Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1954, Qupperneq 4
576 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Seilnálar krókar til að bera fisk á, ýsuklórur, síldarklippur o. fl. Innar á veggn- um hangir röð af vaðsteinum, þrír þeir fremstu fundust djúpt í hús- grunni við Tjarnargötu og munu vera frá fyrstu tímum byggðar í Reykjavík. Þá hanga þar tvser maðkakvíslar, sem hafðar voru til að grafa upp sandmaðk til beitu, og á gólfinu fyrir neðan eru tvær steinsleggjur til að berja með fisk, verbúðaskrína, slorskrína og beitu- stokkur, Á næstu skáhillu fyrir innan liggja fiskgoggar, blýsökkur, vað- beygjur, sem festar voru á öldu- stokkinn undir færið eða vaðinn, lóðastokkar, önglar (hneifar), kol- krabbaönglar, hrognkelsastingur o. fl. Meðfram veggnum þar fyrir innan er fyrst allstórt bjóð fyrir lóðir, sunnlenzkt, ,og „sandavirki“ en það er eins konar söðulvirki úr tré, sem lagt var á hest, þegar fisk- ur var sóttur „á sanda“ þ. e. að lendingarstað við sjó á söndunum í Rangárvalla- og Skaftafellssýsl- um. Virkið, sem hér er til sýnis, er undan Eyafjöllum. — Þá eru á veggnum frumstæð tæki til að snúa og seilar. færi og niðurstöður, eins konar færarokkur — og þá færarokkur með öllum útbúnaði frá Bæ á Höfðaströnd. — Færi með önglum og sökkum hanga á veggnum, og á lítilli hillu þar hjá sjást líka tauma- rokkar, sem hafðir voru til að snúa öngultauma. Næst eru sýnd nokkur tæki til sjófuglaveiða, fyrst ^hinir svo nefndu „Drangevarflekar“, en það eru ferkantaðir flekar, reknir sam- an úr fjölum; er þeim lagt á yfir- borð sjávarins með niðurstöðum. Á hvern fleka eru boruð fjöldamörg göt, sem hrosshárssnörum er fest í, kapmella er sett á enda hverrar um sig og er það kallað að egna snörurnar. Þegar fugl kemur á flekann festir hann fæturna í snör- unum, kapmellurnar renna að, og fuglinn situr fastur. Oft mun hafa verið hafður „bandingi" á flekan- um til að lokka aðra fugla. — Þá er sýnishorn af leðúrvað, sem not- aður hefur verið við bjargsig í Vestmanneyum. Þaðan eru líka greflar eða goggar, sem lundakofa (þ. e. ungi lundans) var veidd með. Eru það trésköft mismunandi löng (langgrefill og stuttgrefill) með hvössum járnkrók á endanum. Var fariS með grefilinn inn í lundahol- urnar og króknum höggvið í kof- urnar og þær dregnar út. Þar hjá er „fýlakeppur“ sem fýllinn var rotaður með; er það tréskaft með ólarlykkju á öðrum endanum til að smeygja upp á úlnliðinn, en á hinum endanum er járnhringur með broddi til annarrar hliðar, lík- * jtsí* ' Leggjatangir, notaðar við skinnklæðasaum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.