Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.1955, Blaðsíða 1
37. tbl.
oruiml>Iaí>£iíjs
Sunnudagur 16. október 1955
XXX. árg.
•
Gunnlaugur ormstungu og Skáld-Hrufn
börðust austur á Kili
Lénsmaðurinn í Veradal
þykist liafa fundið orustustaðinn
P Á T T er átakanlegra í forn-
sögum vorum en frásögnin
um Helgu ina fögru frá Borg og
örlög þeirra Gunnlaugs ormstungu
og Hrafns Önundarsonar á Mos-
felli, er báðir voru ágætir menn
og létu lífið fyrir ástir hennar. Sú
saga skal þó ekki rakin hér að
neinu ráði, heldur aðeins lokaþátt-
ur hennar.
Gunnlaugur skoraði Hrafn á
hólm á Öxarárþingi, út af konunni,
en særðist sjálfur af slysni, svo
að þeir voru skildir. Var þetta
seinasta hólmgangan, sem háð var
á íslandi, því að á þessu sama þingi
voru hólmgöngur teknar af með
lögum. Þá réðu þeir það af að
sigla til Noregs og ganga á hólm
þar, en er til kom bannaði Eiríkur
jarl þeim að berjast í sínu ríki.
Og nú er bezt að láta söguna sjálfa
segja frá:
Nú fer Gunnlaugur af Hlöðum við
sjöunda mann (jarl hafði léð honum
2 menn til fylgdar) inn í Lífangur, og
þann morgun hafði Hrafn farið þaðan
með fimmta mann, er Gunnlaugur
kom þar um kveldið. Þaðan fór Gunn-
laugur í Veradal og kom þar að kveldi
jafnan, sem Hrafn hafði áður verið um
nóttina. Gunnlaugur fer til þess er
hann kom á efsta bæ I dalnum, er
á Súlu hét, og hafði Hrafn þaðan farið
um morguninn. Gunnlaugur dvaldi þá
ekki ferðina og fór þegar um nóttina.
Og um morguninn í sólarroð, þá sá
hvorir aðra. Hrafn var þar kominn,
sem voru vötn tvö og á meðal vatn-
anna voru vellir sléttir. Það heita
Gleipnisvellir. En fram í vatnið ann-
að gekk nes lítið, er heitir Dinganes.
Þar námu þeir Hrafn við í nesinu og
voru fimm saman. Þeir voru þar með
Hrafni frændur hans, Grímur og
Ólafur.
Og er þeir mættust þá mælti Gunn-
Nesið í Skálavatni. Er það Dinganes?