Lesbók Morgunblaðsins - 09.10.1955, Page 12
r 560
& LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Um 100 m. djúpt sig í
Vatnajökli, sem myndast
hefir þegar hlaupið kom
í Skaftá.
Frú Nína Tryggvadóttir hafði list-
sýningu í Reykjavík (11.)
Þorsteinn Hannesson óperusöngvari
hefir verið ráðinn söngkennari við
Tónlistarskólann (13.)
Leikhús Heimdallar sýndi óperuna
„Töframanninn“ eftir Mozart (21.)
Amerískur píanósnillingur, Julius
Katchen, kom hingað á vegum Tón-
listarfélagsins (22.)
Ríkisútvarpið < efndi til tónleika-
ferða út um land, bæði til Vestfjarða
og Austfjarða (23.)
Nína Sæmundsson myndhöggvari
kom hingað og ætlar að hafa listsýn-
ingu í Reykjavík (23.)
Karl Kvaran opnar málverkasýn-
ingu í Reykjavík (30.)
FJÁRMÁL OG VIÐSKIPTI
Verðlag landbúnaðarafurða hækkaði
um nær 15% (6.)
Vísitala framfærslukostnaðar var
165 stig (14.)
Niðurjöfnun lauk á Patreksfirði og
er útsvarsupphæðin 1,2 milj. kr. (15.)
Bæarsjóður Reykjavíkur hefir veitt
félaginu Bláa bandinu 250.000 kr. til
starfrækslu hælis fyrir drykkjusjúkl-
inga (16.)
Útgerðarfélag Akureyrar hefir á-
kveðið að hækka hlutafé sitt úr 4
milljónum í 5 milljónir kr. (16.)
Reykjavíkurbær hefir keypt jarð-
hitaréttindi af Mosfellshreppi að
Varmá, Lágafelli, Þormóðsdal, Hraða-
stöðum og á Mosfellsheiði. Enn frem-
ur verða keypt hitaréttindi á sjö stöð-
um öðrum í hreppnum (17.)
Viðskiptasamningur var gerður milli
íslands og Ráðstjórnarríkjanna fyrir
næsta ár. Kaupa Rússar aðallega fisk-
flök og saltsíld, en Islendingar fá alls-
konar vörur í staðinn (25.)
Viðskiptasamningur var gerður við
Tékka til jafnlengdar næsta ár. Kaupa
þeir frystan fisk, síld, fiskimjöl, land-
búnaðarafurðir og niðursuðu. Þaðan
verða keyptar iðnaðarvörur allskonar
(28.)
Bæarráð Reykjavíkur hefir sam-
þykkt að bærinn festi kaup á Kol-
viðarhóli með öllu er honum fylgir,
þar á meðal hitaréttindum (29.)
FRAMKVÆMDIR
Hafinn var undirbúningur að virkj-
un Grímsár, þar sem á að verða orku-
stöð Austurlands (4.)
Kom til landsins nýtt súgþurrkunar-
tæki, sem talið er að taki öðrum slík-
um tækjum fram (9.)
Gufubaðstofu hafa Mývetningar reist
í sumar á svokölluðum Hithóli skammt
frá Reykjahlíð (16.)
Nýr fiskibátur, smíðaður í Dan-
mörk, kom til Húsavíkur. Hann heitir
Helgi Flóventsson og er 50 lestir (30.)
MENN OG MÁLEFNI
Dr. Fernando Garcia Olano, nýr
sendiherra Argentínu, afhenti forseta
íslands skilríki sín (1.)
Menntamálaráðherrar Norðurlanda
héldu sameiginlegan fund í Reykjavík
(1.)
Hópur ungra Sjálfstæðismanna fór
í kynnisför til Þýzkalands (3.)
Dr. phil. Olav Beito menntaskóla-
kennari í Ósló ferðaðist hér um land
til þess að athuga mállýzkur (4.)
Carl Jörgensen, sem var fyrsti for-
stjóri Mjólkurbús Flóamanna, kom
í kynnisför ásamt konu sinni (4.)
í tilefni af sjötugsafmæli Andrésar
Johnsen fornminjasafnara, var opnuð
sérstök "deild í Þjóðminjasafni . með
safnmunum hans og nefnd Ásbúðar-
safn (6.)
Fimm erlendir verslunarsérfræðing-
ar komu hingað á vegum Iðnaðarmála-
stofnunarinnar til að kynna mönnum
bættar aðferðir við vörudreifingu.
Heldu þeir hér námskeið fyrir versl-
unarfólk (6. og 7.)
Skýrsla Barnaverndarnefndar fyrir
1954 kom út. Nefndin hefir haft eftir-
lit með 119 heimilum á þessu ári (11.)
Sex verklýðsleiðtogar voru boðnir í
sex vikna kynnisför til Bandaríkj-
anna. (14.)
Einar Ólafur Sveinsson prófessor fór
utan til þess að halda fyrirlestra við
8 háskóla á Norðurlöndum (14.)
Séra Sigurður Einarsson í Holti fékk
fyrstu verðlaun í samkeppni um beztu
Skálholtsljóð í tilefni af 900 ára af-
mæli biskupsstólsins á næsta ári. Önn-
ur verðlaun hlaut Þorsteinn Halldórs-
son prentari og þriðju verðlaun Þorgeir
Sveinbjarnarson sundhallarstjóri í