni. — Stýrið hefur ekki sveif
(hjálmunvöl), heldur hefur verið
stýrt með „aktaum“. Líkan þetta
er einkar vel smíðað, og hefur
Bjarni skipasmiður Þorkelsson
gert það.
Vinstra megin við stall víkinga-
skipsins stendur á stalli einum lík-
an af rennilegum teinæringi úr
Vestmanneyum; hét sá bátur „Ár-
óra“ og mun vera smíðaður um
1850. Hann er allmikið frábrugðinn
Breiðafjarðarbátnum, hefur tvær
Sandavirki, var aðeins notað í Skafta
fellssýslu og undir Eyafjöllum.
siglur með gaffalseglum og fokku
framan við framsigluna á htlu
„bugtspjóti", sem fest er við hnýf-
ilinn með járnlykkju. Líkan þetta
er gert af Ágústi smið Árnasyni.
— Þar innar af er líkan af áttær-
ingi, eins og þeir voru algengastir
við Faxaflóa; hefur það verið
traustlegt skip og vel byggt, með
tveim siglum, spritseglum og tveim
fokkum á „bugtspjóti“. — Magnús
Pálsson í Hvalsnesi gerði líkanið.
Á miðju gólfi stendur í skorðum
„Engeyarbátur“, sexæringur,íheilu
líki, með öllum farviði innanborðs.
Bátur þessi er smíðaður 1912 af
Bjarna Brynjólfssyni í Engey, og
er talinn sá síðasti, sem smíðaður
var með „Engeyarlagi". — Bátar
Bjarna í Engey nutu á sínum tíma
mikils álits og á „Den skandinav-
iske Fiskeriudstilling“ í Þránd-
heimi 1908 hlaut bátur smíðaður af
honum verðlaunapening úr silfri.
— Verðlaunaskjalið hangir nú á
veggnum rétt hjá bátnum.
Innan við „Engeyarbátinn1 stend-
ur á stalli til vinstri líkan af þil-
skipi, kútter, eins og þeir gerðust
um aldamótin. Líkanið er eftir Þor-
stein Jónsson í Hafnarfirði. Við
hliðina á því til hægri er líkan af
vélbátnum „Súlan“, úr Vestmann-
eyum, smíðaður um 1930, og á sama
stalli lítið líkan, sem sýnir togar-
ann „Leif heppna“, er smíðaður
var 1920. En innst á vesturvegg er
sýndur togarinn „Baldur“, smíðað-
ur 1911. Við gaflinn, sitt hvoru
megin dyranna inn í „Skemmuna“,
standa á stöllum tveir nýsköpunar-
togarar, „Hallveig Fróðadóttir“ til
vinstri og „Ingólfur Arnarson" til
hægri; eru þeir eign Bæarútgerðar
Reykjavíkur.
Fremst í horninu við austurvegg
eru sýnd sjóklæði á „gínu“, skinn-
stakkur, brók með sjóskóm og sjó-
hattur. Á skáhillu á veggnum þar
inn af eru ýms smááhöld eins og
leggjatangir, sem notaðar voru til
að draga út nálarnar við skinn-
klæðasaum, seilarnálar, flestar úr
hvalbeini, en einnig úr eik, kopar
og járni, en þær voru hafðar til að
þræða fisk á seil til að draga í land,
er létta þurfti bátinn, sundmaga-
nálar, netariðlar og netnálar, fiska-
hnífar, skeljahnífur til að opna með
skeljar og skera skelfisk í beitu,