Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1957, Qupperneq 8
M6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Geislabrandar himinhvelsins Halastjörnur eru merkileg fyrirbæri í SÓLHVERFI voru eru eigi aðeins jarðstjörnurnar, heldur einnig aðr- ar undarlegar stjörnur, sem nefn- ast halastjörnur og nemur tala þeirra áreiðanlega yfir 100.000. Þær fara eftir vissum brautum um- hverfis sólina, alveg eins'og jarð- stjörnurnar. Vér þekkjum nú um þúsund hala -stjörnur, en vér getum giskað á að á móti hverri einni þeirra eru 200—300 aðrar, sem vér höfum ekki séð, en líklegt er að koma muni í ljós. Ástæðan til þessa er einföld. Flestar halastjörnur faia eftir afarlöngum sporbaugum um- hverfis sólina, og eru sumar allt að 40.000—50.000 ár að fara eina hring- ferð. En frá jörðinni er halastjarna ekki sýnileg nema aðeins stutta hríð þegar hún er næst jörðu. Og venjulega verða þær ekki sénar þá, nema í víðsjá, vegna þess hve dauf birta þeirra er. Þó kemur líklega ein halastjarna á hverju ári að meðaltali svo björt, að hægt er að eygja hana með berum augum. En fjórum eða fimm sinnum a Öld kemur svo björt halastjarna, að hægt er að sjá hana með berum augum, jafnvel um bjartan dag. Ein slík kom í janúarmánuði 1910 og önnur í desember 1927, og sá- ust aðallega á suðurhveli jarðar. Búast má við því að tvær eða þrjár svo bjartar stjörnur muni birtast áður en þessari öld er lokið. Á hverju ári koma í ljós að með altaii 3—4 af þessum langferða- stjörnum, og á þessu hefir gengið stöðugt um margar aldir. En þar sem hver þessara stjarna er um 40.000 að íara eina hringferð, Grein þessi er útdráttur úr bókinni „The Modern Universe" eftir dr. Raymond A. Lyttleton, kennara í stærðfraeði við háskólann í Cam- bridge, og fyrrverandi varaforseta konunglega stjörnufræðafélagsins i Lundúnum. eða jafnvel enn lengri tíma, þá er það skiljanlegt að fjöldi haia- stjarnanna muni fara fram úr 100.000. Þegar um slíkar langferðastjörn- ur er að ræða, er ekki hægt að segja fyrir um komu þeirra, at þeirri einföldu ástæðu, að liðin erU að minnsta kosti 40.000 ár síðan þær voru hér á ferð áður og á þeim tíma voru menn ekki farnir að fást við stjörnuathuganir og gang himinhnatta. Til eru um 100 halastjörnur, sem eiga sér miklu skemmri hringbraut um sól, og koiha því í ljós nokkurn veginn reglulega og með stuttu millibili. Kunnust af þeim er hala- stjarnan, sem kennd er við Halley, vin Newtons, því að hann athugaði hana gaumgæfilega fyrstur manna. En Halley fann ekki þessa hala- stjörnu, hún hafði sézt mörgum sinnum áður. Fyrstu fregnir, sem menn hafa af henni, eru að minnsta kosti 240 árum f. Kr., og líkur eru til þess að hún hafi sézt 467 árum f. Kr. Það var þessi halastjarna, sem sást árið 1066 í þann mund, er orustan við Hastings var háð cg Vilhjalmur bastarður brauzt til ríkis í Englandi. Þess vegna er hún sýnd á einni myndinni á hinum fræga Bayeux-refli. Seinast sásc þessi halastjarna árið 1910 og næst mun hún koma í lok ársins 1980. Brooks-halastjarnan, sem sást 21. okt. 1893. Halinn er einkennilega hlykkj- óttur. Þótt halastjörnur virðist miklar fyrirferðar, eru þær þó svo lausar í sér, að væri efni þeirra þjappað fast saman, mundi ekki úr því verða stærri hnöttur en svo sem 2—3 km. í þvermál. En þessar stjörnur hafa vakið meiri skelf- ingu og hjátrú meðal manna en öll önnur fyrirbrigði á lofti. Senni- lega er ástæðan sú hve geisilega stórar þær sýnast, og að halinn verður stundum eins og eldhaf, eða líkt og „brugðinn sem skjómi himni á“, þegar þær fara næst sól- inni. Halinn, sem þá sést getur ver- ið hundruð miljóna kílómetra lang- ur, og stundum er eins og hann nái þvert yfir himingeiminn. Eins og áður hefir verið sagt, kemur að meðaltali á hverju ári ein haia-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.