Lesbók Morgunblaðsins - 27.02.1955, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
121
Rannsóknir undirdjúpanna
MEÐ hinum nýu kafbátum, sem
nefndir eru „bathyscaphe“,
hefur opnazt ný leið til þess að
kanna hin myrku djúp hafanna.
Það var Piccard hinn belgiski sem
fyrstur manna vogaði sér að kafa
dýpra heldur en nokkurn maun
hafði dreymt um að hægt væri að
kafa. Hann kafaði í stálkúlu, sem
hann hafði fundið upp sjálfur. Þessi
stálkúla varð síðan fyrirmynd
hinna nýu kafbáta, sem taka henni
langt fram og geta farið miklu
dýpra.
í desembermánuði 1953 köfuðu
tveir franskir liðsforingjar niður á
4000 feta dýpi í hinum svokallaða
Toulon-ál í Miðjarðarhafi. Tilgang-
ur fararinnar var ekki sá að vita
hve hægt væri að komast djúpt á
þessum nýu kafbátum, heldur til
þess að rannsaka merkilegt fyrir-
brigði, er menn höfðu víða orðið
varir við, eftir að farið var að nota
bergmálsdýptarmæla árið 1940. —
Þetta fyrirbrigði var þannig, að
þótt skip væri statt þar sem menn
vissu að var regindýpi, þá náðu
hljóðbylgjurnar ekki botni, heldur
endurköstuðust úr 250 faðma dýpi.
Það var engu líkara en að hljóð-
bylgjurnar hefði rekizt á eitthvert
þétt lag í sjónum. En þetta lag var
ekki alltaf á sama dýpi. Það grynnk
-aði á sér á nóttunni, en svo var
eins og það sykki dýpra á daginn.
Bretar kölluðu þetta lag „deep
scattering layer“ og skammstöf-
uðu það DSL, og er sú skammstöf-
un nú komin inn í vísindamálið.
Menn greindi mjög á um hvers
konar þetta furðulega lag mundi
vera. Sumir vísindamenn héldu að
þetta stafaði af því að sjórinn væri
mismunandi þéttur vegna hita-
áikáááááááá
ÞAR
SEM HIÐ
EILÍFA MYRKUR
MORAR AF
LÍFI
&&&átikátákáiákdk
breytinga í honum. Aðrir heldu því
fram að þarna mundu vera torfur
af einhverjum lifandi verum, rækj-
um, kolkröbbum eða fiski, jafnvel
að þetta væri þétt torfa af svifi.
Dr. Edgerton hafði farið á hafrann-
sóknaskipinu „Calypso“ um þvert
og endilangt Miðjarðarhafið til þess
að reyna að leysa þessa gátu. Hafði
hann haft með sér ljósmyndavélar,
sem hægt var að sökkva í sjó og
tekið með þeim 10.000 ljósmyndir
á því dýpi þar sem þetta furðulega
lag var fyrir í sjónum. Á þessum
myndum komu að vísu fram rækj-
ur og marglyttur og einnig ara-
grúi af lýsandi deplum. En mynd-
irnar sönnuðu ekki neitt um það
hvernig laginu mundi háttað.
Það var ekki laust við að menn
gerðu gys að hinum ungu mönn-
um, og spurðu sem svo, hvað þeir
byggist við að uppgötva í einni
köfun, sem ekki væri hægt að sjá
á 10.000 ljósmyndum. En þeir svör-
uðu sem svo, að þrátt fyrir allt
væri mannsaugað öruggara heldur
en auga ljósmyndavélarinnar, því
að menn gætu rennt augunum til,
en það gæti Ijósmyndavélin ekki.
Merkilegur árangur
Þeir köfuðu svo í Toulon-álnum
þar sem var 4050 feta dýpi, og er
nú bezt að láta þá sjálfa segja frá
ferðalaginu.
— Við höfðum ákveðið að láta
kafbátinn síga eins hægt niður og
unnt væri. Sjórinn var fyrst fagur-
blár og dökknaði er neðar dró, en
Hinn nýi kafbátur (Bathyscaphe)