Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 553 enginn vissi hvað af þeim hafði orðið. Nú er frá því að segja að fólk úr Skagafirði fór um haustið til grasa upp á fjöll fyrir vestan Blöndu. Var það margt saman, en tveir menn einir koma hér við sögu, Jón Bjarnason í Holtsmúla og 18 ára piltur, Björn Guðmunds- son að nafni. Föstudaginn 27. sept. rákust þeir á þá bræður, Jón og Sigurð, fyrir vestan Blöndu þar sem Sandfell heitir. Voru þeir hjá þremur kaupamönnum, sem voru á suður- leið og höfðu tjaldað þarna. En þar var lítið vinfengi með þeim. Voru kaupamenn reiðir mjög og höfðu þá bræður í hálfgerðu haldi. og kenndu þeim um að hafa stolið frá sér um nóttina smjör- stampi, smjörkvartili. skinnstakka- bagga og tjaldi með trjám og poka. Höfðu þeir Jón og Sigurður viður- kennt að skinnstakkarnir væri í sínum fórum, en ekki meira. Hitt muni Pétur hafa tekið. Grasafólkið vildi ekki blanda sér neitt í deilur þessar. Var það þá a heimleið og helt áfram för sinni niður að Blönduvaði. En er þangað kom saknaði það tjaldáss síns. Sneru þeir Jón Bjarnason og Björn þá aftur til þess að leita hans og fundu hann eftir litla hríð. En sem þeir koma niður að vaðinu aftur, sáu þeir mann á brúnskjóttum hesti koma framan úr Blönduvaðs- hólum austan ár. Lagði hann þegar út í ána og mætti þeim á eyrunum vestan ár. Þetta var Pétur Bjarna- son. Hann spurði þá þegar hvort þeir hefði ekki orðið varir við menn á ásunum þarna fyrir vestan ána. Jón í Holtsmúla varð skjótur til svars og kvað þá hafa hitt þar kaupamenn, er tekið hefði fasta þá félaga hans, Jón og Sigurð, fyrir þjófnað. Strákarnir hefði meðgeng- ið að hafa stolið frá þeim, en hefði ekki verið einir um það, því að Pétur félagi sinn hefði í sinni vörslu bæði smjörið og • tjaldið. Síðan sagði Jón Pétri að kaupa- menn hefði fengið þá Björn til þess að leita hans og ná af honum þýf- inu. Pétur þrætti þess að hann vissi neitt um þennan þjófnað. En þá byrsti Jón sig og kvað honum ekki duga að þverskallast, því að þýfi þetta væri áreiðanlega í hans vörslu. Gugnaði Pétur þá og sneri á leið með þeim austur yfir Blöndu og upp í hólana, því að þar kvaðst hann hafa falið þýfið. Varð honum þó allmikil leit úr því, mun hafa valið felustaðinn í myrkri og ekki verið fljótur að átta sig á hvar hann var. Þó fór svo að hann hafði upp á því. Var þarna smjörstamp- urinn og smjörkvartilið, tjaldið troðið niður í karlmannsbuxur, en tjaldtré og tjaldhæiar þar hjá. Auk þess var þar rauður hærupoki — og annar poki lítill og vissu þeir óglöggt hvað í þeim mundi vera. Þar var og reiðingur og klyfberi. • Nú sagði Pétur þeim frá því, að þar uppi í hólunum væri móálóttur hestur, er hann kvaðst eiga, og skyldu þeir taka hann og flytja farangurinn á honum. En hvernig sem þeir leituðu, gátu þeir ekki fundið þann móálótta. Aftur á móti fundu þeir þar lítinn jarpan hest, vart stærri en þriggja vetra fola. Þennan hest tók Pétur, en Jón í Holtsmúla vildi ekki leggja klyfj- arnar á hann, heldur setti hann reiðing á þann brúnskjótta, er Pét- ur hafði riðið og tjaslaði öllu upp á hann. Steig Pétur þá á bak þeim jarpa og heldu þeir svo vestur yfir Blöndu og hugðust fara á fund kaupamanna. En er vestur yíir ána kom drógst Pétur aftur úr og varð þeim viðskila. Mun honum ekki hafa þótt ráðlegt að ganga í greip- ar þeirra sunnanmanna. Þeir Jón og Björn heldu nú þangað er þeir höfðu skilið við kaupamennina og voru þeir þá enn þar og þeir bræður Jón og Sigurður hjá þeim. Jón í Holtsmúla skýrði nú kaupamönnum frá því, að Pétur væri þar á næstu grösum og bauð þeim fylgi sitt, ef þeir vildu fara að honum og taka hann fastan. En kaupamenn kváðust ekkert um það hirða hvað af honum yrði. Þeir voru harðánægðir með að hafa fengið allt sitt og nenntu ekki að standa í neinum stórræðum. Kváð- ust þeir og mundu sleppa þeim bræðrum, Jóni og Sigurði. Höfðu þeir bræður sagt kaupamönnum að þeir væri þarna til grasa og trúðu kaupamenn því. Slógu kaupamenn nú upp veizlu fyrir þá Björn og Jón í Holtsmúla og veittu þeim bæði mat og brennivín, eins og þeir vildu. Og að skilnaði gáfu kaupamenn þeim brennivín á pytlu „og glasið með“. Kvöddust þeir síðan með vinsemd og slógust þeir Jón og Sigurður í för með þeim grasamönnum. Afhenti Jón í Holts- múla þeim bræðrum brúnskjótta hestinn með reiðingi, því að Pét- ur hafði beðið hann um það og sagt að hvort tveggja væri sín eign. Höfðu þeir bræður þá þrjá hesta, tvo með reiðtygjum og einn með reiðingi. En engar farangur höfðu þeir meðferðis. Var nú snúið norður á leið og höfðu þeir ekki langt farið er þe*r riðu fram á Pétur, þar sem hann hafði falið sig í laut. Rauk Jón í Holtsmúla þá upp á hann og heimt- aði af honum skyrtu og glas, sem hann sagði að sunnanmenn ætti enn hjá honum. Og eftir nokkrar vífilengjur lét Pétur fram skyrtu, og stakk Jón henni niður hjá dóti sínu, en ekkert var á það minnzt að ríða á eftir sunnanmönnum og afhenda þeim skyrtuna. Þeir urðu nú samferða niður að Blönduvaði. Lengra fóru þeir bræð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.